Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. apríl 2013 | FRÉTTIR | 11 DAUÐ SVÍN Mikill fjöldi svínshræja hefur verið hreinsaður úr á í Sjanghæ í Kína undanfarnar vikur. Engin skýring hefur fengist á dauða dýranna. NORDICPHOTOS/AFP KÍNA Efnaverksmiðjum í nágrenni þorps í Kína hefur verið lokað eftir að hundruð dauðra svína og hunda fundust í nágrenninu. Ótti hefur gripið um sig meðal íbúanna þar sem engin eðlileg skýring hefur fundist á dauða dýranna. BBC greinir frá því að 410 svín og 122 hundar hafi fundist dauð í þorpinu Dongtun í Henan-hér- aðinu í vikunni. Ljóst er að dýrin voru ekki sýkt af fuglaflensu eða öðrum sjúkdómi og því var efna- verksmiðjunum lokað á meðan á rannsókn stendur. Íbúar þorps- ins kenna eiturgufum úr verk- smiðjunum um dauða dýranna og segja afar sterka lykt hafa legið yfir bænum á mánudag. Meira en 16.000 dauð svín voru dregin upp úr stærstu ánni í Sjanghæ í síðasta mánuði. - sv Efnaverksmiðjum lokað: Engin skýring á dauðum dýrum FLÓTTAMENN Meira en ein milljón Sýr- lendinga hefur flúið landið vegna átaka uppreisnarmanna og stjórnarhersins. NORDICPHOTOS/AFP SÝRLAND, AP Itai Brun, yfir- maður í ísraelsku leyniþjónust- unni, segir augljóst að sýrlensk stjórnvöld hafi beitt efnavopnum gegn uppreisnarmönnum í land- inu í síðasta mánuði. Með því tók hann undir ásakanir breskra og franskra stjórnvalda. Yfirlýsingin eykur þrýsting á bandarísk stjórnvöld að bregðast við. Þau hafa lýst því yfir að ekki verði unað við að efnavopnum verði beitt. Stjórnvöld í Ísrael ótt- ast að efnavopn komist í hendur hópa sem andsnúnir eru Ísrael. Brun sagði líklegt að stjórnvöld í Sýrlandi hefðu beitt taugagas- inu sarin, en benti á að þau hefðu einnig yfir öðrum efnavopnum að búa. - bj Eykur þrýsting á Bandaríkin: Efnavopnum beitt í Sýrlandi DANMÖRK Samtökin Foreldrar og skóli í Danmörku vilja að stjórnvöld grípi inn í til að binda enda á kjaradeilu kennara og sambands sveitarfélaga. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er á þeirri skoðun og að meiri samúð er með sjónar- miðum kennara en sveitarfélaganna. Nú er gengið á fjórðu viku síðan sveitar félögin settu verkbann á kenn- ara til að knýja á um breytingar á vinnu- fyrirkomulagi. Ekkert hefur þokast í samkomulagsátt og er ástandið farið að hafa mikil áhrif á heimilin í landinu, enda þurfa foreldrar að gera ráðstafanir vegna þeirra 600.000 barna sem sitja heima. Ríkisstjórnin hefur ekkert gefið út um hvort og þá hvernig verður gripið inn í en Politiken hefur eftir sérfróðum að þess verði vart langt að bíða. Líklegast verður um lagasetningu að ræða, en stjórnvöld geta nýtt sér flýtimeðferð til að keyra málið í gegnum þingið í einum rykk í stað hinna hefðbundnu þriggja umræðna. Verkbannið gengur nú inn á prófatíma og segir Barnaheill í Danmörku að það sé farið að koma niður á börnunum. Of lítið tillit sé tekið til þeirra hagsmuna. - þj Danskir foreldrar hafa fengið nóg af verkbanni á kennara eftir nær fjórar vikur: Vilja að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilu KJARABARÁTTA Næstum fjórar vikur eru síðan verkbann var sett á um 70.000 danska kennara. Aukinn þrýstingur er á að ríkið höggvi á hnútinn. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Sérstakt gjald á gos- drykki verður afnumið og gjöld á bjór verða lækkuð á næstunni. Þverpólitísk samstaða er um þess- ar aðgerðir á danska þinginu og kemur fyrsti áfangi aðgerðanna til framkvæmda í sumar. Alls er gert ráð fyrir að tekjur ríkisins dragist saman um tæpan milljarð danskra króna vegna þessa, en 360 milljónir skili sér aftur í ríkiskassann þar sem Danir muni síður sækja í að kaupa bjór og gos í verslunum í Þýskalandi. - þj Dönsk stjórnvöld: Lækka gjöldin á gos og bjór Viðræður Íslands við Evrópusambandið snúast um lífskjör og framtíð okkar allra *Könnun Capacent sem gerð var dagana 7. -15. mars. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 61 % klára viðræðurnar en 39% slíta þeim. Spurt var: “Hvort vilt þú klára aðildarviðræður við ESB eða slíta þeim?.” Samkvæmt nýjustu könnunum vilja 61% þjóðarinnar ljúka aðildarviðræðunum við Evrópusambandið.* Við skorum á stjórnmálamenn að virða vilja meirihluta þjóðarinnar þegar kemur að myndun nýrrar ríkistjórnar Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.