Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 24. apríl 2013 | SKOÐUN | 19 Ég hef sjaldan látið góða tísku- bólu fram hjá mér fara. Ég fékk mömmu til að klippa á mig tjásu- topp eins og Eiríkur Hauksson var með daginn eftir að Gleðibank- inn sigraði undankeppni Júró- visjón. Ég hljóp um á klumbuskóm á barmi ökklabrots svo mánuðum skipti eftir að hljómsveitin Spice Girls söng: „Yo tell me what you want, what you really, really want“. Ég get því ekki látið hjá líða að máta hér með þann stakk sem fólk mun vafalaust taka að klæðast í auknum mæli í opinberri umræðu eftir að formaður Sjálfstæðis- flokksins kom, sá og sigraði með laginu Bjarna-blús í viðtali í Sjón- varpinu fyrir skemmstu: Einlægni. Í viðtalinu lýsti Bjarni Bene- diktsson áhyggjum sínum af fylgi flokksins í skoðanakönnunum og óvissri framtíð hans. Hann horfði stórum, mógráum augum á þáttarstjórnendur og kvaðst svo fullur efa um eigin burði til að leiða Sjálfstæðisflokkinn áfram að hann íhugaði að segja af sér for- mennsku. En svo framúrskarandi var frammistaða formannsins að ekki aðeins á hún skilið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna heldur jókst fylgi Sjálfstæðisflokksins nógu mikið við hana til að allt tal um afsögn formannsins gufaði upp eins og dögg að sumarmorgni. Um leið og ég segi bravó Bjarni geri ég hér með tilraun til að endur spegla sambærilega ein- lægni, sjálfsefa, áhyggjur og ótta við hvað framtíðin ber í skauti sér – nema hinum megin við atkvæðið. Játningar stjórnmálamanns slógu í gegn. Það sem fylgir hér á eftir eru játningar kjósanda. Upp úr klósettskálinni Ég er eigi kona einsömul. Eftir að hafa mánuðum saman þurft að rífa höfuðið upp úr klósettskálinni með handafli til að mæta til vinnu á morgnana svo gegnsýrð af horm- ónum að misritað orð getur kallað fram táraflóð á við það sem kennt er við Nóa og heimskuleg ummæli stjórnmálamanns í kosningaslag jafnmikla réttláta reiði og Adam og Eva fengu að kynnast þegar þeim var sparkað út úr aldingarð- inum hefur afkvæmið hlotið bráða- birgðanafnið Skrímslið. Áhyggjur mínar er varða nánustu framtíð lúta einkum að ótta við að ég sé búin að tapa bar- áttunni við að finna gallabuxur sem passa yfir óléttuvömbina og líta ekki út eins og tískuslys frá áttunda áratugnum. Horfi ég hins vegar aðeins lengra fram á veginn tekur við uggur yfir þeim praktísku vafamálum sem allir foreldrar þurfa að glíma við: Form- úla eða brjóstamjólk? Taubleiur eða pappírsbleiur? Viskílögg í pelann eða ekki? Helsta birtingarmynd óttans við eigin vanhæfni er draumur sem mig dreymir reglulega: Skrímslið er komið í heiminn en ég er búin að týna því, ég finn það hvergi sama hvað ég leita, í bakaraofninum, fataskápnum, skottinu á bílnum – alveg eins og Bjarni Ben óttast að hann sé búinn að týna fylgi Sjálf- stæðisflokksins. Og rétt eins og Bjarni hefur áhyggjur af því hvaða afleiðingar komandi kosningar munu hafa fyrir framtíð flokks hans hef ég áhyggjur af því hvaða áhrif þær munu hafa á framtíð Skrímslisins. Þynnka á Mývatni Þrír dagar eru til kosninga og flest bendir til þess að Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur gangi senn í eina sæng. Síðast þegar þessir tveir flokkar rugluðu saman reytum skildi samband þeirra eftir sig svo sviðna jörð að nú, sex árum eftir að því lauk, glímum við enn við afleiðingarnar. Ég get því ekki annað en velt fyrir mér eftirfarandi spurningum: - Þegar Skrímslið er orðið ung- lingur og fer á útihátíð á Akur- eyri í