Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 24
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Ég mun verja deginum í að búa mig undir að mæta í afmælisveislu sem börnin mín gefa mér í afmælisgjöf og verður haldin milli fimm og sjö í dag,“ svarar Hörður Bergmann spurður hvernig hann hyggist verja afmælis- deginum. Hann segist ekki vita í smá- atriðum hvað boðið verði upp á í veisl- unni. „En ég veit allavega að ég ætla að halda þar ræðu eins og ég geri yfirleitt þegar fjölskyldan kemur saman. Þarna verður hins vegar fleira fólk þannig að þetta verður svona í framhaldi af því sem ég hef verið að pæla í og skrifa um ævina og ég vona sannarlega að fyrr- verandi samstarfsmenn komi þarna og mæri verk mín.“ Ertu enn þá að skrifa? „Ég hef mest skrifað þjóðfélagsrýni um þróun þjóð- félags og lífshátta og síðasta bókin af því tagi kom út fyrir kosningarnar 2007. Hún heitir Að vera eða sýnast – gagnrýnin hugsun á tímum sjónar- spilsins og náttúrulega ætti hún ekk- ert síður erindi á markað núna þegar kjósendur standa frammi fyrir því að greina á milli sýndar og þess sem er í raun. Það er aðalviðfangsefnið enn þann dag í dag.“ Þú ert enn þá titlaður kennari í síma- skránni? „Já, það var lengsti áfanginn á starfsferlinum að kenna í unglinga- skóla. Svo er ég með þessa ástríðu að vera alltaf að messa og kannski bera bækurnar mínar vitni um það að ég þykist stundum vita betur en flestir aðrir. Það fylgir gagnrýnu sjónar- horni.“ Ertu alveg hættur að skipta þér af þjóðmálunum? „Nei, nei, ég er í póli- tískum félögum og mæti á fundi enn þá.“ Hefurðu einhvern tíma verið í framboði? „Já, ég var einhvern tíma á lista hjá Alþýðubandalaginu, en það var nú bara svona upp á punt. Ég hef aldrei verið duglegur að taka þátt í kosningabaráttu. Ætli maður sé ekki svolítið einrænn og kunni best við að pæla út af fyrir sig og glíma við að senda frá sér sæmilegan texta.“ En ertu enn þá vinstrisinnaður? „Já, já, ég hef reynt að endurnýja skilning minn á því sem er að gerast og hvað sé skyn- samlegt að segja og ætli það falli ekki vinstra megin þegar það er skoðað.“ Það er töluverður tími síðan þú hættir að vinna, snýst lífið enn þá um að skoða og skilgreina þjóðfélagið? „Það sem ég fæst við tengist nú minna og minna einhverri rýni í heims- ósómann og að bregðast við honum. Ég legg meira upp úr samskiptum við góða félaga og vini. Svo er maður í rólegheitum að dunda við einhverja forræktun og koma því í garða hjá börnunum. Tengist maður ekki með aldrinum betur hringrás náttúrunnar? Og er það ekki eldra fólkið sem bíður með sérstakri eftirvæntingu eftir vori og blómum?“ spyr þetta áttræða ung- menni. fridrikab@frettabladid.is Hef þessa ástríðu að vera alltaf að messa Hörður Bergmann, kennari og þjóðfélagsgagnrýnandi, er áttræður í dag. Hann segist sposkur rétt ætla að vona að fyrrverandi samstarfsmenn noti nú tækifærið til að mæra verk hans. Heimsósóminn sé þó minna áhugamál nú en fyrrum. ÁTTRÆTT UNGMENNI Hörður ætlar að nýta daginn í undirbúning fyrir afmælisveislu seinni partinn, þar sem hann ætlar að sjálfsögðu að flytja tölu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hörður Bergmann fæddist 1933 í Keflavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Laugarvatni 1954 og BA-prófi frá Háskóla Íslands 1956 í uppeldisfræði, dönsku og sögu. Hann hefur starfað sem kennari, námsstjóri, fræðslufulltrúi hjá Vinnueftirlitinu og sem framkvæmdastjóri Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Hann hefur samið á þriðja tug námsbóka fyrir grunnskóla og fullorðinsfræðslu og þrjár bækur um þjóðfélagsmál. Hann var kvæntur Dórótheu Einarsdóttur leiðbeinanda, sem lést í ágúst 2011, og á fjögur börn, níu barnabörn og níu barnabarnabörn. Ferill Harðar Bergmann Fjölbreytt úrval legsteina Frí áletrun og uppsetning Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88 Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum) Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði www.granithollin.is Sími 555 38 88 Ástkær maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS SIGURÐSSON Selvogsbraut 15, Þorlákshöfn, lést á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði sunnudaginn 31. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Ási fyrir alla umhyggju og hlýhug, og öllum ættingjum og vinum. Anna Jóhannsdóttir Hafdís Magnúsdóttir Gunnar Benediktsson Valdís Magnúsdóttir Gunnar Halldórsson Sigurður Magnússon Katrín Guðnadóttir Jóhann Magnússon Sigríður Karlsdóttir Magnús Ragnar Magnússon Hólmfríður Einarsdóttir börn og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR EMIL INGVASON Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Hæðargarði 29, Reykjavík, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, miðviku- daginn 17. apríl, verður jarðsunginn frá Garðakirkju föstudaginn 26. apríl kl. 15.00. Ingvi Rúnar Grétarsson Virginia K. Grétarsson Anna Margrét Grétarsdóttir Brynjólfur Grétarsson Elín Sigrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Brekku, Garði, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, laugardaginn 13. apríl. Útförin verður frá Útskálakirkju, föstudaginn 26. apríl kl. 14.00. Kristján Vilhjálmsson Vigdís Böðvarsdóttir Sigurður Vilhjálmsson Kristjana Vilhjálmsdóttir Friðrik Ágúst Pálmason Halldór Vilhjálmsson Gunnhildur Ásgeirsdóttir Vilhjálmur Vilhjálmsson Stefanía Vilhjálmsdóttir Kristinn Kristinsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar hjartkæra SIGRÍÐUR ÓSK GEIRSDÓTTIR Hátúni 12, Reykjavík, sem andaðist þann 10. apríl sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26. apríl kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjálfsbjargarfélagið í Reykjavík. Signý Þ. Óskarsdóttir Þorkell G. Geirsson Egill Þorkelsson Agnes Þorkelsdóttir Jón Eiríksson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ORMAR EDWALD sem lést þriðjudaginn 16. apríl, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn 26. apríl kl. 13.00. Ágústa Úlfarsdóttir Edwald Jón Haukur Edwald Álfheiður Magnúsdóttir Birgir Edwald Ragnheiður Óskarsdóttir Helga Edwald Eggert Edwald Jacqueline McGreal Kristín Edwald barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GRÉTARS MAGNA GUÐBERGSSONAR jarðfræðings, Hvammkoti í Skagafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og hjúkrunarþjónustu Karitas fyrir góða umönnun. Guðný Þórðardóttir Sigfús Grétarsson Þórður Grétarsson og fjölskyldur. Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, MARÍA JÓNÍNA SIGURÐARDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Þórunnarstræti 91, Akureyri, lést föstudaginn 19. apríl sl. á Hjúkrunar- heimilinu Lögmannshlíð. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 29. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Öldrunarheimili Akureyrar eða Oddfellowregluna á Akureyri. Gunnar Jónsson Svanhildur Daníelsdóttir Daníel Gunnarsson Sigurður Þorri Gunnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.