Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 15

Harmoníkan - 30.05.1991, Blaðsíða 15
Fullkomið hljóðfæri Fjögra ára að aldri var mér kennt að spila á „cornet“ (sem svipar til trompets), og sjö ára hóf ég nám á harmoniku. Seinna lærði ég á fleiri hljóðfæri eins og t.d. flautu og klarinett. Þegar fram liðu stundir gerði ég mér grein fyrir kröftugri uppbygg- ingu harmoníkunnar tónfræði- lega, sem leiddi til þess að ég beindi áhuga mínum eingöngu að harmoníkunni. Flautuleikarinn getur aðeins leikið eina nótu í senn og til að geta komið fram, þarf hann annan hljóðfæraleikara sér til aðstoðar. Á harmoníkuna er hinsvegar hægt að spila laglínu og samhljóma tóna í einu með hægri hendi á sama nótnaborð. Ennfremur hef- ur vinstri hönd valmöguleika á eintóna og fleirtóna (hljóma) nótnaborði sem gerir harmoník- ■ una fullkomið hljóðfæri. Það skal þó viðurkennt að hægt er að leika á fiðlu tvo eða fleiri tóna samtímis, en hún er afar erfitt hljóðfæri og vandmeðfarin. En — eins og flautan, þá þarf hún að- stoðarhljóðfæri t.d. á hljómleik- um. Á píanóið er hægt að leika marga tóna samtímis sem gerir það að „fullkomnu" hljóðfæri, en það hefur samt þá annmarka að ekki er hægt að flytja það með sér og er því ekki alltaf við hendina. Hljómborðið á píanóharmoník- unni er góð undirstaða til að læra hækkaðar og lækkaðar nótur eins og það er sett upp með hvítum og svörtum nótum. Stradella hljóm- borðið fyrir vinstri hendi er tilval- inn til að læra fimmundarhringinn og reglur formerkja sem stjórna tóntegundunum. Nemandi á harmoníku lærir ósjálfrátt á hag- sýnan hátt reglurnar með því að leika upp og niður hljómborðið. Þannig hefur harmoníkan bæði píanó-hljómborð og Stradella- hljómborðið en í bassa er bæði hægt að ná fram í hljómum með því að þrýsta á eina nótu og eins er hægt að leika eintóna. Náunginn sem fann upp þetta hljóðfæri hlýt- ur að hafa verið snillingur. Frá þeim tíma þegar harmoník- an fyrst náði athygli almennings, var fundið út að ákveðinn hluta hverskonar tónlistar var hægt að leika á harmoníkuna. Ósam- hljóma (ómstríða) tónlist er sér- hæfðari fyrir eintóna bassaborð (Free bass system). Harmoníkan er viðkvæm því hún getur skilað tilfinningum okkar í gegn um tónlistina. Harmoníkan er tilvalin til þjálf- unar í tónheyrn þar sem hún hefur stöðugan tón og heldur vel tón- hæð. Harmoníkan á stuttan en glæsi- legan æviferil og er sífellt meira áberandi í öllum tegundum skemmtunar. Framfarir í örgjafa- tækni hafa bætt við annarri kyn- slóð harmoníkunnar, og nú er harmoníkan meira áberandi í hljómsveitum, ýmist sem hluti hljóðfæraskipunar eða sem ein- leikshljóðfæri. Þegar ég var í Róm á Italíu var mér boðið inn á einkaheimili og hafði ég harmoníkuna með mér. Þarna voru fleiri gestir, og eftir að ég hafði leikið nokkur lög, kom til mín kona og gaf mér það besta hól sem ég hef fengið er hún sagði: Þú leikur á harmoníkuna eins og hún væri hluti af sjálfum þér. Því vil ég segja við alla sem eru að læra á harmoníku: Hugsaðu ekki um harmoníkuna sem fullt af nótum og hnöppum til að þrýsta á, og belg til að draga sundur og sam- an. Mannleg tilfinning verður að liggja að baki til að gefa harmon- íkunni líf. Hún getur verið per- sónuleg. — Þinn persónuleiki ef þú vilt. Gefðu harmoníkunni það besta sem þú átt og hún mun launa þér með sínu besta. Anthony Galla-Rini (lauslega þýtt úr ACCORDION WORLD) Elsabeth Moser Vagnsson kenn- ari hennar er mjög framsækin kona, hún er orðin víðkunn sem harmoníkuleikari og kennari. Nemendur hennar eru frá mörg- um löndum m.a. héðan frá ís- landi, þá hafa þekkt tónskáld samið fyrir harmoníkuna fyrir hennar tilstilli og Hrólfs manns hennar. Hann hefur komið upp hljóðveri í Hanover og þess er að vænta, að þaðan komi upptökur með fremstu harmoníkuleikurum og plata Hrólfs „Black and White” var hljóðrituð þar með framúrskarandi árangri. Stundin hefur liðið hratt með þessum sendiboða frá íslenska harmoníku „landnáminu” í Haover, hún af- þakkar sem fyrr aðstoð við að bera harmoníkuna þungu, sem að hætti rússneskra er flutt í skinn- sekk; axlar byrði sín léttilega og kveður með bros á vör. Högni Jonsson 15

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.