Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 5

Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 5
þá gjarnan með harmoníkuna á- bakinu áður en vegurinn kom. Einu sinni var ég fenginn til að leika á þorrablóti í Hjaltalundi, fékk með mér karlskaufa sem fylgdarsvein til að bera harmoník- una, en fengum á okkur kafald á fjallinu og þurftum að skríða upp úr giljunum í djúpri fönn, þetta var geysi erfitt en hafðist. Menn tóku vel á móti okkur, vorum dekraðir á alla lund. Að þorrablótinu loknu er við undirbjuggum heimferð, fannst mér ómögulegt að setja þetta nokkuð eftir allt dekrið, og er við rétt erum að fara kemur bóndi nokkur og stingur að mér brenni- vinsflösku frekar en ekkert. Að fá slíkt fannst manni gott, launin voru stundum svona fyrir að spila heila nótt, fá litla hvíld og allt þetta ferðalag. Sögubrotið segir kannski eitthvað um hvað harmo- níkuleikarar fengu fyrir vinnu sína á þessum tíma. I tilfelli sem þessu þurftum við að keyfa alla götuna út sveit og yfir Njarðvíkurskriður til Njarðvíkur yfir Gönguskarð og þar áfram, um 5—6 tíma ganga hvora leið í vondu veðri, þetta mátti maður hafa. Harmoníkan sem meðferðis var í áðurnefndri ferð var þriggja kóra Hohner 120 bassa, nú í eigu annars stráksins míns, hún hefur mátt þola margt gegnum tíðina, einu sinni var stigið ofan á borðið á henni í Hallormsstað, en ekki sá högg á vatni, hefur líka gengið kaupum og sölum milli manna í tvígang og bæði skiptin „gjald- miðilinn“ brennivín. Svo reiður varð ég einu sinni að ég henti henni frá mér á jörðina, sá heldur ekki á henni. Þá lendir maður í að koma upp heimili og jafnframt inn í lægðinni er harmo- níkan var sett til hliðar, þá spilaði ég litið. Þegar harmoníkufélögin voru stofnuð og fólk fór að átta sig á að þetta er líka músík fer allt af stað aftur. Nú má sjá sömu taktana sem gamla kynslóðin hafði, það er notalegt að finna þetta. Er ég skrapp suður fór maður alltaf á þessa gömludansastaði til að nálgast svona gamla tímann, nokkuð skrítið að koma utan af landi og hitta fortíðina fyrir þar þegar allt var dottið niður á lands- byggðinni víðast hvar. Árið 1983 kemst ég í samband við þjóð- dansahópinn Fiðrildin á Egils- stöðum, þeir fóru að rella í mér að spila fyrir þá. Það endaði með ferð til Rússlands, auðvitað geysilegt ævintýri. Forsprakki hópsins er Þráinn Skarphéðinsson og hefur verið í mörg ár. Við fórum fyrst til Mosku, síðan með lest að kvöldlagi vestur eftir öllu Rússlandi til Eystland, skemmtileg nótt spilað og sungið alla leið. Á dagskrá voru íslenskir þjóð- dansar og gömlu dansarnir, ég hafði aldrei lent í svona áður, því skítnerfus samt alltaf látinn fara inn á undan, spilandi mars, á eftir kom hópurinn marserandi inn. Annað hvort var að hrökkva eða stökkva ég beit á jagslinn og þetta slampaðist. Ferðin tók 9 daga í Eystlandi, við ókum þar um allar trissur, dönsuðum á torgum og gatnamótum. Harmoníkan í nútíð og framtíð. Hún lifir og dafnar í framtíð- inni, ég held það hljóti að vera. í raun er harmoníkan miklu vold- ugra hljóðfæri en mörg önnur sem notuð eru í danshljómsveitum. Harmoníkufélögin hafa unnið mikið þrekvirki, og mjög gaman að koma í svona félagsskap, allir eru tilbúnir að gera það er þarf. Nýkominn af landsmóti S.I. H.U. sl. sumar er maður eins og hundur sem búið er að smala meö marga daga. Fólk er mjög ánægt eftir harmoníkuskemmtanir sem haldnir eru hér, það er minni- máttarkennd að vera sífellt að panta rándýrar hljómsveitir, þær ætla allt að drepa úr hávaða, þá er allsfjarri sú ánægja sem við leitum að. Sérstaklega er mér mynnisstæð skemmtun sem haldin var á vegum slysavarnafélagsins hér, við spiluðum þrír og allt fór strax af stað í upphafi. Maður eftir mann sagði, hvað er verið að útvega músík annarsstaðar frá, svona ættu böllin alltaf að vera. Ævinlega er verið að rugla í hlutunum, ekki er hægt að halda böll í félagsheimilinu af því hljóm- sveitirnar þykja of dýrar. Niðurlagsorð. Þegar ég tók viðtalið við Helga býr hann sig undir að spila með danshópnum á svokallaðri „Bryggjugleði” á Reyðarfirði, sýndir eru söng og leikdansar fyrri tíma ásamt venjubundnum slögurum. H.H. Félagarnir Guttormur Sigfússon og Helgi spila mikið saman. Erfitt er að hittast til œfinga því 80 km. eru á milli þeirra, oft ófærð á vetrum, þeir senda hvor öðrum snœldur og svo „rottum við okkur saman til að æfa,” segir Helgi. 5

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.