Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 17

Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 17
Dagur Harmoníkunnar hjá H.R. Örrt Arasonfonn. HR. tókað sér stjóm hljómsveitarinnar er Karl Jónatansson brá sér upp í Perlu. í Morgunblaðsauglýsingu þar sem getið var um tíma og dagskrá undirritaðri af Harmoníkufélagi Reykjavíkur, var á haus auglýsing- arinnar merki Félags Harmoníku- unnenda í Reykjavík. Mistökin voru Morgunblaðsins, sem ekki gerir greinarmun á merkjum, notaði bara það sem hendi var næst. Þó sam- vinna standi til milli félaganna er ekki ætlunin að nota sama merki. Margt manna var saman komið í Tónabæ, H.R. bauð uppá fjölbreytta Gestaspilari á degi harmoníkunnar Guðmundur Samúelsson F.H. U.R. lék Wetterleuchten eftir Gerhard Gerlach, Vals in Swing eftir Renato Bui og Dansen pá Sunnanö eftir Evert Taube. dagskrá frá einleikurum upp í risa- hljómsveit. Gestaspilari dagsins var Guðmundur Samúelsson frá F.H.U.R. Ríkissjónvarpið og stöð 2 mynduðu þarna í bak og fyrir. Á tímabili gengu sjónvarpsmenn ein- um of langt með útbúnað og umsvif sín, formaður H.R. Örn Arason á- minnti þá kurteisislega, en stöðvar- menn stöðvar 2 strunsuðu út með fyrirgangi, kannski þess vegna kom ekkert frá þeim um kvöldið en ríkis- sjónvarpið gerði H.R. góð skil í MOLAR Harmoníkublaðið „Gammeldans og litt til“ hefur enn einu sinni verið skýrt upp á nýtt eða öllu heldur gerð smá breyting á nafninu. Blaðið heitir nú Gammeldans í Skandinavia. Fyrst hét það Trekkspilleren, síðan Titanobladet eftir það var nafninu breytt í áðumefnd nöfn. Utgefendur hafa verið Sigmund Dehli og Harald Hensenien, nú bætist við Lars Ek sem kemur inn í útgáfuna vegna blaðsins Frosini Nytt en það hefur átt erfitt uppdráttar að undanfömu. Nú gerast áskrifendur Gammeldans líka sjálfvirkt áskrifendur Frosini Nytt. Efni þess blaðs verður fellt inn í. Lars Ek er formaður félagsskaparins Frosini selskapet, er nær eingöngu vinnur að öflun efnis um Pietro Frosini hins kunna ítalska harmoníkusnill- ings og tónsmiðs er uppi var frá 1885-1951. Segja má að tónsmíðar og út- setningar Froinis hafi blásið nýju lífi í harmoníkuna. Með útgáfu þessa blaðs hyggjast þeir félagar blása nýju lífi í útgáfuna og gera það jafnframt skandinavískara, þá meðal annars með efni frá íslandi, síst minna en verið hefur. H.H. Guðni Þorsteinsson lék einleik, Trönd- erbrura eftir Olav Indal og Födsel- sedagvals til Mona eftir Benny Anders- son og Björn Ulvœus. fréttatímanum. Örn Arason stjórn- aði stórhljómsveitinni eftir hlé, Karl Jónatansson varð að fara upp í Perlu þar sem hann stjórnar 15 manna hljómsveit í „Big band“ stíl á sunnudögum og þar fær fólk sér jafnframt snúning. H.R. félagar enduðu þennan dag harmoníkunnar með því að láta alla syngja „Þorra- þræl“ með undirleik stórsveitarinn- ar. H.H. Munið tilboð okkar á fyrstu 5 árgöngum blaðsins innbund- num á aðeins kr. 5.500 HARMONÍKAN SÍMAR 91-656385 91-71673 17

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.