Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2011, Síða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2011, Síða 17
Fréttir / Fimmtudagur 10. febrúar2011 17 Minningarsjóður stofnaður um Oddgeir Kristjánsson tónskáld Stofnaður hefur verið minningar- sjóður um Oddgeir Kristjánsson tónskáld. Sjóðurinn heitir Minn- ingarsjóður Oddgeirs Kristjáns- sonar og er stofnaður af fjölskyldu Oddgeirs. Stofnframlag sjóðsins, 16 millj- ónir króna, kemur frá vini Odd- geirs, Kjartani Bjamasyni frá Djúpadal í Vestmannaeyjum, sem með erfðaskrá sinni ákvað að hluti eigna hans skyldi renna í minn- ingarsjóð um Oddgeir. Kjartan tengdist Oddgeiri og fjölskyldu hans sterkum vinaböndum og var einn af stofnfélögum Lúðrasveitar Vestmannaeyja þegar Oddgeir endurreisti þá sveit í mars 1939. Kjartan lést þann 27. júní 2010 og var sá síðasti af stofnfélögum LV sem kvaddi. Oddgeir var vinsæll og mikils metinn maður í tónlistar- og bæjar- lífi Vestmannaeyja ekki síst vegna sinna ástsælu laga. Hann var tón- listarkennari við Bamaskóla Vest- mannaeyja í mörg ár en auk þess kenndi hann mörgum Eyjamönnum á hljóðfæri, bæði bömum og full- orðnum. Hann stjómaði Lúðrasveit Vm frá stofnun 1939 til dauðadags en auk þess lúðrasveitum í bæði Bamaskóla og Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja. Það voru því æði mörg ungmenni sem nutu leið- sagnar hans í tónlistarsviðinu í gegnum skólagöngu sína. Þetta starf Oddgeirs hefur lifað með Vestmannaeyingum allar götur síðan enda telja þeir hann tvímæla- laust sinn mann og minnast hans með hlýju og virðingu. Það kom berlega í ljós um aldamótin síðustu þegar hann var valinn maður 20. aldarinnar í Vestmannaeyjum af lesendum Frétta, bæjarblaðs Vestmannaeyinga. Það er fjölskyldu Oddgeirs mikils virði að sjóður, helgaður minningu hans, skuli stofnaður nú, því eins og mörgum er kunnugt verða þann 16. nóvember næstkomandi liðin 100 ár frá fæðingu Oddgeirs. Ekki síður er það mikils metið að svo rausnarlegt framlag, sem stofnfé sjóðsins er, komi frá vini hans Kjartani Bjarnasyni. Stjóm sjóðsins skipa þrír menn og er hún valin til þriggja ára í senn frá 1. janúar að telja. Tveir stjómar- manna eru tilnefndir af fjölskyldu Oddgeirs Kristjánssonar og fer annar með formennsku í sjóðnum. LÚÐRASVEIT Vestmannaeyja spilar á Stakkó. Bæjarstjóm Vestmannaeyja skipar þann þriðja. Hverfi stjómarmaður úr stjóm skulu sömu aðilar skipa nýjan í hans stað. Stjórnin mun halda gjörðabók og verða fjárreiður og reikningshald sjóðsins á hendi sjóðsstjómar. Reikningsárið er almanaksárið og skulu reikningar gerðir af sjóðs- stjóm og yfirfamir af skoðunar- manni. Stjórnarmenn verða Hafsteinn G. Guðftnnsson, for- maður og Birgir Hrafn Hafsteins- son fyrir hönd fjölskyldu Oddgeirs en bæjarstjóm Vestmannaeyja mun á næstunni skipa sinn fulltrúa. I reglum sjóðsins segir meðal annars: „Tilgangur/markmið sjóðsins er að styrkja verkefni sem fjalla um líf og starf Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds frá Vestmannaeyjum og stuðla að því að halda nafni hans á lofti. Þar getur verið um að ræða hvers konar nýja úrvinnslu eða nálgun á tón- listarverkum Oddgeirs, útgáfa, út- setningar, rannsóknir, kynningar og skrif eða önnur þau verkefni sem gera lífí hans og starfi skil“. Um styrkumsóknir segir: „Hver styrkumsókn skal vera undirrituð af ábyrgðarmanni og henni skal fylgja greinargerð um markmið verk- efnisins og áætlaðan heildarkostn- að, fjármögnun og hvenær verkinu á að ljúka. Sá sem hlýtur styrk skal í lok verkefnis skila til sjóðsstjórnar samantekt og afriti af afurð verk- efnisins og lýsingu á hvernig til hefur tekist með verkið". KJARTAN og Oddgeir. Stjórn sjóðsins er heimilt að hafa forgöngu um verkefni sem hún telur æskilegt að vinna sbr. tilgang sjóðsins. I undirbúningi er að setja upp heimasíðu um Oddgeir Krist- jánsson og verk hans sem tengjast mun vefsíðunni Heimaslóð. A síðunni verða lífí og starfi Odd- geirs gerð skil og þar verða reglur um Minningarsjóðinn gerðar aðgengilegar fyrir þá er áhuga hafa. Auglýst verður í blöðum hvenær hægt verður að sækja um styrki í sjóðinn. Nú þegar eru komnar fram allmargar hugmyndir að verkefnum sem vonandi verður hægt að hrinda í framkvæmd á afmælisárinu. Sjóðsstjórn mun leitast við að gera opinberlega grein fyrir starfsemi sjóðsins og upplýsa um hvaða verkefni hljóta styrki. Stjórn sjóðsins hefur hug á að efla sjóðinn enn frekar og vill gefa áhugasömum aðilum tækifæri til að leggja sjóðnum lið, þannig að hann geti komið myndarlega að sem flestum verkefnum sem varða líf og starf Oddgeirs. Ef fólk, félög eða fyrirtæki hafa áhuga á að styðja við sjóðinn með framlögum eru þau þegin með þökkum en reiknings- númer sjóðsins 582-26-650 (kt. 621210-1140) í íslandsbanka í Vestmanneyjum. F.h. stjórnar Minningarsjóðs Oddgeirs Kristjánssonar. Hafsteinn G. Guðfinnsson for- maður. 4 Eyjakvöldin aftur af stað Hópurinn sem staðið hefur fyrir Eyjakvöldum á Kaffi Kró, fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði, blés til fyrsta kvöldsins í síðustu viku. Eins og alltaf var salurinn þétt setinn. Gestir að þessu sinni voru söngsveitin Stuðlar og Helgi Thórshamar sem flutti lag eftir sjálfan sig ásamt Þórarni Óiasyni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.