Harmoníkan - 30.05.1991, Side 4

Harmoníkan - 30.05.1991, Side 4
Helgi Eyjólflsson frá Borgafiröi Eystri Helgi Eyjólfsson fer höndum um hljóðfcerið. Helgi fæddist á Bjargi í Borgar- firði Eystri 22. september 1925, og hefur alla sína tíð verið þar. Hann er uppalinn við sveitastörf og sjó- mennsku. Aastæðan að ég tek Helga tali er að hann er hinn ágætasti harmonikuleikari, léttur í lundu og sérstakur persónuleiki með alla hluti á tæru eins og sagt er stundum. Ég kynntist honum á skemmti- fundi hjá F.H.U.R. fyrir nokkrum árum þar sem hann lék með Guttormi Sigfússyni H.F.H. Þeir eru bestu kunningjar og spila á sérstakan hátt, hafa persónulegan stíl. Helgi er giftur Agústu Sveins- dóttur og eiga þau fjögur börn, tvær dætur og tvo syni, allt flogið nema önnur dóttirin, hún býr i þorpinu en hin norður í Fnjóska- dal, annar sonurinn er á Seyðis- firði hinn á Egilsstöðum. Helgi leysir frá skjóðunni. Ég hef mest verið heima við en tekið svona rispur, verið á vertíð í Vestmannaeyjum á nokkurra ára fresti, var alltaf voðalega sjó- veikur framanaf en það eltist af. Ég lenti í allskonar harðýðgi við sjómennskuna, leifunum af helv. hörkunni á sjónum, ef menn ekki stóðu sig voru þeir slegnir með blautum sjóvettlingum og beittir fleiri óþverrapústrum. Hef aldrei hugsað mér að fara í burtu er bundinn átthagafjötrum og er mjög heimakær, hefði ekki viljað vera annarsstaðar. Það er fyrst og fremst sumarið og frelsið sem maður hefur hér utan við fjallsendana, held það sé betra en vera tímavinnujálkur. Hvenær tókst þú harmmoníkuna í fangið? Ólst upp við músík, það var mikið spilað og sungið á heimil- inu, pabbi gat tekið rispur á orgel en aðallega var það mamma, hún var músíkölsk, spilaði á allt sem hljóð kom úr, á tvöfalda og ein- falda nikku, orgel lék hún á þegar gestir komu utan úr sveit, ef hún vissi að fólkið hefði gaman að, var orgelið óspart notað. Hún hafði geysilega góða rödd og söng vel. Orgelinu var lokað fyrir mér er ég var lítill enda mjög dýrmætt og auðvitað ekki opið fyrir gutta sem rétt gat teygt sig upp undir það, jafnvel ýtt nótunum upp á við og skemmt. Þetta þróast eftir að ég kemst af óvitaaldrinum og fæ að stauta eitt- hvað á orgelið. Hér nærri var maður sem spilaði í fjölda mörg ár á tvöfalda harmoníku, sá var búinn að gleðja marga, hann hét Jón Bjarnason. Böllin byrjuðu oftast kl. 23, þau er voru stór í sniðum stóðu fram á bjartan dag, ekki endilega um helgar jafnvel í miðri viku. Þá var sent í hús og smalað fólki þegar búið var að útvega spilara. Fyrst spila ég undir dansi á orgel, ég man að ég var í stutt- buxum og nálægt fermingar- aldrinum, fékk tvær krónur fyrir, mér fannst það stórfé þá. Hvenær kemur að harmoníku- leiknum? Frændi minn bjó í næsta húsi, hann eignast norska harmoníku fimmfalda sem kallað er, um ferm- ingu fékk ég hana stundum lánaða og er að fikta þetta en varð aldrei annað en bölvað staut, seinna fékk ég sjálfur hnappaharmoníku 80 bassa m. norskum gripum en átti þá nikku stutt, asnaðist til að láta hana því píanó harmoníkur voru að koma á markaðinn og var svoddan asni að skipta á henni og píanónikku, eitthvað virtist það spennandi eða í móð kannski. Píanónikkan reyndist vera tuska á móti hinni sem ég átti, en var fljótur að tileinka mér pianóborð, orðinn dálítið vanur orgelinu. Já ég var fenginn hingað og þangað þar sem fólk vantaði músík, fyrirmynd í lagavali var það sem maður heyrði utan að frá og fyrrnefndur Jón, hann spilaði mikið þessi norsku lög, polka og valsa. Þú hefur spilað mikið og víða? Já á tímabili gerði ég það, bæði slæddist maður hér uppfyrir fjall, 4

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.