Harmoníkan - 30.05.1991, Side 11
Harmoníkan við Heklurætur
Á íslandi hefur sannarlega verið
unnið stórvirki að málum harm
oníkunnar meðal félaga um allt
land á fáum árum. Ef horft er til
þeirrar miklu lægðar sem hljóð-
færið sökk í á tímabili lítur átakið
mun glæsilegar út og sýnir fram á
hvað gera má með samtaka-
mættinum.
Við stöndum að vísu ekki jafn-
fætis norðurlandabúum ennþá,
þeirra þróun á sér mun lengri hefð.
Ef ekki verður slegið slöku við
dregur eflaust saman með okkur i
framtíðinni smátt og smátt.
Ef litið er í norsk og sænsk
harmoníkublöð ber mikið á
auglýsingum um harmoníkumót
og keppnir sem fara fram hingað
og þangað í löndunum. Mót þessi
eru í viku hverri í það minnsta yfir
sumarmánuðina allt fram á haust.
Um mótin er mikið fjallað í
blöðunum og áberandi að þau eiga
vinsældum að fagna meðal allra
aldursflokka.
Aðsókn á og umfjöllun um
Galtalækjarmótið, sem við Harm-
oníkublaðsmenn höfum staðið
fyrir, segir okkur, að full þörf er
fyrir slíkt mót hér á landi. Við
leyfum okkur þessvegna að álykta
sem svo, að Galtalækjarmótið sé
gildur hlekkur í þá keðju, sem
tengir harmoníkuunnendur á
stóru svæði, því mótsgestirnir
koma víðsvegar að, eða hittast á
mótinu og eiga eftirminnilega
helgi við tónlist, söng og leiki með
góðu fólki á fellegum stað. Eins og
í fyrra verður tjaldað inni í skógin-
um, þar er mun skjólsælla og nóg
pláss fyrir tjöld og hjólhýsi. Varð-
andi aðsóknina, hefur sú hug-
mynd komið upp að auglýsa meira
í fjölmiðlum, það er þó tvíbent því
aðrir hópar kynnu að vilja bland-
ast í þennan káta félagsskap. Þess
vegna viljum við frekar hvetja fólk
úr harmoníkufélögum landsins til
að fjölmenna og taka vini og
venslamenn til þessa fagnaðar.
Eitthvað meira erum við að hugsa
um að hafa við, en vant er í tilefni
5 ára afmælis blaðsins okkar
Hvað viltu vita?
Oft höfum við hjá blaðinu ver-
ið að kvarta yfir að fá ekki bréf
frá lesendum en þau mættu gjarn-
an vera fleiri. Til þess að hvetja
fólk enn frekar til að skrifa þá
hefur Högni Jónsson boðist til að
taka að sér að svara fyrirspurnum
um harmoníkuna og harmoníku-
tónlist. Högni hefur frá upphafi
reynst okkur afar hjálplegur, t.d.
lesið yfir handrit og sneitt af
verstu ambögurnar í texta og
ávallt verið boðinn og búinn við
hvaðeina sem upp hefur komið .
Hann er einn fróðastur manna
hérlendis um harmoníkuna og
harmoníkutónlist og ætti því að
vera fengur fyrir okkur og lesend-
ur að hann skuli ætla að leysa úr
fyrirspurnum lesenda, en æski-
legt er að hafa spurningar skil-
merkilegar.
Þ.Þ.
Harmoníkunnar, hvað það verður
— það kemur í ljós á harmoníku-
mótinu í Galtalækjarskógi 4. — 7.
júlí í sumar.
Verið öll velkomin.
H.H.
Ný snælda
með Tormod Vasaasen, í sér-
flokki, einföld og tvöföld harm-
oníka ásamt f.l. hljóðfærum.
Sigmund Dehli, nokkrar plötur og
snældur.
Verð á plötum og snældum aðeins
kr. 1000. —
Frír sendingarkostnaður hvert á
land sem er.
Pantið í síma, 91-656385 eða
skrifið.
11