Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 18
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 L et‘s Get Lost Land er önnur tveggja tillagna sem valdar hafa verið til úrslita í samkeppni um nýtt nafn fyrir Ísland sem Inspired by Iceland efndi til á heima- síðu sinni. Hvers vegna nauðsynlegt þótti að finna nýtt nafn á landið er ekki ljóst en tengist þó eitthvað þeim álitshnekki sem nafnið Ísland varð fyrir í aðdraganda hruns- ins, hruninu sjálfu og eftirmálum þess. Ísland er ekki lengur óflekkað og söluvænlegt nafn, því tengjast of margar dökkar hliðar. Let‘s Get Lost, sem útleggst týnum okkur, villumst, látum okkur hverfa, er hins vegar kjörið nafn fyrir þetta litla land þar sem draumar flestra virðast einmitt snúast um að týna sér. Týna sér í græðgi, týna sér í heimtufrekju, týna sér í skítkasti, týna sér í tittlingaskít, týna sér í endalausu þrasi. Segja sig úr lögum við umheiminn og ráfa áttavillt um í þrasþokunni. Aldrei hefur þessi áttavilla verið augljósari en á þessum síðustu dögum fyrir kosningar. Kjósendur flykkjast um þá flokka sem kynda undir villtustu vonunum og skella skolla- eyrum við því þótt bent sé á að flest séu loforðin óefnanleg og gylliboðin innantóm. Kjósendur vilja meira fyrir sinn snúð, lægri skuldir, betri vegi, jarðgöng og brýr, betra heilbrigðis- kerfi, betra menntakerfi, betri kjör og átakaminna líf. Ofarlega á óskalistanum eru líka lægri skattar, þótt vandséð sé hvernig bæta eigi vegi, sjúkrahús og skóla ef enginn er tilbúinn til að borga sinn skerf í samneysluna. Peningarnir eiga bara að koma eins og aukakrónur Landsbankans um árið, hvaðan eða með hvaða hætti virðist algjört aukaatriði. Kjósendur hegða sér eins og keipakrakkar og heimta sitt gotterí og leikföng hvort sem foreldrarnir eiga fyrir þeim eða ekki. Þeir frambjóðendur sem mestrar hylli njóta virðast hafa áttað sig á þessu strax í upphafi kosningabaráttu. Allur þeirra málflutningur gengur út á loforð sem snúa beint að ein- staklingnum. Hvað þú færð í þinn hlut prívat og persónulega, skítt með heildina. Stjórnarflokkarnir þumbast við að reka sinn kosningaáróður út frá því sem þeir hafi gert vel á kjör- tímabilinu og leggja áherslu á velferð heildarinnar, en þar sem fólk hefur ekki séð krónunum fjölga í eigin vasa með þeim aðgerðum fellur sú áróðurstækni í grýttan jarðveg. Ein- staklingshyggjan og sérgæskan virðist ráða valinu hjá flestum kjósendum. Let‘s Get Lost Land getur líka haft merkinguna látum okkur hverfa úr samfélagi þjóðanna. Felum okkur í eigin þjóðhyggju og rembingi og gleymum því að við erum hluti af stærri heild með þau réttindi og skyldur sem því fylgja. Við erum auð- vitað mest og best og þurfum ekkert á öðrum þjóðum að halda. Förum öll á íslenska kúrinn, hættum að taka þátt í stuðningi við vanþróaðri þjóðir, lokum á ESB og lifum hamingjusöm í týnda landinu upp frá því. Let‘s get lost. Loksins fær Ísland nafn við hæfi: Týnum okkur í sérgæskunni Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Aðalfundur FAAS Aðalfundur FAAS – félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma - verður haldinn föstudaginn þann 10. maí 2013 á Grand Hóteli, Sigtúni 38 í Reykjavík og hefst hann kl. 17:30 Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Vakin er athygli á að samkvæmt lögum FAAS hafa þeir einir rétt til að sitja aðalfund sem lokið hafa greiðslu árgjalds liðins árs. Heilbrigðisþjónusta óháð efnahag er eitt stærsta velferðarmálið. Samfylkingin mun því nýta það svigrúm sem er að skap- ast í ríkisrekstrinum til uppbyggingar í heilbrigðismálum og við höfum nú þegar náð fram mikilvægum umbótum til jöfn- uðar í heilbrigðiskerfinu. Tannlækningar barna Nýr samningur um tannlækningar barna hefur verið undirritaður, sá fyrsti í 21 ár. Framvegis munu öll börn hafa sinn eigin