Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 44
Ég er karlmaður og þess vegna vil
ég ekki láta nafns míns getið, ef þið
birtið þetta bréf. Ég keypti fimmta
heftið af „Frúnni“ fyrir einhverja
rælni, og er ég þó ekki vanur að
kaupa kvennablöð. Síðan hef ég keypt
öll blöðin, sem út 'hafa komið. Mér
finnst þetta blað fara mjög myndar-
lega af stað. Efni og myndir er mjög
fjölbreytt og ólíkt því, sem við eig-
um að venjast í þessum tímaritum,
sem á boðstólum eru, og flest eru
ærið fáskrúðug.
arið áður til dráttar, en hann hafði
verið notaður þar sem dráttarhest-
ur fyrir einum líkvagni höfuðstað-
arins móti öðrum hesti. Hestarnir
voru stilltir og vanir sláttuvélinni,
enda búið að beita þeim fyrir hana
mikinn hluta sumarsins. Höfðu þeir
aldrei sýnt neina vanstillingu fyrir
vélinni. En nú v.ill svo til, að hest-
arnir, og þó einkum sá brúni, tryllist
algjörlega og svo að faðir minn fékk
ekki við neitt ráðið. Fóru svo leikar
að þeir brutu stöngina á sláttuvél-
inni og slitu sig lausa. Varð faðir
minn að hætta slættinum og mátti
kalla mildi, að hann slapp óslasað-
ur af vélinni. Taldi hann að hest-
arnir hefðu fælst þarna að ástæðu-
lausu, eftir því sem séð varð. Fann
hann aldrei neina skýringu á því.
Þetta þótti allt mjög einkennilegt, en.
þó ekki rætt mikið.“
Þetta var frásögn frú Helgu og er
hún í alla staði sönn. Er sízt að
furða, þótt fólkinu í Kollafirði þættu
þetta kynlegir atburðir. Hér skal.
engum getum að því leitt, hvaða öfl
þarna voru að verki, en óneitanlega
er þetta merkileg saga og kann blað-
ið frú Helgu beztu þakkir fyrir að
mega birta hana. Ef til vill verður
hún til þess, að fólk fari að rifja upp
atburði af svipuðum toga spunna,
sem væru þess virði, að þeir væru.
skráðir.
M. Th.
Sérstaklega finnst mér virðingar-
verð viðleitni blaðsins til að flytja
efni, sem er fræðandi og hefur bók-
menntalegt gildi. Vil ég sérstaklega
benda á greins Björns Þorsteinsson-
ar um Ólöfu ríku, sem byrjaði í síð-
asta blaði.
Svona efni á erindi til allra, og
vona ég að áframhaldi verði á slík-
um greinum.
íslenzk blaðaútgáfa stenzt engan
samanburð við erlend blöð, og eru
kannske skiljanlegar ástæður fyrir
því, en mér finnst „Frúin“ fara vel
af stað, og er mér sagt, að konum
líki blaðið vel, og ég hef heyrt marga
karlmenn hrósa því.
Góðu ritstjórar! haldið áfram á
sömu braut, og þið getið verið vissar
um að blaðið verður vel þegið, einn-
ig af okkur karlmönnunum.
Piparsveinn.
50 TEGUNDIR
ALLRAHANDA
BASILÍKUM
BIRKISFRÆ
e:rdsinnep
ESTRAGON
FINKULL muuhn
HVÍTLAUKSMJÖI
HVITLAUKSSALT
KANILL MULINN
KANILL Htiu
KARDAMÓMUR
KARDAMÓMUR MULDAR
KARRÍ
KÓRlANDRI
LAUKSALT
LAUKMJÖL
MAJÓRAN
MÚSKAT muud
PIPAR LANGUR
PIPAR SVARTUR HEILL
PIPAR SVARTUR MUUNN
RÓSMARIN
SELLERIFRÆ
SELLERÍSALT
SINNEPSFRÆ
STJÖRNUANfS
TYMlAN
HUNANG
SALVÍA muun
ANÍS MUIINN
DILL heht
BRUNKÖKUKRYDD
CAYENNE-PIPAR
HUNANGSKÖKUKRYDD
MÚSKATHNETUR
PIPARMYNTULAUF
SPÍRMYNNTULAUF
PÓMERANSBÖRKUR
RÚLLUPYLSUKRYDD
VANILLÍNSYKUR °
,ÞR!ÐJA KRYDDID"
CEYLON KANILL
EFNAGERÐ REYKJAVIKUR H.F.
44
FRÚIN