Harmoníkan - 30.05.1991, Page 6
Félögin á
Frá upphafi hafa nöfn harmon-
íkufélaga landsins, ásamt nafni
heimilisfangi og símanúmeri for-
manns verið á blaðsíðu tvö. í til-
efni þess að nú er fimmta árgangi
blaðsins að ljúka, skrifuðum við
öllum harmoníkufélögum lands-
ins, auk Færeyja staðlað bréf og
báðum um fréttir og upplýsingar
frá hverju félagi. I blaðinu eru að
finna Öll svör sem okkur bárust og
viljum við þakka góð viðbrögð og
vonum að lesendur verði fróðari
um harmoníkufélögin en áður.
Þ.Þ.
Harmoníkuunnendur
Vesturlands
Harmoníkuunnendur Vestur-
lands var stofnað 7. apríl 1979 í
gamla skólahúsinu á Hvanneyri og
var fjöldi stofnfélaga 12. Félags-
menn eru úr Mýra og Borgarfjarð-
arsýslu auk Snæfellsness, en í dag
eru þeir orðnir 55. Núverandi
stjórn félagsins skipa:
Gunnar Gauti Gunnarsson
formaður
Guðrún Jóhannsdóttir gjaldkeri
Steinunn Pálsdóttir ritari
Magnús Guðbjarnarson með-
stjórnandi
Sigurgeir Gíslason með-
stjórnandi
Félagsstarfið í vetur hefur verið
með hefðbundnu sniði og fastir
liðir eins og venjulega. Allt frá
stofnun félgsins hafa verið haldnir
haust og vordansleikir í samkomu-
húsum sveitanna og í Hótel Borg-
arnesi. Framundan er dansleikur í
Hótel Borgarnesi 11. maí og er
ágætt að það komi hér fram fyrir
þá sem hafa áhuga á að koma.
Eins og oft áður koma til okkar
harmoníkuleikarar úr öðrum fé-
lögum, en þeir hafa verið ósparir
að taka með sér nikkurnar og er
ávallt tilhlökkunarefni að fá slíka
gesti í heimsókn.
Annan sunnudag í mánuði
hverjum eru eru haldnir svokallað-
6
landinu
ir skemmtifundir þar sem harm-
oníkan er þanin af félagsmönnum
og húsráðendur sjá um veitingar.
Þessir fundir hafa til skiptis verið
haldnir hja félagsmönnum eða á
Hvanneyri. I vetur höfum við ver-
ið 7 sem komið hafa vikulega til
æfinga, en þar hefur ýmislegt ver-
ið á dagskrá en aðeins nokkur lög
æfð reglulega. í vetur réðum við
ekki stjórnanda eins og undanfar-
in ár og ætluðum að prófa hvernig
þetta gengi án hans, þannig að
hver hefði sitt fram að leggja og
reynt að koma til móts við sem
flesta á æfingum. Þetta hefur í
reynd komið þannig út að ýmislegt
hefur verið á dagskrá, en aðeins
nokkur lög verið æfð eitthvað að
ráði siðustu tíma.
í haust heimsóttum við ná-
granna okkar í Nikkólínu í Dala-
sýslu og tóku þeir á móti okkur
með ágætum í Dalabúð, í Búðar-
dal. Einnig fóru nokkrir okkar á
árshátíð F.H.U.R. og skemmtu sér
hið besta.
Félagið hélt að gömlum sið upp
á Góugleði 23. mars með öllu því
sem árshátíð prýðir, fyrir félags-
menn og gesti þeirra í félagsheimili
hestamanna í Borgarnesi. Þeir sem
að þessu stóðu voru þokkalega
ánægðir með þátttökuna og und-
irtektir, því þótt félag okkar sé lít-
ið þá komu um áttatíu manns.
Nú hefur verið stiklað á stóru í
félagsmálum okkar í vetur, en fyr-
ir utan vorballið er síðasti
skemmtifundur vetrarins ennþá
eftir og að þessu sinni verður hann
haldinn með pompi og prakt hjá
okkar ágætu félögum Rafni og
Tótu í Borgarnesi.
Fyrirhugað er í tengslum við tíu
ára afmæli S.Í.H.U. að hingað til
lands komi fjórir harmoníkuleik-
arar úr Svíaríki og að þeir fari vítt
og breitt um landið. Þeir verða hér
15. júní í sumar og halda tónleika
í Hótel Akranesi en á eftir verður
dansleikur.
Þar með er dagskrá félagsins
tæmd að þessu sinni, en þeir sem
Cunnar Gauti Gunnarsson
hafa komið á hátíð blaðsins
Harmoníkunnar í Galtalækjar-
skógi hlakka til þess viðburðar ár
hvert og við hvetjum fleiri til að
láta sjá sig, því það er von okkar
og trú að þetta eigi eftir að verða
fastur liður á hverju sumri, ef ekki
í Galtalækjarskógi þá bara á ein-
hverjum öðrum fallegum stað.
Til blaðsins Harmoníkan. Til
hamingju með 5 ára afmælið og
þennan áfanga í lífi þínu. Bestu
framtíðaróskir.
Þú lengi lifir...
f.h. Harmoníkuunnenda Vest-
urlands
Gunnar Gauti Gunnarsson
Harmoníkufélagið
Nikkólína
Þann 7. nóvember 1981 var
Harmoníkufélagið Nikkólína
stofnaö og voru stofnfélagar 16 en
félagar í dag eru 20. Núverandi
stjórn er þannig skipuð:
Ríkharður Jóhannsson
formaður
Sigurður P. Guðjónsson og
Lárus Jóhannesson
Félagið fór í heimsókn í haust til
Harmoníkufélags Rangæinga og
voru móttökur hinar myndarleg-
ustu, en félögin héldu sameigin-
legan dansleik í Gunnarshólma.
Haldin hafa verið þrjú
skemmtikvöld á vegum félagsins,
tvö að Staðarfelli i samvinnu við
kvenfélagið Hvöt og eitt í félags-
heimili Suður-Dala í samstarfi við