Harmoníkan - 01.05.1987, Blaðsíða 5
Trond Stenberg. Sigmund Dehli.
Norðmenn koma
Eins og við greindum frá í síð-
asta blaði, þá eru væntanlegir
hingað gestir frá Noregi. Einhverjar
breytingar hafa orðið frá því sem
upphaflega var hugsað, því nú má
telja víst að Inger Nordstrom kemur
ekki, og skipt hefur verið um gítar-
leikara.
Sigmund Dehli kemur þó örugg-
lega, því hann kom hingað til landsins
stutta ferð til að ganga frá þeim mál-
um.
Með honum í ferðinni var Trond
Stenberg, einskonar ,,Pavarotti“
harmoníkunnar. Stenberg er afar
yfirgripsmikill á tónlistarsviðinu og
spilar bæði danstónlist og ,,klassísk“
verk.
Það hefur komið til tals, að hann
verði í hópnum sem er væntanlegur
19. maí, og má þá segja að þar komi
maður í (kven)manns stað.
Þegar þeir komu hingað á dögun-
um, voru þeir með harmonikurnar
með sér, og var farið með þá í veit-
ingahúsið Ártún á gömludansana.
Harmoníkurnar voru hafðar með, og
þegar hljómsveitin tók sér hlé frá
spilamennskunni, þá léku þeir Dehli
og Stenburg nokkur lög á meðan. —
En þeir stoppuðu aðeins í tvo daga, en
koma aftur í maí.
Eins og áður segir, kemur hópurinn
tillandsins 19. maí og dvelurí Reykja-
vík. Fimmtudaginn 21. maí aka þeir
til Akureyrar og föstudaginn 22.
verða tónleikar og dansleikur í umsjá
F.H.U.E. Laugardaginn 23. verður
farið til Húsavíkur og þar verða tón-
leikar og dans. Þingeyjarsýsla skoðuð
á sunnudag og 25. verður ekið til
Reykjavíkur. Miðvikudaginn 27.
verður farið austur á Rangárvelli og
tónleikar og dans í Gunnarshólma.
Daginn eftir verður farið til Borgar-
fjarðar og föstudag 29. verða tónleik-
ar og dans að Varmalandi. Laugar-
daginn 30. verða svo hljómleikar í
Broadway og um kvöldið dansleikur
að Sigtúni 3, og dvalið í Reykjavík til
brottfarar. Vonandi láta harmoníku-
unnendur þessar skemmtanir ekki
fram hjá sér fara, því hér eru á ferð-
inni einhverjir eftirsóttustu har-
moníkuleikarar Norðmanna (sjá nán-
ari auglýsingu í blaðinu)
Þessa skemmtilegu mynd fengum við úr bandarísku blaði, og gátum ekki
stillt okkur um að láta hana fljóta með. Texti myndarinnar er: Theodore
Pizzolo, San Francisco, 1954 — tileinkað Ron Flynn.
5