Harmoníkan - 30.05.1991, Page 8
Sigurður Indriðason
eftir var dans stiginn skamma
stund, þar sem ungdómurinn
skemmti sér ekki síður en þeir full-
orðnu. Stjórnarfundir hafa verið
haldnir reglulega í vetur. Æfingar
hjá stórsveit félagsins hafa legið
niðri í vetur vegna mikilla anna hjá
stjórnandanum Atla Guðlaugs-
syni. Á þessari stundu eru ekki
fyrirhuguð nein ferðalög á vegum
félagsins, en það hefur komið til
tals í samvinnu við H.F.Þ. að halda
útileguhelgi (norðlenskt Galta-
lækjarmót) að Breiðumýri í
Reykjadal síðustu helgina í júní í
sumar.
Með harmoníkukveðju
Jóhannes B. Jóhannsson ritari
Harmoníkufélag
Þingeyinga
Félagið var stofnað 4. maí 1978
og hét í upphafi „Félag Áhuga-
manna um Harmoníkuleik” og
voru stofnfélagar 55. Nafnþreyt-
ing var samþykkt á aðalfundi 15.
maí 1982 en nú eru 122 í félaginu.
Stjórn H.F.Þ. í ár skipa:
Sigurður Friðriksson formaður
Hákon Jónsson ritari
Kristján Kárason gjaldkeri
Rúnar Hannesson meðstjórn-
andi og
Jón Sigurjónsson með-
stjórnandi
Dansmúsíkhópar félagsins hafa
æft vel í vetur. Fjórir félagar úr
Reykjadal og af Húsavík hafa æft
saman eftir nótnalestri í vetur.
Komu þeir fram á árshátíð okkar
23. mars s.l. Tvö kaffikvöld hefur
félagið haft í vetur, 2. desember í
Sólvangi, Tjörnesi, hið síðara 3.
mars i húsi Sjálfsbjargar á Húsa-
vík. Bauð félagið þá krökkunum í
Tónskóla Húsavíkur, þeim sem
eru að læra á harmoníku. Voru
þau gleðilega mörg og sum komin
býsna vel á veg. Varð þetta hið
ánægjulegasta kvöld og er fyrir-
hugað að endurtaka það.
Félagið hefur séð um dansmús-
ík á tveimur böllum í félagi við vini
okkar úr F.H.U.E. Það fyrra var á
Akureyri, hið síðara í Bárðardal
og er áhugi fyrir að halda þessu
samstarfi áfram.
Árshátíð okkar héldum við sem
fyrr segir 23. mars, á Breiðumýri
Sigurður Friðriksson
og tókst hún í alla staði vel. Ferða-
lag er fyrirhugað næsta sumar, en
ákvörðun um hvert farið verður,
hefur ekki ennþá verið tekin.
Sigurður Friðriksson formaður
Hákon Jónsson ritari
Harmoníkufélag
Héraðsbúa
Félagið var stofnað 30. mars
1984 og voru stofnfélagar 24 tals-
ins. Fjöldi félaga á þessu starfsári
eru 58 og núverandi stjórn H.F.H.
skipa eftirtaldir aðilar:
formaður Guttormur Sigfús-
son, Krossi, Fellahreppi
gjaldkeri Gylfi Björnsson, Hofi,
Fellahreppi
ritari Jón Sigfússon, Lagarfelli
14, Fellabæ.
Starfsemi félagsins í vetur hefur
verið með svipuðu sniði og undan-
farin ár. Síðast i nóvember var
skemmtikvöld norðan Jökulsár á
Dal, nánar tiltekið í Hálsakoti,
sem er samkomuhús í Jökulsár-
hlíð, en á því svæði eru búsettir
nokkrir félagsmenn sem frá upp-
hafi hafa verið vel virkir í starf-
semi H.F.H.
Á gamlárskvöld var harmon-
íkudansleikur haldinn í Fellaskóla
sem er í Fellabæ á vesturbakka
Lagarfljóts, var hann vel sóttur og
þótti takast vel. Fyrstu helgi mar-
smánaðar var svo skemmtifundur
í áðurnefndum skóla, og var með
svipuðu sniði og sá sem haldinn
var fyrr í vetur í Hálsakoti. Á þess-
um skemmtifundum koma félags-
menn saman, drekka kaffi, spila
hver fyrir annan, einleik, dúett, og
hópspil. Þá er sitthvað fleira til
skemmtunar og dans á eftir.
Þá hafa nokkrir félagsmenn bú-
settir í Egilstaðabæ, Fellabæ og
næsta nágreni komið reglulega
saman frá áramótum, líkt og und-
anfarin ár og æft prógram fyrir
árshátíð sem er fastur liður í starfi
félagsins. Ennfremur hafa nokkrir
félagar búsettir norðan Jökulsár á
Dal komið saman og æft dans-
músík fyrir áðurnefnda árshátíð,
sem verður líkt og á síðasta ári
Gultormur Sigfússon
sameiginleg árshátíð Karlakórs
Fljótsdalshéraðs og H.F.H.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort farið verður í ferðalag í sum-
ar á vegum félagsins.
Þeir aðilar sem mótað hafa
starfsemi H.F.H. frá stofnun þess
tóku þann kostinn að hafa starfið
í föstum skorðum og ekki of um-
fangsmikið, því það er nú einu-
sinni svo að tiltölulega fáir eru
8