Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 10

Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 10
Ásgeir Gunnarsson á starfi félagsins sem slíkri, en fé- lagar þó spilað fyrir aldraða á Suðurnesjum og verður því haldið áfram. Er starfsemi hófst í haust var ákveðið að skemmtifundir félags- ins væru haldnir annan sunnudag hvers mánaðar, en aðrar skemmt- anir hafa ekki verið haldnar á okk- ar vegum. Æfingar hófust ekki að ráði hjá félaginu fyrr en eftir ára- mót og höfum við æft einusinni í viku, en svo hafa félagar æft eins oft og þeir geta sín á milli. Stjórnin hefur talað um ferða- lag en ekki tekið neina ákvörðun, þó geri ég fastlega ráð fyrir því að félagar mæti á afmælishátið S.Í.H.U. Þegar Félag Harmoníkuunn- enda á Suðurnesjum var stofnað hafði fæðing þess gengið erfið- lega. Fyrir 10 árum, eða um 1980/81 hafði ég samband við Kristin Kaldal. Ég hafði heyrt að hann spilaði á harmoníku og drap ég á þessu máli við hann að stofna félag á Suðurnesjum, en þá hafði ég starfað með F.H.U.R. um nokk- urt skeið. Er ég fluttist til Keflavík- ur dalaði áhuginn að sækja æfing- ar og skemmtifundi til Reykjavík- ur. Það var svo í árslok 1989 að nokkrir spilarar hittust á veitinga- húsinu Ránni í Keflavík, að þeir tóku ákvörðun um stofnun harm- oníkufélags á Suðurnesjum. Margt hefði mátt fara betur, en svona á fyrsta starfsári get ég verið þokkalega ánægður, en við eigum margt eftir ólært af öðrum félög- um hvað viðkemur skemmtunum og öðrum málum sem snúa að fé- lagsstarfinu. Minnistæðast frá síðasta ári hjá mér og líklegast öðrum var lands- mót S.H.Í.U. Ég kom þar í fyrsta sinn og var mikið hrifinn af því sem ég heyrði og sá, og það væri of langt mál að rekja það allt í grein sem þessari. Okkur hjá F.H.U.S. vannst ekki tími til að vera með, en að vera með á næsta landsmóti er Harmonikuliðið starfar sem hlutafélag, skrásett sem „p/f Draguspæl”. Félagið á öll tæki (hljóðnema, magnara hljóðjafn- ara og fl.) Venjulega spilum við 4-5 sinnum á ári fyrir dansi, og ganga launin til félagsins sem er notað til að greiða rekstrarkostnað, vexti tryggingar og fl. Um nokkurt skeið hafa nokkrir af félögunum viljað hætta og segja sig úr félag inu. Þeir hafa unnið saman í smærri hópum við að leika fyrir dansi. Á aðalfundi í vetur seldu 7 þeirra okkur hlutabréf sín. Þannig myndum við 5 p/f Draguspæl og Harmonikiliðið: Flóvin Jacopsen, harmoníku, formaður Kristian Meitil, harmoníku Gullak Hansen, gítar/söngur Andrass Danielsen gítar/söngur Trygve Restorff tromm- ur/söngur I vetur höfum við leikið á nokkrum dansleikjum. í nóvemb- engin spurning. Einnig mætti ég á mót blaðsins Harmoníkunar í Galtalækjarskógi og þarf ekki að hafa mörg orð um það frekar en landsmótið, því sá sem fer einu sinni á mót sem þessi reynir örugg- lega að fara aftur og aftur. Ásgeir Gunnarsson formaður er vorum við í Danmörku, þar sem við lékum í Föroyjahúsinu og fyrir Færeyingafélagið í Sorö, og einnig vorum við nýlega í sjónvarpinu. Oftast æfum við á miðviku- dagskvöldum, en hinir 7 á þriðju- dagskvöldum. Við höfum verið beðnir um að spila á minningarhá- tíð 9-12 maí, í Tornby á norður Jót- landi og í sömu ferð munum við spila i Föroyahúsinu og einnig í Hirtshals. Árin 1988 og 1989 fórum við á harmoníkumót í Bindslev, og var hugmyndin að fara aftur á þessu ári, en það er þó óvíst. Við spilum í útvarpið á næstuni, og í fram- haldi af því er hugmyndin að gefa út snældu. Við í okkar hópi höfum oft rætt, að gaman væri að fara til ís- lands, og kannski spila einhvers- staðar á dansleik. Hvort það verð- ur í ár, er ekki vitað. Við biðjum að heilsa öllum harm- oníkuleikurum á íslandi. Kristian Meitil Draguspœl og Harmoníkuliðið frá Þórshöfn í Fœreyjum frá vinstri: Andrass Dani■ elsen bassa, Gullak Hansen gítar, Trygve Restorff trommur, Flóvin Jacobsen harmon- íka og Kristian Meitii harmoníka Harmonikuliðið Tórshavn. Færeyjum 10

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.