Fréttablaðið - 12.02.2013, Blaðsíða 19
BÍLAR
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Fréttablaðið
Reynsluakstur - KIA Sorento
Minni vélar en sama afl
Vatnabíll nasista
Subaru Forester
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Í fyrra jafnt sem á undanförnum árum voru bílaleigubílar vænn hluti þeirra nýju bíla sem seldust
á árinu. Í allt seldust um 7.900 nýir
bílar og 46,5% þeirra voru bílaleigu-
bílar, eða 3.635. Mjög misjafnt er
milli bílaumboða hversu hátt hlut-
fall bílaleigubíla var af sölu þeirra.
Eins og sést á meðfylgjandi töflu
var það sýnu hæst hjá Suzuki eða
76,3% en lægst hjá Öskju, 31,6%.
Hekla seldi flesta en Suzuki
með hæst hlutfall
Flesta bíla til bílaleiga seldi hins
vegar söluhæsta bílaumboðið,
Hekla með 991 bíl og næstflesta
Toyota eða 705 og það þriðja er BL
með 494 bíla. Þessi röð er sú sama
og á við um alla bíla selda á árinu.
Fjórða söluhæsta umboðið til bíla-
leiga er Suzuki en umboðið er það
sjötta söluhæsta í heildarsölu en
sölulægst í bílum til almennings.
Í sölu bíla til almennings er Hekla
söluhæst með 1.016 bíla og BL næst-
söluhæst með 775 bíla. Toyota seldi
624 bíla til almennings en þó nokk-
uð lægra er Suzuki-umboðið með
127 bíla.
Flestir Toyota-bílar
Forvitnilegt er líka að skoða sölu
til bílaleiga milli einstakra bíl-
gerða. Þar trónir hæst Toyota með
705 bíla, Volkswagen 539, Suzuki
408, Skoda 309, Kia 279, Ford 257
og Chevrolet 193 bíla. Hæsta hlut-
fall nokkurrar bílgerðar til bílaleiga
er Mitsubishi með 76,7%, þá Suzuki
76,3%, Ford 55,4%, Toyota 53,0%,
Nissan 52,3% og Volk swagen 50,6%.
Því voru það sex bílgerðir sem seld-
ust meira til bílaleiga en almenn-
ings í fyrra og tvær þeirra í mjög
miklum meirihluta.
Fáir í lúxusflokki
Hjá bílaleigum er oftast fátt lúxus-
bíla og endurspeglast það í þess-
um tölum. Af 136 seldum Mercedes
Benz-bílum voru tveir þeirra bíla-
leigubílar, eða 1,5%. Af BMW voru
5,4% bílaleigubílar, Volvo 8,5% en
þó stingur í stúf að 44,3% seldra
Audi-bíla voru til bílaleiga. Eitt
bílamerki enn selst mjög lítið til
bílaleiga en það er Subaru en af 92
seldum nýjum bílum voru aðeins
fimm þeirra til bílaleiga, eða 5,4%.
Ólík sala umboðanna til bílaleiga
Bílaleigur keyptu 46,5% allra nýrra bíla á síðasta ári.
Askja 888 281 607 31,6% 68%
Benni 457 193 264 42,2% 58%
Bernhard 428 148 280 34,6% 65%
BL 1269 494 775 38,9% 61%
Brimborg 862 389 473 45,1% 55%
Hekla 2007 991 1016 49,4% 51%
Suzuki 535 408 127 76,3% 24%
Toyota 1329 705 624 53,0% 47%
Aðrir 50 26 24 52,0% 48%
Samtals: 7825 3635 4190
Seldir
bílar
Bílaleigu-
bílar
(nýtt)
Einka-
bílar
Hlutfall
bíla-
leigubíla
Hlutfall
einka-
bíla