Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 22
Undra-
barnið
Johan
Kullberg
Johan Kullberg langar mikið að koma til íslands, hann hefur heyrt svo marga fara
lofsamlegum orðum um land og þjóð.
Johan Kullberg er 13 ára sænsk-
ur piltur, sem náð hefur hreint ótrú-
legum árangri með tvöföldu harm-
onrkuna. Hann byrjaði að spila lið-
lega þriggja ára og kom fyrst fram
fjögurra ára með pabba sínum á
elliheimili. Skriðunni var hrundið
af stað og lengur hefur hann ekki
tölu á ellistofnunum, sjúkrahúsum,
fyrirtækjum, harmoníkumótum,
dansnámskeiðum, jarðarförum og
skemmtistöðum þar sem hann hefur
spilað. Hann hefur unnið til ótelj-
andi viðurkenninga og verðlauna á
ýmsu mótum og keppnum á Norð-
urlöndum og víðar, oftar en ekki
fyrstu verðlaun. Fyrst fékk Johan
að fylgja með pabba sínum, sem er
harmoníkuleikari, en núna er það
pabbinn sem fylgir Jóhanni, en þeir
eru á ferðalagi allt sumarið og
meira til ef þörf krefur. Nefna má
staði eins og Grieghöllina í Bergen,
Ikalinen nærri Tammerfors í Finn-
landi, Ránsáter, Gautaborg, Stokk-
hólm og í október síðastliðnum St.
Pétursborg og Rússland. Skemmti-
legasta ferðin til þessa að Jóhanns
mati var þegar honum bauðst ferð
til Bandaríkjanna í þrjár vikur, á
Nordisk Höstfest í Minot, Norður-
Dakóta, stór skandinavísk hátíð
með listamönnum á borð við Red
Skelton, Johnny Cash og Bill Cos-
by, samkoma sem sogaði til sín
60.000 gesti á fjórum dögum. Á
þessum þrem vikum í USA, kom
Johan fram alls 30 sinnum. Há-
punktur ferðarinnar var á dansleik
þar sem honum var boðið að koma
fram og spila með hinum fræga am-
eríska harmoníkusnillingi Myron
Floren.
Víst er að blaðaskrifin voru mik-
il en óvíst er að nokkur jafnaldri
hans hafi fengið svo jákvæða um-
fjöllun í harmoníkutónlistarheimin-
um. Johan las í norska harmoníku-
blaðinu Gammeldans að Nils
Flácke, Sigmund Dehli og Tormod
Wasaasen hafi kornið til íslands.
Eftir það sagði hann, að sig og
pabba sinn hafi lengi látið sig
dreyma um að koma til íslands, að
ekki þurfi að ýta mikið við þeim, ef
einhver æskti þess að fá þá. ísland
er á óskalistanum. Það sakar ekki
að nefna að þeir feðgar geta tekið
lagið saman og nú hefur Johan bætt
við sig fimmraða hnappanikku en á-
réttar jafnframt að tvöfalda harm-
oníkan muni alltaf verða númer eitt.
Þýðing og heimild: H.H.
Nikkan hljómar
í Eyjum
Þeir Garðar Tryggvason og Ólafur
Sveinbjörnsson ýttu úr vör stofnun
harmoníkufélags í Vestmannaeyjum.
Stofndagurinn var 21.12.92. Hægt
og hljótt er verið að þróa starfsemina,
menn hafa komið saman einu sinni í
viku á laugardögum. Vanalega mæta 6-
8 manns, fjórtán félagar eru skráðir en
fáir lesa nótur, en það vonandi kemur
segir nýbakaður formaður félagsins
Garðar Tryggvason. Vísir að kennslu í
22
nótnalestri er þegar hafinn, það annast
Georg Stanley Aðalsteinsson. Aðrir í
stjórn eru varaformaður Ólafur Svein-
björnsson og ritari Sigríður Þórsdóttir.
Meiningin með félagsstofnuninni er lík
og hjá öðrum slíkum í landinu. Von
okkar er, að áhugafólk um harmoník-
una blandist í hópinn. Við spilum mest
hefðbundna gömludansa, lög eftir Odd-
geir Kristjánsson, Sigfús Halldórsson
og Svavar Benediktsson. Svo er það
nafnið á félaginu, einfalt og fer vel í
munni „Nikkan, félag harmoníkuá-
hugafólks Vestmannaeyjum“. Merki fé-
lagsins teiknaði Vilhjálmur Garðarsson,
hann teiknaði einnig merki fyrir Bæjar-
veitur Vestmannaeyjum (fyrstu verð-
laun), og fékk önnur verðlaun í sam-
keppni v/ Sorpu þar líka. Ekkert árgjald
er greitt enn þá til félagsins. í Vest-
mannaeyjum er engin verslun sem selur
harmoníkur, það er alls ekki nógu gott
segir Garðar formaður,en hann er 60
ára, starfsmaður Vestmannaeyjabæjar.
Hann leikur á píanóharmoníku eins og
allir aðrir félagsmenn í Eyjum. Til
hamingju Vestmannaeyingar.
H.H.