Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 13
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 13
ÞOKAST ÁFRAM Framkvæmdastjórn
ESB telur að Serbía uppfylli skilyrði fyrir
því að aðildarviðræður geti hafist.
NORDICPHOTOS/AFP
BRUSSEL Framkvæmdastjórn ESB
hefur mælst til þess við aðildar-
ríkin að formlegar aðildarviðræð-
ur verði teknar upp við Serbíu.
Þessi yfirlýsing kemur í kjöl-
far þess að Serbía og Kósóvó
undirrituðu sáttasamning í síð-
ustu viku þar sem meðal annars
var kveðið á um aukna vörn til
handa serbneska minnihlutanum
í Kósóvó. Framkvæmdastjórnin
leggur einnig til að samskipti ESB
við Kósóvó verði færð á næsta stig
með boði um þátttöku í ýmsum
verkefnum ESB. Óvíst er þó hve-
nær samningaviðræður milli ESB
og Serbíu hefjast ef af verður. - þj
Framkvæmdastjórn ESB:
Vilja viðræður
um aðild Serbíu
HVOLSVÖLLUR Sveitarstjórn
Rangárþings eystra gekk á dög-
unum frá kaupum á lóð og húsum
við Austurveg á Hvolsvelli fyrir
70 milljónir króna. Húsinu á að
breyta í ráðhús og koma starf-
semi sveitarfélagsins þar með
undir eitt þak. Frá þessu segir á
vef Dagskrárinnar.
Þar er jafnframt vitnað í bókun
minnihlutans í sveitarstjórn sem
segist styðja kaupin, en óskar
eftir nánari útlistun á kostnaði
við endurbætur húsnæðisins. - þj
Rangárþing eystra:
Kaupa húsnæði
fyrir ráðhús
IÐNAÐUR Fyrirtækið Valka fékk
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013.
Helgi Hjálmarsson, fram-
kvæmdastjóri Völku, veitti verð-
laununum móttöku á Nýsköpunar-
þingi á Grand Hóteli Reykjavík
fyrir helgi. Þar var sérstaklega
fjallað um stöðu „sprettfyrir-
tækja“, en svo nefnast fyrirtæki
sem vaxið hafa hratt.
Valka er hátæknifyrirtæki sem
sérhæfir sig í hönnun á tækjum
og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu.
Fyrirtækið var stofnað árið 2003,
en þar starfa nú átján manns við
tækjahönnun, hugbúnaðargerð,
framleiðslu og sölu. - óká
Nýsköpunarverðlaun afhent:
Hanna tæki og
hugbúnað fyrir
fiskvinnslu
UMFERÐIN Banaslysum í umferð-
inni hefur fækkað mikið á síðustu
árum. Samkvæmt slysaskýrslu
Umferðarstofu 2012 létust níu
manns í umferðinni árið 2012, sem
er um 28 á hverja milljón íbúa en
það er með því allra lægsta í heim-
inum.
Síðastliðin fimm ár, eða á árun-
um 2008 til 2012, hafa 58 látist
í umferðarslysum á Íslandi en
næstu fimm ár þar á undan, 2003
til 2007, létust 111 með sama hætti.
Það er um 48 prósenta fækkun.
Enginn lést vegna ölvunar við
akstur á síðasta ári og er það eins-
dæmi síðan skráningar hófust
árið 1986. Í skýrslunni kemur hins
vegar fram að einn hafi látist af
völdum fíkniefnanotkunar og einn
vegna löglegra lyfja.
Alvarlega slösuðum fækkar
einnig á milli ára úr 154 í 136,
eða um tólf prósent. Lítið slösuð-
um fækkar einnig talsvert, eða
úr 1.063 í 899, sem er 15 prósenta
lækkun. Í heildina fækkar látnum
og slösuðum úr 1.229 í 1.044.
Slysum meðal ungra ökumanna
á aldrinum 17-20 ára hefur einn-
ig fækkað mjög og þá sérstaklega
frá árinu 2007 þegar svokallað
aksturs bann var sett í lög. Sam-
kvæmt því er handhafi bráða-
birgðaskírteinis settur í ótíma-
bundið akstursbann ef hann fær
fjóra punkta í ökuferilsskrá eða er
sviptur ökuréttindum vegna alvar-
legra umferðarlagabrota. Aksturs-
banninu er ekki aflétt fyrr en að
loknu sérstöku námskeiði og end-
urtöku ökuprófs. - hó
Banaslysum og alvarlegum umferðarslysum hefur fækkað á milli ára:
Enginn lést vegna ölvunaraksturs í fyrra
GÓÐUR ÁRANGUR Banaslysum í
umferðinni hefur fækkað mikið á síð-
ustu árum.
EVRÓPA Dvínandi áhugi virðist
vera á meðal ESB-ríkja á að setja
skatt á fjármagnsflutninga. Ríkin
ellefu sem hafa talað fyrir slíku,
þar á meðal Frakkland og Þýska-
land, virðast vera að heykjast
á áformunum, að því er kemur
fram á vef EUobserver.
Ástæðan er að slíkt gæti aukið
fjármagnskostnað ríkja með
álagi á skuldabréf, auk þess sem
skatturinn gæti verið flóknari
í framkvæmd en áður var talið.
Bretar eru alfarið mótfallnir
skattinum og hafa höfðað mál
fyrir Evrópudómstólnum til að
stöðva málið. - þj
Stefnubreyting í ESB:
Sögð hætta
við skatt á fjár-
magnsflutninga
Baráttan
Samfylkingin í Reykjavík
Hvatningarfundur í
kosningamiðstöðinni
Laugavegi 18b
Í dag, síðasta vetrardag, 24. apríl
klukkan 17
Össur og Sigríður Ingibjörg blása
okkur byr í brjóst
Jóhanna Sigurðardóttir flytur
baráttukveðju
Þorbjörn Guðmundsson talar um
launafólk og jöfnuð
Felix Bergsson stýrir samkomunni
og rifjar upp sigra í mannréttinda-
baráttunni
Kjósum réttlátt og
gott samfélag