Harmoníkan - 01.05.1987, Side 4
Ingvar Hólmgeirsson
, núverandi formaður S.Í.H.U.
Eg náði sambandi við Ingvar er
hann var staddur hér fyrir sunn-
an og bað um smá viðtal sem hér fer
á eftir. Ingvar er útgerðarmaður og
skipstjóri á Húsavík, giftur Björgu
Gunnarsdóttir sem fædd er þar og
uppalin, þau eiga tvær dætur. Eins og
oft er spurði ég hann um uppruna
sinn, um tilurð og fyrirkomulag
landsmóta og fl. Gefum Ingvari orð-
ið.
Ég er fæddur að Látrum við Eyja-
fjörð 15. júní 1936, foreldrar mínir
eru Hólmgeir Árnason frá Knarrar-
eyri á Flateyjardal og móðir mín Sig-
ríður Sigurbjörnsdóttir frá Vargsnesi
í Ljósavatnshrepp. Ég ólst upp í Flat-
ey á Skjálfanda frá tveggja ára aldri
til tvítugs en síðan hef ég verið búsett-
ur á Húsavík. Ég eignast fyrstu har-
moníkuna 7 ára, og síðan hefur þetta
þróast í þá átt að leika sér til ánægju
í frístundum. Ég gekk í Harmoníku-
félag Þingeyjinga fljótlega eftir stofn-
un þess, var formaður þar í 2 ár, hef
leikið þar í hljómsveit félagsins einnig
á félagsdansleikjum ásamt öðrum
meðlimum. Ég var kosinn formaður
Landsambands Harmoníkuunnenda
1984 á landsmótinu sem haldið var þá
að Varmalandi í Borgarfirði. Frum-
kvöðull að stofnun landsmóta og
jafnframt fyrsti formaður þess var
Karl Jónatansson harmoníkuleikari.
Samband íslenskra harmoníkuunn-
enda er stofnað á Akureyri 1981, þar
sem saman voru komnir fulltrúar
þeirra sex harmoníkufélaga sem
stofnuð höfðu verið, einn maður frá
hvoru. (í dag eru félögin í landinu 13
talsins innan landsambandsins og
jafnmargir félagar í stjórn þess.)
Þarna voru samin lög sambandsins,
m.a. að landsmót skuli haldin á
tveggja ára fresti, en 1984 var því
breytt í þriggja ára millibil. Lands-
mótsdagarnir eru notaðir til að halda
aðalfund félagsins (fyrsti dagurinn)
þar sem skeggrætt er og skipst á skoð-
unum meðal fulltrúa hinna ýmsu
landsfélaga, teknar ákvarðanir um
framtíðina um samvinnu félaganna
og fl. Þess má geta að samvinna hefur
verið ákaflega góð. Landsmótin hafa
aukið mjög á kynni meðal fólks í fé-
lögunum og utan þeirra. Landsmót
eru haldin seinni partinn í júní og
standa yfir frá föstudegi til sunnu-
dags. Þá fara fram hljómleikar hinna
ýmsu sambandsfélaga, allt frá ein-
leikurum upp í stórar hljómsveitir,
einnig eru haldnir tveir dansleikir,
föstudagskvöld og laugardagskvöld,
sem hafa verið mjög fjölmennir til
þessa og vonandi verður svo í náinni
framtíð.
Ég spurði Ingvar hvort erlendum
gestum hafi verið boðið a landsmót?
Nei ekki ennþá en gæti hugsanlega
orðið í náinni framtíð, hinsvegar hafa
á öðrum tímum komið hingað hljóm-
sveitir erlendis frá, t.d. frá Noregi
Málselv Nye trekkspillklubb og Senja
trekkspillklubb í boði félaga hérlendis
einnig einleikarar af ýmsu þjóðerni.
Hefur eitthvað verið rcett um að
koma a keppni íharmoníkuleik ísam-
bandi við landsmótin?
Þessi hugmynd hefur skotið upp
kollinum, þar sem vitað er að víða í
Skandinavíu fara slíkar keppnir
fram, get ég ekki séð neitt óeðlilegt
við að við mundum feta í fótspor
frænda okkar á norðurlöndum.
Er greinileg aukning á harmoníku-
áhuga meðal almennings?
Já tvímælalaust, frá þvi fyrsta
félagið var stofnað 1977 og til dagsins
i dag eru félögin orðin eins og áður er
getið 13 í landinu með meðlimafjölda
í kringum 400 manns, þá hafa félags-
menn endurnýjað hljóðfæri sín mjög
mikið á liðnum árum og margir feng-
ið sér dýrar og vandaðar harmoníkur.
Landsmótið í ár verður haldið á
Akureyri síðustu helgina í júní
26.—28. júní, ég vil eindregið hvetja
allt áhugafólk til að koma og njóta
þess sem harmoníkufélögin í landinu
hafa upp á að bjóða. H.H.
Oftast fyrirliggjandi
EXCELSIOR
harmoníkur
Útvega harmoníkur frá flestum þekktustu
verksmiðjum á Ítalíu — Þýskalandi og víðar.
Alhliða viðgerðaþjónusta á harmoníkum og
öðrum hljóðfærum.
GUÐNI S. GUÐNASON
LANGHOLTSVEGI 75
SÍMI: (91) 39332
4