heimilistannlækni sem mun boða börn í reglulegt eftirlit, sjá um forvarn- ir og aðrar nauðsynlegar tannlækningar þeirra. Foreldrar munu einungis greiða komugjald sem ákveðið verður með reglu- gerð. Réttlátara lyfjagreiðslukerfi Nýja lyfjagreiðsluþátttökukerfið er ein- faldara og réttlátara en núgildandi kerfi. Það mun auka jöfnuð, hætta að mis- muna sjúklingum eftir sjúkdómum og verja þá sem mest þurfa á lyfjum að halda fyrir miklum kostnaði. Þeir sem lítið nota af lyfjum munu þurfa að borga meira en áður. Öryrkjar, aldraðir, börn og barnafjölskyldur eru varin fyrir háum greiðslum öðrum fremur. Velferðarráð- herra hefur gefið út nýja reglugerð um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun og stór- hækkað fjárhæða- og tekjumörk til að mæta aðstæðum tekjulágra sem kunna að lenda í erfiðleikum með upphafs- greiðslur fyrir lyf í nýju lyfjagreiðslu- þátttökukerfi. Samfylkingin vill útvíkka kerfið þannig að það nái einnig til heil- brigðisþjónustu. Nýr Landspítali Samfylkingin mun leggja ofuráherslu á byggingu nýs Landspítala til að tryggja öryggi sjúklinga, boðlegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og til að auka rekstrar- hagræði. Með nýju sjúkrahúsi munu um þrír milljarðar sparast árlega í rekstri en sjúkrahúsið er í sautján byggingum í dag. Betri almannatryggingar Fyrsta velferðarmál Samfylkingarinn- ar eftir kosningarnar verður að leggja fram frumvarp um nýtt almannatrygg- ingakerfi. Með nýju kerfi munu meðal- talsgreiðslur til ellilífeyrisþega hækka um 25% og kerfið verður einfaldara og skiljanlegra. Sambærilegar breytingar fyrir örorkulífeyrisþega eru forgangsmál á næsta kjörtímabili. Við viljum jöfnuð og velferð óháð efna- hag – þess vegna er mikilvægt að styðja Samfylkinguna í kosningunum á laugar- dag. Samfylkingin er velferðarfl okkur VELFERÐAR- MÁL Sigríður Ingibjörg Ingadóttir 1. sæti Samfylk- ingar í Reykjavík suður Hugmynd Skuldaleiðréttingarhugmyndir Fram- sóknarflokksins njóta ekki alls staðar jafnmikillar hylli. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Brynjar Níelsson, væntanlegur þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, hefði talað þær í kaf á fram- boðsfundi hjá Reykjavíkurborg og sæi ekki fyrir sér að hægt yrði að koma þeim fyrir með raunhæfum hætti í stjórnarsáttmála flokkanna tveggja. Það sama er að segja um hina stóru flokk- ana. Eiríkur Jónsson, formaður Kennara- sambandsins, er hins vegar með nýstárlega lausn á þessum vanda sem menn ættu að gefa gaum. Einfalt Eiríkur veltir lausninni upp á Facebook: „Verði niðurstaða þingkosninga í samræmi við skoðanakannanir legg ég til að Framsókn myndi minnihluta- stjórn sem verði varin falli á meðan flokkurinn lækkar skuldir allra um 20%, og afnemur verðtryggingu og setur vaxtaþak á óverðtryggð lán í samræmi við kosningaloforð, allt án þess að íþyngja skattgreiðendum eða auka verðbólgu. Það eina sem flokkurinn þarf að lofa er að láta náttúru landsins njóta vafans og einkavæða ekki ríkis- fyrirtæki á meðan. Fái þeir að gera þetta einir og óáreittir tekur þetta örugglega fljótt af. Ef þetta gengur eftir er ég viss um að aðrir flokkar verða fúsir til að ganga til formlegs stjórnarsamstarfs við flokkinn. Einfalt og allir ánægðir?“ Ekki í framboði Þingmaðurinn Mörður Árnason, sem gæti nú verið á útleið af þingi, vekur athygli á því á bloggsíðu sinni að eini umræðufundurinn um umhverfismál og náttúruvernd hafi farið fram í Há- skóla Íslands í fyrradag. Þangað hafi allir flokkar sent fulltrúa. Fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins hafi verið lítt þekktur maður sem heitir Magnús Júlíusson, sem sé ekki einu sinni á framboðs- lista fyrir komandi kosningar. Það er spurning hvað það segir um áherslur flokksins í umhverfismálum. stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.