Fréttablaðið - 12.02.2013, Blaðsíða 28
12. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20
MYNDLIST ★★★ ★★
Líkist
Baldur Geir Bragason
GALLERÍ KUNSTSCHLAGER
Rétt við Hlemmtorg, í gömlu versl-
unarhúsnæði við Rauðarárstíg 1,
er komið nýtt gallerí fyrir sam-
tímamyndlist. Galleríið heitir
Kunstschlager og er rekið af fimm
ungum myndlistarmönnum. Í
fremri sal gallerísins eru haldnar
sýningar en í innri sal gallerísins
er eins konar myndlistarbasar, eins
og starfsmaður gallerísins orðaði
það þegar undirritaður kom í heim-
sókn. Þar er með öðrum orðum
hægt að kaupa myndlist eftir ýmsa
myndlistarmenn, bæði þá sem reka
gallerí ið og aðra.
Þar inni er mest um málverk og
teikningar, sem hanga þétt upp
um alla veggi með verðmerkingar
sér við hlið, en einnig eru í rým-
inu höggmyndir og bækur, listræn
íslensk tímarit og ljóðabækur.
Það er rétt að hvetja áhugamenn
til að kíkja þarna inn og skoða
úrvalið, enda eru ekki margir staðir
í bænum þar sem hægt er að nálgast
úrval af myndlist yngri kynslóðar-
innar með góð kaup í huga.
Í fremri sal gallerísins stendur
nú yfir sýning myndlistarmannsins
Baldurs Geirs Bragasonar. Þessi
salur er hvítmálaður í hólf og gólf,
öfugt við innra rýmið þar sem er
heimilislegri stemning og hlýlegri.
Baldur hefur fengist mestmegn-
is við höggmyndagerð og sýningin
í galleríinu samanstendur einmitt
af tveimur höggmyndum. Þetta eru
tveir nánast alveg eins skúlptúrar
sem eru eins og spegilmynd hvor
af öðrum.
Um er að ræða tvær steinsteypt-
ar tröppur með nokkrum þrepum. Á
báðum tröppunum eru handrið sem
búin eru til úr bronslitum rörum
og bronslitum, svörtum og þykkum
rafmagnsvírum. Ef handriðin væru
ekki bæði vinstra megin á tröppun-
um mætti auðveldlega raða þeim
saman og mynda einar „venjulegar“
tröppur, en tröppurnar eins og þær
eru í galleríinu eru ekki venjulegar.
Munurinn á tröppunum tveim-
ur, sem eru báðar þríhyrndar að
segja má, þ.e. eins og fleygar, er
sá að önnur trappan byrjar í engu
og breikkar svo út, en hin byrjar á
breiðari endanum og mjókkar svo
upp.
Titill verksins er Líkist. Lista-
maðurinn gæti átt við með þessu að
tröppurnar líktust hvorri annarri.
Þær líktust tröppum, þó þær væru
ekki tröppur, að höggmyndirnar
líkist einhverju sem er venjulegt
og við þekkjum úr daglega líf-
inu, en sé ekki alveg eins – minni
á eitthvað, en er ónothæft. Eins og
myndlist!
Þetta er ekki fyrsta verk lista-
mannsins sem líkist einhverju, en
er það ekki.
Tröppur geta haft ýmsa skírskot-
un. Menn klífa metorðastiga, eða
falla niður þá, og talað er um valda-
píramída, og tröppur eru einnig
eins og inngangur að einhverju.
Að mörgu leyti koma högg-
myndirnar út eins og skynvillur
og verður manni hugsað til frægra
teikninga Eschers, af stigunum
endalausu.
Í texta í sýningarskrá bend-
ir Ásmundur Ásmundsson m.a.
á mögulegar tilvísanir í nærum-
hverfi gallerísins, eins og Frímúr-
arahúsið handan götunnar.
Verk Baldurs Geirs bera vott um
mikla sköpunargleði, auk þess sem
efnismeðferðin er honum mikil-
væg. Hér er það steinsteypa og
járn, sem spilar vel saman í þess-
um ágæta verki.
Frágangur í salnum hefði mátt
vera vandaðri, þar sem rafmagns-
snúrur og millistykki hanga neðan
úr lofti.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Verkið er áhuga-
verður snúningur á hlut sem við
þekkjum vel úr umhverfi okkar.
Líkist tröppum
LÍKIST Skúlptúrarnir líkjast venjulegum tröppum og virðast spegla hvorn annan en
eru, þegar betur er að gáð, hvorki spegilmyndir né nothæfar tröppur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð hjá
Félagi eldri borgara í Reykjavík,
Stangarhyl 4.
Tónlist
20.30 Standard Issue kvartett kemur
fram á djasskvöldi KEX Hostels, Skúla-
götu 28. Lengra komnir nemendur frá
Tónlistarskóla FÍH koma einnig fram
og áherslan verður á djass-standarda.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Edgar skemmtir á Café Rosen-
berg.
Fyrirlestrar
12.00 Dr. Natalia Loukacheva fjallar um
höfuðlínur og þróun heimskautaréttar í
stofu M102 í Sólborg við Norðurslóð.
12.05 Dagný Kristjánsdóttir, prófessor
í íslenskum bókmenntum við Háskóla
Íslands, heldur erindið Saga handa
börnum í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns
Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrir-
lestraröð Sagnfræðingafélags Íslands.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir
til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri
en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni
skammt í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti
þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk.
smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi
ef þú getur ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að
hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni
er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Nicotinell Fruit 2 mg 24 608 25.33 507 -56%
Nicotinell Fruit 2 mg 96 2.437 25.39 508 -55%
Nicotinell Fruit 2 mg 204 4.511 22.11 442 -61%
Nicotinell Fruit 4 mg 96 3.491 36.36 727 -35%
Nicotinell Fruit 4 mg 204 6.280 30.78 616 -46%
Tegund Bragð Styrkleiki Pakkning Meðalverð Meðalverð Meðalverð Sparnaður
pr. pakka** pr. tyggjó x20
* Verðkönnun framkvæmd af MMR, 29. janúar 2013 í 10-11, Stöðinni, N1, Olís, Hagkaup, Krónan, Samkaup og Nóatún.
** Verðkönnun framkvæmd af MMR, 29. janúar 2013 í 16 apótekum.
***Í flestum tilfellum nægir að nota á bilinu 8-12 tyggjó á dag. Mest skal nota 25 stk. af 2 mg og 15 stk. af 4 mg
Í þessum samanburði er gert ráð fyrir því að einstaklingurinn tyggi eitt tyggjó fyrir
hverja sígarettu sem hann reykti***
Verðsamanburður á Nicotinell Fruit og þremur vinsælustu tegundum sígaretta
Það er ódýrara að nota
Nicotinell Fruit heldur
en að reykja!61%SPARNAÐUR!
46%
SPARNA
ÐUR!
3 vinsælar tegundir 200 11.407 57.04 1.141
Tegund Fjöldi í Meðalverð Meðalverð Meðalverð
kartoni pr. karton* pr. sígarettu pr. pakka
20
13
N
CH
0
07
N
ic
ot
in
el
l
MENNING