Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 17

Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 17
Anders Larsson Anders Larsson, 18 ára. Anders Larsson er ættaður frá Borlánge í sænsku Dölunum og byrjaði fjögurra ára gamall að spila lög Carls Jularbo eftir eyr- anu. Anders er sannkallað undra- barn, sem kom fram á harmoníku- hátíð í Dölunum, þegar hann var á sjöunda árinu og hvarf þá að mestu á bakvið hljóðfærið, sem skilaði frá sér í léttum stíl, lögum Jularbo og annara snillinga. And- ers hefur svokallað fullkomið tón- eyra og spilar allt frá vögguvísum til Sundqvist og Galla-Rini eftir eyranu! Þar að auki leikur hann með sérstaklega líflegum og per- sónulegum blæ, sem vekur athygli. Hann hefur oft komið fram í út- varpi og sjónvarpi, bæði i Svíþjóð og Noregi og er mjög eftirsóttur harmoníkuleikari í Skandinavíu. Það er því sérstakt lán að hann „skyldi vera á lausu” tvær vikur í júní og geta heimsótt ísland. Anders lék inn á fyrstu snæld- una þegar hann var 10 ára gamall og hefur síðan leikið inn á nokkrar í viðbót, m.a. með Sigrid Öjefelt. Þrjú ár í röð vann hann harmon- íkukeppni, sem haldin er árlega í Varberg í Svíþjóð. Sumarið 1990 vann hann tónlistarkeppni, sem efnt var til í Furuvik með laginu „Bálgiadsváng” og hefur einnig hlotið tónlistarstyrk. Anders hefur leikið mikið með bæði Sigr- id Öjefelt og Anniku Andersson. Eyþór H. Stefánsson Gautaborg Annika Andersson Annika Andersson, 17 ára. Annika á heima á sænsku vest- urströndinni, sunnan við Gauta- borg í lítilli borg sem heitir Tráslövsláge. Faðir hennar leikur á harmoníku og gaf henni eina slíka um það leyti, er hún hóf skóla- göngu. Hún var ekki nema sjö ára, þegar hún hóf reglubundið nám á harmoníku og kom fyrst fram í sjónvarpi þegar hún var 13 ára. Árið 1988 lék hún inn á snældu þar sem m.a. er að finna tónlist Deiro og Frosini. Hún hefur tekið þátt í Fros- ini-tónleikum og fékk á þessu ári sænska Frosini-styrkinn. Annika hefur léttan stíl í sinni spila- mennsku og sést oft á harmoníku- mótum hér í Svíþjóð, og spilar oft með Anders Larsson. Eyþór H. Stefánsson Gautaborg Sigrid Öjefelt, 29 ára. Sigrid er fædd og uppalin í Borlánge í sænsku dölunum og byrjaði að spila á píanóharmon- íku, þegar hún var þriggja ára. Faðir hennar var ákveðinn í að gera hana að snillingi og eftir nokkur ár tókst henni að þrasa út úr honum hnappaharmoníku. Líkaði henni betur við þetta hljómborð og framfarirnar létu ekki á sér standa. Hún var farin að leika lög eftir Pietro Frosini þegar hún var átta ára. Hún segir sjálf að hún þurfi helst alltaf að hafa nót- Sigríd Öjefelt urnar með sér, en geti þó af og til lært einhverja „finessu” eftir eyr- anu af spilafélögum sínum Conny Báckström og Anders Larsson. Sigrid hefur fágaðann tónlistar- smekk og lætur ekkert óvandað frá sér fara. Árið 1988 lék hún tónlist eftir Deiro og Frosini inn á snældu ásamt Anders Larsson. Fyrir tveimur og hálfu ári síðan flutti hún til Kalmar, er félagi í harmon- íkuklúbbnum þar og spilar mikið með Conny Bákström. Hún er fé- lagi og ritari í „Frosinisállskapet. Harmoníkuleikarar, sem hún heldur uppá eru: Anders Larsson, Lars Ek og Toralf Tollefsen. Eyþór H. Stefánsson Gautaborg Conny Báckström, 45 ára Conny er fæddur á syðri hluta Ölands, sem er eyja í sunnanverðu Eystrasalti. Móðurafi hans gaf honum harmoníku, þegar hann var 6 ára gamall. Á árunum milli 1950-60 sat harmoníkutónlist í ör- uggu hásæti í Svíþjóð. Svo kom „Bitlaöldin” 1960-1978 með raf- magnsgítara og harmoníkutónlist- in hvarf næstum af sjónarsviðinu. Árið 1979 varð hann virkur félagi í harmoníkufélaginu í Kalmar, og starfar nú sem stjórnandi félags- ins. sem æfir með 12 spilara einu sinni í viku. Síðan 1985 hefur hann komið oft fram á harmon- 17

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.