Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 20

Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 20
Harmoníkan í útvarpinu? Heldur hefur lítið farið fyrir harmoníkuleik á öldum ljósvakans að undanförnu ef undan eru skildir svonefndir Saumastofudansleikir á rás 1 hjá ríkisútvarpinu sem eru oft á tíðum ærið misjafnir að gæðum og sjaldan til að auka vegsemd harmoníkutónlistar á landinu eða eins og Reynir Jónasson orðaði það í vitali í síðasta blaði: „Mér sýnist harmoníkuunnendur vinna á móti sjálfum sér og gera harmoníkunni ógagn, allt er stílað upp á að aðeins sé gamalt fólk á- heyrendur og ungt fólk ekki til.“ Þessir þættir eru endurteknir aft- ur og aftur og virðist einu gilda hvort um er að ræða velheppnaðan eða misheppnaðan þátt - allt er látið Hrólfur Vagnsson harmoníkuleikari og Hiroto Yashima fiðluleikari. TÓNLEIKAR í I nóvember s.l. voru í tónleika- ferð hér á landi Hrólfur Vagnsson harmoníkuleikari og Hiroto Yas- hima fiðluleikari og héldu m.a. tón- leika í Hafnarborg í Hafnarfirði. Tónleikarnir voru að uppistöðu fiðluleikur við undirleik harmoníku. Hiroto er fágaður í framkomu sem hljóðfæraleik og virtist í mínum eyrum sem leikmanns (með tak- markaða þekkingu), hafa afar gott vald á fiðlunni og ráða yfir mikilli tækni. Harmoníkan var sem fyrr segir fyrst og fremst undirleiks- hljóðfæri, og var það látlaus og hnökralaus undirleikur en samleikur þeirra þó með ágætum. 20 flakka. Það ber allt að sama brunni. Útvarpið hefur hætt öllu sem hægt er að nefna harmoníkuþætti, það heyrast vart harmoníkutónar í Ríkis- útvarpinu og þá sjaldan þeir heyrast eru það oftast gamlar plötur sem búið er að margþvæla. Hvort hér er um ásetning að' ræða af hálfu tón- listarstjóra Ríkisútvarpsins, útvarps- stjóra eða útvarpsráðs, skal ósagt látið. Þá sjaldan að við fáum að heyra í harmoníkunni í útvarpinu er eins og það sé skilyrði að hafa hana ekki í of háum gæðaflokki og alls ekki að kosta til þess of miklu. HVAÐ GETUM VIÐ GERT? - það er góð spuming, en það vit- um við ekki nema reyna eitthvað, eða til hvers höfum við harmoníku- félög og landssamband? Er ekki einmitt rétti grundvöllurinn að for- menn allra harmoníkufélaga á land- inu sendi mótmælabréf til lands- sambandsins sem sendi þau síðan öll til útvarpsráðs til umfjöllunar, þar sem þessum vinnubrögðum er mótmælt. Mótmæla þeim heila- þvotti að harmoníkan sé aðeins fyrir aldraða. Mótmæla þeim hugsunar- hætti að harmoníkan sé þriðja flokks hljóðfæri sem aðeins sé leik- in áþriðja flokks tónlist. Þetta er allt of ríkjandi hugsunarháttur hjá mörgum okkar hámenntuðu tónlist- armanna, eða eins og Dr. Hallgrím- ur Helgason orðar það í bók sinni HAFNARFIRÐI Það var aðeins í verkinu „Din- osaurus“ eftir Nordheim sem Hrólf- ur var einn á ferðinni, þó með inn- skotum af segulbandi. Hrólfur flutti þetta verk einnig á tónleikum í mars s.l. og einhvern veginn fannst mér honum takast betur upp þá við flutninginn en núna. Reyndar finnst mér verkið ekki hrífandi og því má vera að mat mitt sé ekki sanngjamt. Vonandi lætur Hrólfur okkur heyra meira í harmoníkunni næst, því þó alltaf sé gaman að heyra góðan hljóðfæraleik, eru það jú harmoníkutónanarnir sem harm- oníkuunnendur sækjast eftir. Þ.Þ. „Kennslubók í Tónfræði“, sem var gefin út af Emi & Örlygi 1975, en þar stendur á bls. 128: - „Músík er ekki alltaf list í þeirri merkingu, sem jafnan á að vera þar inni falin: hámark andlegra afreka manns. Margir hafa unun af að heyra leikið á harmóniku. Fáum dettur þá í hug listnautn en dást þó að léttri og dillandi harmónikumús- ík“. Ekki er hægt að fullyrða að þessi ummæli doktorsins verðitekin góð og gild við allar virtustu tónmennta- stofnanir í heiminum þó hann sé að reyna að hafa vit fyrir okkur hinum og miðli fslendingum af þekkingu sinni. Það er vissulega áhyggjuefni að fólk sem hefur menntað sig í list- greinum skuli verða þröngsýnt og enn verra ef ráðamenn láta það hafa áhrif á ákvarðanir sínar. Víða um heim hefur áhugi fyrir harm- oníkunni aukist verulega hjá ungu fólki og eru nærtækustu dæmin frá hinum Norðurlöndunum. Þar er heldur ekki verið að klifa á því sýknt og heilagt eins og hér er gert að harmoníkan sé eingöngu fyrir gamalt fólk. Stöndum saman um að fá þessu breytt. Það er til fólk með þekkingu og hæfileika til að annast slíka þætti og sem er tilbúið til þess. Það gerist ekkert ef hver kveinar í sínu horni en hugsanlega tekið mark á okkur ef við stöndum saman. Þ.Þ. RÓSIR Skömmu fyrir jól sendi Örvar Kristjánsson frá sér nýja geisla- plötu og snældu sem ber nafnið Rósir sem er samnefnt lag eftir Örvar. A plötunni eru bæði gömul og ný lög eftir innlenda og erlenda höfunda en allir textar eru á ís- lensku og er allur flutningur vand- aður bæði söngur og hljóðfæra- leikur, þó er þess ekki getið á um- slagi hveijir eru meðleikarar. Útgefandi er Stöðin hf. en í allri umfjöllun um plötur og plötu- sölu fyrir jólin í blöðunum var þessari plötu sleppt. Sennilega er þetta vegna þess að blöðin hafa haft samband við stærstu útgef- enduma og hver um sig gefið upp þær plötur sem þeir annast útgáfu á, og er þá Stöðin hf. líklega ekki í þeim hóp. Þ.Þ.

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.