Fréttablaðið - 14.02.2013, Side 59
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2013 | MENNING | 43
Yngsta barn stjörnuparsins Angelinu Jolie og Brad Pitt,
hin fjögurra ára gamla Vivienne Marcheline, hefur landað
sínu fyrsta hlutverki í bíómynd. Vivienne er ásamt tví-
burabróður sínum, Knox Léon, yngst í sex barna systk-
inahópi. Hún leikur persónu leikkonunnar Elle Fanning í
myndinni Maleficent á yngri árum. Jolie leikur eitt aðal-
hlutverkanna í myndinni og er fjölskyldan af þeim sökum
búsett í London þessa dagana þar sem tökur fara fram.
Þrátt fyrir ungan aldur er Vivienne ekki með neinn
slorsamning en hún fær rúmar 300 þúsund krónur fyrir
vikuna auk þess að vera með dagpeninga upp á átta þús-
und íslenskar krónur. Sú stutta ku una sér vel á tökustað
en hún á eflaust eftir að vekja athygli er myndin verður
frumsýnd á næsta ári. Þess má geta að önnur ung leikkona
var fengin til að leika Jolie unga að aldri en þær mæðgur
þykja ekki mjög líkar.
Þénar rúm 300 þúsund á viku
Hin fj ögurra ára gamla Vivienne Marcheline Jolie-Pitt er mætt á hvíta tjaldið.
AFKVÆMIÐ Á HVÍTA TJALDIÐ Yngsta dóttir Angelinu
Jolie og Brads Pitt hefur landað sínu fyrsta kvikmynda-
hlutverki. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Jennifer Aniston ætlar
ekki að gera mikið úr afmælinu
sínu á mánudaginn en þá verður
hún 44 ára. Hún verður í tökum á
afmælisdaginn í Connecticut en
hún fer með hlutverk í myndinni
Untitled Elmore Leonard Project.
„Ég verð sótt klukkan 5.30 um
morguninn á afmælis daginn en
það er ekkert svo slæmt. Ég er
heppin að vera að vinna,“ segir
Aniston og kveðst ekki vilja gera
of mikið úr afmælinu í viðtali
við tímaritið People. „Ég mundi
gjarna vilja rölta um í bænum
og fá mér gott að borða í tilefni
dagsins.“ Ekki fylgir sögunni
hvort unnusti leikkonunnar,
Justin Theroux, verði á tökustað
með Aniston á afmælisdaginn.
Vinnur á
afmælinu
ENGIN HÁTÍÐAHÖLD Jennifer Aniston
verður 44 ára á mánudaginn en hún
ætlar ekki að gera mikið úr afmælis-
deginum. NORDICPHOTOS/GETTY
Gamanleikarinn Steve Martin og eigin-
kona hans, Anne Stringfield, eignuðust sitt
fyrsta barn á dögunum. Parið hafði haldið
fréttunum frá fjölmiðlum þar til nú.
Martin og Stringfield eru talin hafa eign-
ast barn í desember en höfðu haldið
fréttinni leyndri fyrir fjölmiðl-
um. Parið sást með barnið nærri
heimili þeirra í Los Angeles fyrir
stuttu og þá fóru sögu sagnir á
kreik. „Þau eiga barn. Hvern-
ig þau fóru að því að leyna því,
það veit enginn. Steve er mjög
umhugað um einkalíf sitt,“ hafði
New York Post eftir heimildar-
manni. Martin er 67 ára gamall
og Stringfield er 41 árs.
Orðinn pabbi
Scarlett Johansson sóttist eftir
hlutverki Fantine í söngvamynd-
inni Les Miserables á sínum tíma.
Leikkonan Anne Hathaway hlaut
þó hlutverkið að lokum.
„Ég hugsa að það hafi ekki verið
nokkur leið fyrir mig að gera
betur en Anne. Leikur hennar var
fullkominn og forlögin ætluðu
henni hlutverkið,“ sagði Johans-
son sem þjáðist af barkabólgu
daginn sem prufurnar fóru fram.
Aðrar leikkonur sem sóttu
prufur fyrir hlutverkið voru
Jessica Biel, Amy Adams, Marion
Cotillard, Kate Winslet og
Rebecca Hall.
Vildi hlutverk í
Les Miserables
VILDI FANTINE Scarlett Johansson
sóttist eftir hlutverki í Les Miserables.
NORDICPHOTOS/GETTY
ORÐINN PABBI Steve
Martin er talinn hafa
eignast sitt fyrsta barn í
desember.
5 stjörnu FIT
Innifalið:
• Lokaðir tímar 3x í viku
• Leiðbeiningar um mataræði sem er
sérstaklega samsett til að tryggja
þátttakendum 5 stjörnu árangur
• Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar
uppskriftir frá Ágústu Johnson
• Mælingar og vigtun fyrir og eftir
fyrir þær sem vilja
• Dekurkvöld í Blue Lagoon spa
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu
- jarðsjávarpotti og gufuböðum
• 10% afsláttur af öllum meðferðum í
Blue Lagoon spa
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná
5 stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
tímasetningu og skráningu finnur þú á
www.hreyfing.is
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form
Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi
sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það
sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta
og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt.
Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að
breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt.
Áhersla er lögð á þægilega tónlist.
Náðu 5
stjörnu formi