óþökk foreldranna sem vildu heldur að það væri heima um verslunarmannahelgina og æfði sig á píanóið, læsi Schopen- hauer og sannaði hina ósönnuðu stærðfræðitilgátu Riemanns, mun það geta komið við á Mývatni í þynnkunni og notið fegurðar þess eins og þunnir útihátíðagestir hafa gert kynslóðum saman? Eða mun stöðuvatnið hafa hlotið sömu örlög og Lagarfljót, skorpnað sökum ósvalandi virkjanaþorsta stjórn- málamanna á höttunum eftir skjót- fengnum gróða (í besta falli) eða fleiri atkvæðum (í versta falli)? - Þegar Skrímslið verður dregið með í Kringluna til að kaupa í mat- inn þar sem það mun spranga um með hauspoka, svo mikil skömm er að sjást með foreldrum á almanna- færi, mun það þá enn rýja fólk inn að skinni að fæða kjarnafjöl- skylduna því fósturjarðarelskandi einangrunarsinnar á Alþingi vilja ekki leyfa innflutning á mat vælum sökum þess hve fögur íslenska sauðkindin er? - Þegar Skrímslið fer út á vinnu- markaðinn til þess að safna sér pening svo það geti flutt að heiman og losnað undan yfirþyrmandi for- eldrunum sem hafa ekki enn gefið upp vonina um að það leysi tilgátu Riemanns, munu skattar þess enn þá fara í að greiða niður kosninga- loforð Framsóknarflokksins frá árinu 2013 um glæfralegar niður- fellingar skulda í skiptum fyrir atkvæði? - Þegar Skrímslið fer að búa, mun það lifa við sömu háu vextina, verðbólguna og óstöðuga gjaldmið- ilinn og við gerum nú vegna þess að fánaveifandi þjóðerniskútum þykir þorskurinn á íslensku krón- unni blika fallegar en flúr annarra gjaldmiðla? - Mun Skrímslið búa við gjald- eyrishöft? Mun það sjá nýja stjórnar skrá? Mun það njóta arðs af náttúruauðlindum landsins eða mun hann fara í vasa flokksgæð- inga að þjóðlegum sið? Umbun í dag Af niðurstöðum skoðanakannana að dæma virðist sem framtíðin skipti kjósendur litlu. Með atkvæði sínu kjósa þeir umbun í dag – niður fellingu persónulegra skulda, stórframkvæmdir í kjördæmi sínu – sama hver kostnaðurinn kann að vera fyrir komandi kynslóðir. Við Skrímslið segi ég því: Sorrí. Mun Skrímslið búa við gjaldeyrishöft? Mun það sjá nýja stjórnar- skrá? Íslenskir stjórnmála- og athafnamenn hafa alltaf hugs- að stórt. Nýjust er hug- myndin um að setja niður stór hótel í miðri Reykjavík í stað þess að nýta minni húsrými sem þegar eru til staðar í miðbæjarhverfunum. Það á líka að byggja sjúklega dýran risaspítala í borginni á kostnað minni eininga grunnþjón- ustunnar í nærumhverfi fólks. Vegna stórlausnahugsunar höfum við risavaxin stóriðjuver en fá lítil iðnfyrirtæki. Ofurvirkjanir byggðar með risalánum í stað minni umhverfis- vænni virkjana. Miklar auðlindir en lítinn arð af þeim. Fáar stórútgerðir í stað fjöl- mennrar smábátaútgerðar í litlum byggðum. Fáa stóra banka í stað margra lítilla sparisjóða. Vildardíla fyrir stórfyrirtæki en engan stuðning við smáfyrirtækin sem eru 80% atvinnulífsins. Gígantískar skuldaniðurfell- ingar til stóreignamanna meðan smáfuglarnir éta það sem úti frýs. Risavaxnar ríkisskuldir eftir langvarandi fjármála fyllerí stjórnmála- og athafnamanna landsins. Ef við bara fengjum frið fyrir stórhuga stjórnendum væri þessi duglega smáþjóð líklega í fínum málum. Hugsum smátt – kjósum smátt. Fegurð hins smáa KOSNINGAR Sverrir Björnsson hönnuður FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU VERNDUN ÞJÓRSÁR„ – ÞESS VEGNA KÝS ÉG VG“ PÁLÍNA AXELSDÓTTIR NJARÐVÍK NÁMSMAÐUR Játningar kjósanda Í DAG Sif Sigmarsdóttir rithöfundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.