Harmoníkan - 30.05.1991, Qupperneq 16

Harmoníkan - 30.05.1991, Qupperneq 16
Sænskir harmoníkusnillingar á Það er mér sérstök ánægja að hafa fengið tækifæri til að gleðja ykkur öll, sem þykir gaman að harmoníkutónlist, með því að fá þessa góðu gesti með mér til ís- lands 13. júlí 1991. Ég hef sjálfur hlustað á þau spila hér í Svíþjóð, öll nema Conny og ég veit að þessi stíll, sem þau hafa á sinni spila- mennsku, hæfir vel íslenskum smekk. Ég fékk þessa sömu til- finningu, þegar ég heyrði í Lars Ek í fyrsta skifti fyrir nokkrum árum hér fyrir utan Gautaborg og fór fram á það við hann að fara til Islands. Það er ómetanleg lyftistöng fyr- ir ísland að fá svona heimsóknir og verður til þess að hvetja menn og konur til að vanda vel sína spilamennsku og reyna að leggja sig fram og setja persónuleg blæ- brigði á tónlistina, ef hægt er. Það er þetta, sem gerir gæfu- muninn og veldur úrslitum um hvort maður hrífst með í tónlist- inni eða „bara hlustar”. Þessi hópur, Anders, Annika, Conny og Sigrid er samstilltur og þau bjóða upp á fjölbreytta efnis- skrá þar sem bæði verður einleik- ur, dúett, tríó og jafnvel kvartett. Nú upp á siðkastið hafa Anders og Annika leikið mikið saman og einnig Sigrid og Conny. Island hefur mikið aðdráttarafl hér í Skandinavíu og það var engu lik- ara en þau hefðu beðið eftir sím- tali mínu, þegar ég hringdi og bauð Anders og Sigrid að fara til íslands í júní í tvær vikur. En stundum fylgir „góður” böggull skammrifi. Anders og Sigrid vildu taka með sér spilafélaga sína og málið var lagt fyrir „hæstarétt” S.Í.H.U. Hér í Svíþjóð eru íslend- ingafélög, sem hafa aðstöðu til að ná hópferðarsamningum við Flug- leiðir, og ég gerði því þessa aðila að félögum svo þau næðu hag- stæðari kjörum. Samningarnir voru að vísu nokkuð óhagstæðari en í fyrra og það fór svo að greiðsl- W ’■ w Eyþór H. Stefánsson an frá S.Í.H.U. nægði fyrir meira en þremur miðum, nánar tiltekið þarf hver þessara aðila að leggja út 500 kr. sænskar svo að öll fjögur komist með. Ég held að þau séu sátt við þetta enda ekki meiningin frá upphafi að svo margir gestir kæmu á þessa hátíð harmoníkufé- laganna. Ég vil þessvegna þakka Yngva Jóhannssyni og stjórn S.I.H.U. fyrir þettaágæta framlag. Ég reikna með að fara með sænsku gestunum landleiðina vestur, norður og austur meðan Ulla, konan mín, dvelur hjá vin- konu sinni í Reykjavík. Við hjónin dveljum síðan 2 vikur á æsku- heimili mínu í Flögu í Skriðdaþþar sem ég eignaðist fyrstu harmoník- una 12 ára gamall. Þetta var svört píanóharmoníka af gerðinni „Sa- batini” sem ég vildi gjarnan ná í aftur. Ég veit að hún seldist gegn- um Guðna Guðnason í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Það fór lítið fyrir kennslu á slik hljóðfæri á þeim tímum á Austur- landi. Maður lærði svolítið af þessum strákum sem spiluðu á böllum þarna eystra, og víst voru sumir alveg til fyrirmyndar eins og t.d. Höskuldur Stefánsson á Nes- kaupstað, Þorvaldur Jónsson á Torfastöðum og fl. Nikkan varð þó til þess að skólavistin í M.A. leið til Islands. varð mér svo til ókeypis, við spil- uðum dansmúsík þrír saman á sumrin 1956-59 og auk mín voru þarna Reynir Eyjólfsson á gítar, nú lyfjafræðingur í Reykjavík, og Sigurður Runólfsson á trommur, nú trésmíðameistari á Akureyri. Þetta voru skemmtileg sumur, sem verða okkur ógleymanleg. Tríóið hét LUDÓ-tríó. Á háskólaárunum í Reykjavík seldi ég nikkuna til að sleppa við að mér yrði hent út af Gamla- Garði! Það voru þung spor. Það var ekki fyrr en sumarið 1971, þeg- ar ég flutti til Svíþjóðar, að ég keypti mér aftur hljóðfæri. Það var eins og að byrja frá grunni. Ég náði mér í góðan harmoníkuskóla eftir nokkur ár og náði nýjum og betri tökum á tónlistinni. Árið 1985 fór ég (sem áheyr- andi) á Frosini-hátíð í Hyvinkáá í Finnlandi og hitti þar og hlustaði m.a. á Veikko Ahvenainen og John Molinari. Þá fyrst magnaðist áhuginn og ég fór að æfa af fullum krafti. Hér í Gautaborg er mikið fé- lagslíf hjá íslendingum, sem eru a.m.k. 1000 talsins. Við höfum þorrablót, höldum upp á sumar- daginn fyrsta og 17. júní, höfum jólaböll fyrir krakkana og stofn- uðum blandaðann kór 1989. Út frá því hafa vaxið ýmis önnur „grös” svo sem „ísmolarnir” sem er 4-6 manna hljómsveit eftir atvikum og einnig minni sönghóp- ar. Kórinn okkar hafði þá ánægju að syngja fyrir Vigdísi Finnboga- dóttur, forseta, þegar hún varð heiðursdoktor hér við Gautaborg- arháskóla 26. janúar s.l. Að lokum óska ég harmoníku- unnendum og landsmönnum öll- um gleðilegs sumars. Lifið heil. Eyþór H. Stefánsson læknir, Gautaborg 16

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.