Harmoníkan - 01.05.1987, Qupperneq 20
Harmoníkan
á Broadway
Hljómsveit Harmoníkufélags Reykjavík-
ur ásamt formanni og stjórnanda, Karli
Jónatanssyni. Því miður voru ijóskastar-
ar í húsinu mismunandi sterkir og þrátt
fyrir leifturljós, urðu myndirnar mislýstar
eins og sjá má.
Pað var í páskavikunni sem Karl
Jónatansson, formaður Har-
moníkufélags Reykjavíkur hringdi í
mig og bauð okkur frá blaðinu á Árs-
hátíð harmoníkunnar, sem haldin var
í veitingahúsinu Broadway, laugar-
daginn 18. apríl, þ.e.a.s. laugardag-
inn fyrir páska.
Hafði verið staðið vel að kynningu
þessarar hátíðar, sem skilaði sér með
góðri aðsókn.
Skemmtunin hófst með leik hljóm-
sveitar H.R. sem eru á þriðja tug har-
moníkuleikara auk ásláttarhljóð-
færa. Þá hófst þáttur unga fólksins
með einleik. Margrét Valdimarsdóttir
9 ára, reið á vaðið og lék Áttundar-
vals. Síðan tók við hvert af öðru, 3
nemendur Grétars Geirssonar léku
saman, svo og feðgin sem léku saman
á harmoníku og klarinett.
Þá tóku þeir eldri við og léku ein-
leik, eitt lag hver. Auðvitað var leikið
eitt og annað, og að sjálfsögðu voru
lög eftir Frosini og Deiro á efnis-
skránni. Þarna komu fram kunnir
harmoníkuleikarar eins og Bragi
Hlíðberg, Einar Guðmundsson frá
Akureyri, Gunnar Guðmundsson
(sem einnig lék á gítar með hljóm-
sveitinni) og Garðar Olgeirsson frá
Hellisholtum.
Þá komu einnig fram aðrir einleik-
arar, sem lítið eða ekkert hefur heyrst
í áður, sem segja má að hafi komið á
óvart. Þetta voru þeir Hörður Krist-
insson, Sveinn Rúnar Björnsson, Ör-
lygur Eyþórsson og Örn Arason sem
allir léku lög eftir Frosini. Þá má ekki
gleyma Jónu Einarsdóttur sem einnig
glímdi við Frosini.
í lokin lék svo Karl Jónatansson
sjálfur nokkur lög, og hafði sér til að-
stoðar bassa, píanó og trommur.
Þetta er annað árið í röð sem haldin er
harmoníkuhátíð í Broadway, og þá er
bara að biða og sjá hvort við fáum
aðra að ári, en við þökkum fyrir það
sem komið er.
Þ.Þ.
20
Nemendur Grétars Geirssonar úrRangár
vallasýslu, léku saman eitt lag.