Harmoníkan - 30.05.1991, Síða 9

Harmoníkan - 30.05.1991, Síða 9
virkir þó fleiri vilji taka þátt í leiknum þegar undirbúningi er lokið. Og ef þreyta kemur í liðið þarf ekki að spyrja að leikslokum. Ýmsir hafa látið í ljós þá skoð- un að sú mikla uppsveifla harm- oníkunnar sem hefur átt sér stað síðasta áratuginn sé nú að fjara út og starfsemi félaganna i landinu á næstu árum muni mótast meira af því að halda fengnum hlut. Vel má það vera rétt ef yngri kynslóðin sýnir ekki hljóðfærinu áhuga. Ég vona hinsvegar að í framtíðinni muni harmoníkan skipa þann sess meðal annara hljóðfæra sem henni ber. Guttormur Sigfússon formaður Harmoníkufélag Rangæinga Aðalhvatamaður að stofnun Harmoníkufélags Rangæinga var Valdimar J. Auðunsson á Grenstanga. Drögin að stofnun félagsins voru lögð í sjötugsaf- mæli hans 11. desember 1984. Fé- lagið er svo formlega stofnað 14. apríl 1985 í Gunnarshólma og voru stofnfélagar 126. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu: Valdimar J. Auðunsson formaður Sigrún Bjarnadóttir ritari Grétar Geirsson gjaldkeri Guðmar Ragnarsson með- stjórnandi Gunnar Guðjónsson með- stjórnandi í dag er félagatalan 178 manns. Núverandi stjórn skipa: Sigrún Bjarnadóttir formaður Óli E. Adólfsson ritari Grétar Geirsson gjaldkeri Jón Einarsson meðstjórnandi Sigmar Sigurbjörnsson með- stjórnandi Starfsemin í vetur hefur verið lífleg. Samæfingar eru einu sinni í hálfum mánuði og oftar ef eitt- hvað sérstakt er á döfinni. Eru æf- ingar sóttar nær 100% af hljóð- færaleikurum og sem dæmi má nefna að einn úr hópnum braut í sér þrjú rif á sunnudegi en næsta Sigrún Bjarnadóttir fimmtudag á eftir var hann mætt- ur á æfingu með nikkuna á hnjánum. Félagið er búið að spila á fjór- um Saumastofudansleikjum, halda haustfagnað og vorfagnað- ur verður 24. apríl. Farið hefur verið í heimsókn til nærliggjandi félaga og lagið tekið. Skemmti- fundir hafa verið og myndakvöld. í sumar verður svo stefnan tekin á Galtalæk og einnig er á döfinni ferðalag þar sem ákvörðunarstað- ur er enn óákveðinn. En reynsla síðasta sumars sýnir að ómissandi er að ferðast eitthvað saman. Þá var farið í Skaftafellssýsluna auk Landsmóts að Laugum og Galta- lækjargleði. Að lokum sendum við félagar í H.F.R. bestu árnaðaróskir til blaðsins sem ég tel vera eitt helsta sameiningartákn þeirra er harm- oníkunni unna. Aðstandendum blaðsins þökkum við frábær og óeigingjörn störf á liðnum árum. Sigrún Bjarnadóttir formaður H.H. Harmoníkufélag Hveragerðis Harmoníkufélag Hveragerðis var stofnað 27. nóvember 1983 og voru stofnfélagar tíu. Félagið fór vel af stað með dansleikjahaldi, og æfingum sem haldnar voru nokk- uð reglulega. Farnar nokkrar ferð- ir og er t.d. ein ferðasaga skráð í Harmonikunni, auk þess hafa fé- lagar tekið þátt í landsmótum og útilegum í Galtalækjarskógi sem hafa verið á vegum Harmon- íkunnar. Gísli Brynjólfsson Fram til þessa var félagið ein- göngu skipað harmoníkuleikur- um, en flest vorum við 14. Á síðastliðnu hausti var svo reynt að fjölga í félaginu með kynningarfundi þar sem mættir voru Hilmar Hjartarson og Þor- steinn Þorsteinsson ásamt eigin- konum og börnum, einnig nýjir félagar. Ekki hefur orðið sá árang- ur sem vonast var til og því hefur starfið verið með daufara móti, en samt er meiningin að gefast ekki upp. Stjórn H.H. er þannig skipuð í ár: Gísli H. Brynjólfsson formaður Theodór Kristjánsson gjaldkeri Rannveig Hjálmarsdóttir ritari Með harmoníku kveðju Gísli H. Brynjólfsson form. Félag Harmoníkuunnenda á Suðurnesjum F.H.U.S. var stofnað þann 21. janúar 1990 og voru stofnfélagar 40 en nú rúmu ári seinna eru þeir 46. Stjórn félagsins er þannig skipuð: Ásgeir Gunnarsson formaður Gestur Friðjónsson ritari Högni Kristinsson gjaldkeri Kristinn Kaldal meðstjórnandi og Guðrún Helgadóttir með- stjórnandi Starfsemi félagsins hófst skömmu eftir stofnun þess með dansleik sem haldinn var í húsi Karlakórs Keflavíkur og var það frumraun félagsins sem hefði mátt takast betur. Yfir sumarið var hlé 9

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.