Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 19

Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 19
Mmning Gísli Guðlaugsson, Steinstúni Gísli á Steinstúni eins og hann var jafnan kallaður meðal fólks, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 27. janúr 91. Gísli var fæddur á Steinstúni og ól allan seinn aldur þar, utan nokkur ár er hann dvaldi á Hrafnistu. Mig langar i örfáum orðum að minnast fóstra míns og móðurbróður, sem reyndist mér eins og besti faðir á bernskuárum mínum. Gísli stundaði hinn hefð- bundna búskap ásamt sjó- mennsku, einnig ýmsa aðra vinnu fyrir sveitungana, lagði t.a.m. miðstöðvar og breytti kolavélum þannig að hann útbjó röragrind í eldhólfið og tengdi ofnum, þannig nýttist stöðugur hiti kolavélanna til upphitunar í öðrum vistar- verum. Hann var sífellt að betrum- bæta eitthvað heima fyrir, allt varð að vera í góðu ásigkomulagi og nýtnin var strangt boðorð. Gísli var uppalinn við hina rammíslensku bænda og alþýðu- menningu við nyrsta haf, þar sem gleðin varð að koma frá manni Harmoníkan 5 ára. H.H. Spyr í síma, hvernig líkar þér blaðið? Mér líkar blaðið stórvel, útgáfa þess var löngu tímabær. Blaðið er eini vettvangur í rituðu máli til handa harmoníkuunnendum að koma skoðunum sínum á fram- færi, það markar tímamót í kynn- ingu á harmoníkunni, er fyrst til að flytja fréttir af starfi okkar. Blaðið verður að halda velli, það er skylda harmoníkuunnenda að búa blaðinu rekstrargrundvöll. Afla þarf fleiri áskrifenda og gera blaðið víðlesið. Til hamingju með 5 ára afmæl- ið, ég óska ykkur velfarnaðar. Asgeir S. Sigurðsson form. H.V. sjálfum. Hann unni góðri tónlist og þá sérstaklega harmoníkutón- list. Sína fyrstu harmoníku eignast Gísli 13 ára gamall og náði fljótt tökum á henni. Á Ingólfsfirði lagði hann sig fram um að læra sem fjölbreyttasta dansmúsík af Norðmönnum sem þar dvöldust á síldarárunum og alla tíð leitaði hann að nýjum lögum. Gísli samdi nokkur lög, alls 7 á efri árum (um 1980) flest valsa sem bera nöfn úr heimabyggðinni og eru komin á nótur. Mikils virði var að hafa mann í sveitinni sem leikið gat á harm- oníku fyrir dansi, Gísli lét ekki á sér standa á mannfögnuðum sveitarinnar að spila, og það gerði hann reyndar áratugum saman, hef ég marga heyrt minnast þeirra stunda með söknuði. Er ég fór að bera meira skyn- Bandaríkjamaður frá Texas Eddie Chavez skrifaði nýlega til okkar til að fá eintak af blaðinu. Hann er harmoníkuleikari og safnar auk þess öllum plötum og upptökum af harmoníkutónlist sem hann kemst yfir. í bréfi full- yrðir hann, að hann eigi alla harm- oníkutónlist sem hafi verið hljóð- rituð frá upphafi í Bandaríkjun- um. Hann hefur einnig ásamt fleirum sett saman bók er nefnist „THE GOLDEN AGE OF THE ACCORDION” . Það tók 7 ár að safna efni í bókina sem er yfir 400 blaðsíður með myndum og marg- víslegum fróðleik um harm- oníkuna. bragð á tónlist og tónlistarflutning skynjaði maður hvað Gísli var taktviss og tæknilegur á hljóðfæri sitt, hann var góður fulltrúi þeirra er tvöfalda harmoníkan tilheyrði. Tólf ára gamall fluttist ég frá Steinstúni þá gaf hann mér tvö- falda harmoníku, hana á ég enn. Gísli var sterkur persónuleiki, hafði mikla þjóðerniskennd og ís- lenska tungu mátti aldrei misnota eða misvirða, hann lagði oftsinnis Orðabók Háskólans lið. Ég tel það mina gæfu að hafa alist upp á Steinstúni hjá Gísla og Gíslínu Valgeirsdóttir konu hans og ömmu Ingibjörgu Jóhannsdóttir. Minningarnar eru hlýjar frá uppvaxtarárunum ég veit það fyrir víst að hann fóstri minn á þar hlut að máli. Gísli og Gíslína áttu fjóra syni. í húskveðju á Steinstúni lék ég á harmoniku lagið Brimströndin heima eftir Theodorakis og með ættingjum er sungu Blessuð sértu sveitin mín, lék ég undir. Gísli var jarðsunginn í Árnes- kirkju 2. febrúar. Minningin lifir um einstakt ljúf- menni. Hilmar Hjartarson. Viðtal við Gísla er í 2. tbl. 88 — 89, 3.árg. af Harmoníkunni. í minningu um afa. Fæddur 3.2. 1899. Dáinn 27.1. 1991. Lítil stúlka, áhyggjulaus skoppaði og hló var ljósið þitt og harmoníkan hljómaði hvatti hjartað mitt neistinn var kyrr og leiftraði í augum þínum. Orðin kona, orðin stór fjarlægðist þig með árunum blossinn horfinn úr augunum lífsneistinn veiktist og dó aðeins minningin lifir, enn heyri ég hljóminn og gamla sönginn þinn. 29.jan. 91. Ingibjörg Ágústsdóttir, frá Steinstúni. 19

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.