Harmoníkan - 01.05.1987, Síða 12

Harmoníkan - 01.05.1987, Síða 12
Merkileg harmoníka Harmoníkan sem hér um ræðir var keypt ný eftir verðlista sem hét ,,INPORTOREN“ rétt eftir alda- mótunum eða u.þ.b. 1903—1904. Kaupaiidinn var ung stúlka að nafni Jónunna Þuríður Jónasdóttir frá Lundarbrekku í Bárðardal Þingeyjar- sýslu, sem þá er um fermingu, en hún var fædd 1888. Hljóðfærið mun hafa kostað 3—4 kr. Jónunna lék á þessa harmoniku í sinni heimabyggð fram eftir árum á dansskemmtunum, sem þá voru haldnar á þeim bæjum sem baðstofur voru nægjanlega rúm- góðar. Harmoníkan er nú i eigu Kristjáns Sigurðssonar á Blönduósi, en hann erfði hana eftir Jónunni sem var amma hans, hann segir að þegar hún hætti að leika fyrir dansi lagði hún hljóðfærið ofan i koffortið sitt sem geymdir voru í munir sem sjaldan voru notaðir, en einu sinni á hverju vori þegar gott var veður tók hún hana upp og viðraði ásamt því að leika fyrir Kristján nokkur lög, og segir hann þær stundir ógleymanleg- ar. Nú hefur harmoníkan verið látin i viðgerð, til kunnáttumanns. Einu er þó ósvarað? Hvergi er hægt að sjá hvaða tegund hljóðfærið er, gaman væri ef einhver gæti upplýst okkur um það. Ólöf Jónsdóttir Lagið sem við birtum á nótum að þessu sinni er Hestamanna- ræll eftir Ólöfu Jónsdóttur. Það hlaut 1. sæti í gömludanslagakeppni sem Hótel Borg stóð fyrir, og sem getið var í síðasta blaði. Til að frœða les- endur um höfundinn, höfðum við samband við Ólöfu, og er frásögn hennar hér á eftir. Ég er fædd 22. október 1948, að Borgarholti í Biskupstungum, elst Snemma beygist krókurinn — Jón Þorri, sonur Ólafar. fimm systkina. Foreldar mínir eru Ár- veig Kristinsdóttir og Jón Þorláks- son, en hann er látinn. Vorið 1961 fluttist fjölskyldan í Eyjafjörðinn og tveimur árum síðar til Akureyrar, þar sem ég hef búið nær óslitið síðan. Eiginmaður minn er Örn Baldursson og ég er móðir fjögurra barna. Frá barnsaldri hef ég haft gaman af söng og hljóðfæraleik og þegar ég var 8 ára fékk ég gítar í afmælisgjöf og hefur það ágæta hljóðfæri fylgt mér síðan. Þetta sama haust fengu bræður mínir litla Hohner, 8 bassa harmon- íku og einhvernveginn æxlaðist það, að fyrr náði ég lagi upp á eigin spýtur á nikkuna. En í kennslubók sem hét Gítar- hljómar lærði ég gripin á gítarinn. Munnharpa var líka til á heimilinu, en mér fannst skemmtilegra að spila af fingrum fram. Síðar sá ég leikið á harmoníku og fór þá að fylgjast með hvernig ,,al- vöru“ harmoníkuleikarar báru sig til og leggja á minnið fingrasetningar þeirra laga sem ég æfði mest. Með þessum hætti þróaðist mín kunnátta til heimabrúks, en á þessum árum hafði ég ekki tækifæri til tónlistar- náms. Seinna þegar tækifæri gafst fór ég í nám, en hætti fljótlega þar sem ég hafði enga þolinmæði í blessaðan nótnalesturinn, missti jafnvel áhug- ann á hljóðfærinu um stundarsakir. Tók síðan þá ákvörðun að láta öðrum hæfari lærdóminn eftir og spila áfram sjálfri mér til ánægju. Ólöf Jónsdóttir á heimilisínu á Akureyri. 12

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.