Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 46

Fréttablaðið - 14.02.2013, Page 46
14. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT Þökkum fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, RÓBERTS SIGURMUNDSSONAR húsasmíðameistara, Vestmannaeyjum. Guð blessi ykkur öll. Svanhildur Gísladóttir Íris Róbertsdóttir Eysteinn Gunnarsson Hrönn Róbertsdóttir Sævar Pétursson Telma Róbertsdóttir Sigurður Jóelsson Ívar Róbertsson Agnes Kristjánsdóttir Víðir Róbertsson Hekla Hannesdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR WELDING JÓNSSONAR. Guðrún Magnúsdóttir William H. Clark Elín Magnúsdóttir Hilmar Hólmgeirsson Eyrún Magnúsdóttir Ólafur Már Brynjarsson og barnabörn. Efst í huga okkar er djúpstætt þakklæti til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNASAR JÓHANNSSONAR fyrrv. flugumsjónarmanns. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heimahlynningar LSH fyrir þeirra einstöku aðstoð og hlýju. Guðmunda M. Þorleifsdóttir Þorleifur Jónasson Ásta H. Bragadóttir Matthías Einar Jónasson Jóhanna Eyrún Sverrisdóttir Júlíus Jónasson Helga Helgadóttir Heimir Jónasson Berglind Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR Klapparstíg 5a, sem andaðist á Landakotsspítala 7. febrúar sl. verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Þórunn Ingólfsdóttir Georg Heide Gunnarsson Hilda G. Birgisdóttir Hinrik Gunnarsson Guðrún Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, ÓTTAR EINARSSON kennari, Klausturhvammi 13, Hafnarfirði, sem lést fimmtudaginn 7. febrúar verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 18. febrúar kl. 11. Steinunn Inga Óttarsdóttir Brynjar Ágústsson Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir Haraldur Eiríksson Þuríður Óttarsdóttir Hannes Steinar Guðmundsson og barnabörn Guðrún Kristjánsdóttir Jóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir KRISTBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR (BAGGA) verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 15. febrúar kl. 15.00. Hreiðar Sigurjónsson Fríða Ragnarsdóttir Sigurður Sigurjónsson Lísa C. Harðardóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA GUÐRÚN STEINGRÍMSDÓTTIR ljósmóðir, Hraunbraut 31, Kópavogi, lést mánudaginn 4. febrúar á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 15.00. Ólafur Stefán Sigurðsson Sveinn Sævar Helgason Guðrún Sveinsdóttir Sigurður Ólafsson Guðrún Ingólfsdóttir Vilborg Ólafsdóttir Einar Þór Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KAREN RAGNARSDÓTTIR frá Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði. Páll Sigurðsson Ragnar Ágúst Kristinsson Sigríður Þóra Hallsdóttir Helga Kristinsdóttir Sigvaldi K. Jónsson Haraldur Kristinsson Sveinfríður Unnur Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru móður, ömmu, langömmu og langalangömmu, PETREU GUÐNÝJAR PÁLSDÓTTUR Grundargötu 16, Grundarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyfjadeildar, Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi og starfsfólki Dvalarheimilisins Fellaskjóls, Grundarfirði fyrir góða umönnun og hlýju. Steinbjörg Elíasdóttir Árni Eiríksson Guðný Elíasdóttir Ólafur Ægir Jónsson Margrét Elíasdóttir Þorkell Pétur Ólafsson Elín Katla Elíasdóttir Steinar Helgason Finnbogi Elíasson Sigurlaug Björnsdóttir Kjartan Elíasson Svanhvít Guðmundsdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Steinþór Sigurðsson fagnar 80 ára afmæli í dag. Steinþór er einn af merk- ustu leikmyndateiknurum þjóðarinnar og starfaði hjá Leikfélagi Reykjavíkur í fjörutíu ár. Hann hlaut í fyrra heiðurs- verðlaun Leiklistarsambands Íslands á Grímuverðlaununum. Anna Þóra, dótt- ir Steinþórs, hefur undanfarin þrjú ár unnið að heimildarmynd um karl föður sinn og verður myndin frumsýnd í Bíói Paradís í næsta mánuði. „Það blandast þarna saman fortíð og nútíð,“ segir Anna Þóra um myndina sem nefnist St.Sig. – Strigi og flauel. „Ég viðaði að mér fullt af efni úr hans fortíð sem ég hef verið að moða úr, auk þess sem ég hef fylgst með honum und- anfarin þrjú ár og því sem hann hefur verið að sýsla. Þrátt fyrir að hann sé nú orðinn áttræður hefur hann alltaf haft nóg fyrir stafni. Hann hefur mikið unnið á söfnum, til dæmis á Selasetr- inu á Hvammstanga. Svo setti hann upp ásamt Leikminjasafninu yfirlits- sýningu í Iðnó fyrir tveimur árum, þar sem hann sýndi meðal annars skissur og teikningar úr leikhúsinu. Og svo hlaut hann Grímuverðlaunin í fyrra og ég fylgdi honum eftir þangað.“ Þrátt fyrir langan feril og mikil afköst segir Anna Þóra sárafáar leik- myndir eftir Steinþór hafa varðveist í heilu lagi. „Hann hefur haldið sjálfur utan um vinnuskissur, sem margar hverjar eru mjög fallegar. En í myndinni fer ég meðal annars á háaloftið í Borgarleik- húsinu og þar liggur eitthvað í bútum og kössum. Það voru ein eða tvær leik- myndir settar upp í heilu lagi fyrir yfirlitssýninguna en mest er þetta glatað.“ Anna Þóra er vanur klippari, hefur klippt heimildarmyndir og sjónvarps- efni í fimmtán ár og framleitt tvær barnamyndir. Hún segir að það hafi hins vegar verið nýtt fyrir henni að vinna með viðfangsefni sem var henni svo náið. „Það var vissulega mjög gaman en gat líka verið dálítið snúið. En ef eitt- hvað var færði þetta okkur enn nær saman; ég fór í alls konar ferðalög með honum, elti hann á Hvammstanga og til Stokkhólms og þetta hefur verið ein- staklega skemmtilegt ferli í alla staði.“ En ætlar Steinþór að halda veglega upp á afmælið? „Það verður boð fyrir fjölskylduna í dag,“ segir Anna Þóra. „En ætli við verðum ekki með aðeins meira tilstand þegar myndin verður frumsýnd í Bíói Paradís í byrjum mars. Þá bjóðum við væntanlega fleirum og höldum upp á þetta með pomp og prakt.“ bergsteinn@frettabladid.is Mynd um manninn á bak við leiktjöldin Steinþór Sigurðsson leikmyndahönnuður er 80 ára í dag. Anna Þóra, dóttir hans, hefur gert heimildarmynd um hann sem verður frumsýnd í Bíói Paradís í næsta mánuði. STEINÞÓR OG ANNA ÞÓRA Þrátt fyrir að vera orðinn áttræður hefur Steinþór nóg fyrir stafni og þurfti Anna Þóra nokkrum sinnum að leggja land undir fót til að fylgja föður sínum eftir með myndavélina. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Ástkær faðir okkar,tengdafaðir og afi KJARTAN INGIMARSSON, Bifreiðastjóri, til heimilis að Kirkjuteigi 9, Reykjavík. Lést á Hrafnistu þriðjudaginn 12.02.13 Þóra Kjartansdóttir Ingimar Kjartansson Björg Vigfúsína Kjartansdóttir (Lilla) Tengdabörn og barnabörn. Ástkær faðir ok ar, t f ir fi, bifr i stj ri, 9, j í , lést á rafnistu þriðjudaginn 12.02.13. t

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.