Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 52
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 36 Barry Hogan er stofnandi ensku tónlistarhátíðarinnar All Tomorr- ow´s Parties sem verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi í lok júní. Á meðal hljómsveita sem stíga þar á svið eru Nick Cave and the Bad Seeds, Deerhoof, The Fall, The Notwist, Chelsea Light Moving, Thee Oh Sees, múm og Mugison. Hogan líst vel á að halda hátíðina á gamla varnarliðssvæðinu í Kefla- vík. „Tómas Young, samstarfs- aðili okkar á Íslandi, hafði sam- band við okkur og benti okkur á gamla NATO-herstöð. Hann sagði að ef við hefðum áhuga á að halda ATP á Íslandi væri þetta rétti stað- urinn,“ segir hann. „Við Debo- rah [Kee Higgins, samstarfs- og eigin kona Hogans] vorum á leið- inni til New York síðasta sumar og ákváðum að koma við á Íslandi til að skoða aðstæður og þær henta fullkomlega. Þetta er dálítið svip- að og svæðið sem við erum með á Englandi. Það er allt til alls þarna. Þegar Bandaríkjamenn yfirgáfu svæðið fyrir sex til sjö árum skildu þeir allt eftir í góðu ásig- komulagi. Þarna er hljóðver, kvik- myndahús og bar,“ segir hann og er spenntur fyrir því að feta nýjar slóðir. „Margar íslenskar hljómsveitir hafa spilað á ATP. Sigur Rós kom fram á fyrstu hátíðinni og þá spil- aði hún fyrir 500 pund. Ég held að Sigur Rós kosti eitthvað meira núna,“ segir Hogan og hlær. „Við erum miklir aðdáendur íslenskr- ar tónlistar og allir Íslendingarnir sem við höfum hitt hafa sýnt okkur mikinn stuðning, þannig að okkur fannst þetta alveg borðleggjandi dæmi.“ Hogan stofnaði All Tomorrow´s Parties árið 1999 og hélt hátíðina á sumarleyfissvæðinu Camber Sands í East Sussex á Englandi, þar sem hún hefur verið haldin allar götur síðan. „Þegar við byrj- uðum voru ekki margar „alterna- tive“-hátíðir í gangi. Það besta sem var í boði voru hátíðir eins og Reading. Þar var hægt að sjá bönd eins og Nirvana, Cop Shoot Cop og Royal Trux, sem var hið besta mál. En það voru kannski þrjár hljómsveitir af eitt hundrað sem voru góðar en restin var ekk- ert sérstök,“ fullyrðir hann. „Við vildum safna saman 30-40 upp- áhaldssveitum í smærra umhverfi þar sem fólk getur til dæmis gist í herbergjum með salernisaðstöðu í stað þess að deila með sér klósetti. Þetta varð eiginlega til af nauðsyn því fólk var orðið þreytt á að fara á staði eins og Reading en það voru engir aðrir valkostir í boði. Það má segja að ATP hafi opnað flóðgáttir því núna virðast vera „alternative“-hátíðir úti um allt.“ Frá árinu 2000 hefur All Tomor- row´s Parties breitt úr sér og verið haldin víðs vegar um Bret- landseyjar, auk þess að ferðast til Spánar, Ástralíu, Japans og Bandaríkjanna. Aðspurður seg- ist Hogan ánægður með hvern- ig til hefur tekist. „Þetta hefur verið rússíbana reið, upp og niður en þetta hefur verið gaman. Við höfum unnið með mörgum góðum hljómsveitum og listamönnum, allt frá Portishead og Nick Cave til Ennio Morricone. Við erum mjög stolt af tónlistinni sem við höfum getað boðið upp á.“ Hann segir enga eina tónlistarstefnu fylgja hátíðinni heldur er aðalatriðið að músíkin sé góð. „Við getum verið með hipphopp, elektróník, teknó og indírokk. Svo lengi sem þetta er almennileg tónlist viljum við bjóða upp á hana.“ Ef hátíðin gengur vel í sumar, kemur þá til greina að halda ATP á Íslandi aftur að ári? „Af hverju ekki? Ég hef bara einu sinni komið til Íslands og þá fannst mér mjög leiðinlegt að yfirgefa landið. Ég myndi vilja gera eins marga hluti þar og ég get. Ég hlakka mikið til að halda hátíðina á Íslandi. Við erum mjög ánægð með að Nick Cave and the Bad Seeds ætli að spila þar og þetta ætti að vera frá- bært í alla staði. Þetta er óvenju- leg staðsetning og dálítið úr leið fyrir marga en ef fólk gerir sér ferð á staðinn ætti það ekki að sjá eftir því.“ freyr@frettabladid.is Gamla herstöðin er fullkominn staður Stofnandi tónlistarhátíðarinnar All Tomorrow´s Parties er mjög spenntur fyrir því að halda hana í fyrsta sinn á Íslandi. Hann segir dæmið vera borðleggjandi. BARRY HOGAN Stofnandi All Tomorrow´s Parties er mjög spenntur fyrir hátíðinni sem verður haldin á Íslandi í sumar. MYND/DEBORAH KEE HIGGINS Mikill fengur er að fá hina heimsfrægu Nick Cave and the Bad Seeds til Íslands. „Nick Cave spilaði á Íslandi 2006 og 2003 en hefur ekki spilað þar með Bad Seeds síðan 1986. Ég sá þá í Ástralíu fyrir skömmu og verð að segja að það eru einir bestu tónleikar sem ég hef séð með þeim. Þeir voru hreint út sagt magnaðir og Íslendingar sem kaupa miða á hátíðina eiga gott í vændum,“ segir Hogan. Hann telur upp fleiri sveitir sem spila á ATP á Íslandi: „Thurston Moore úr Sonic Youth er með nýtt band sem heitir Chelsea Light Moving. Það er virkilega gott og hljómar eins og frá tímanum þegar Sonic Youth gaf út Daydream Nation, með dálítið miklum bassa. Svo verða þarna Deerhoof, The Notwist, hin goðsagnakennda The Fall með Mark E. Smith og Thee Oh Sees, sem er líklega eitt besta tónleikaband heims í dag. Ég er líka mjög spenntur fyrir heimaböndum eins og Ghostigital, múm og Mugison og er ánægður með að geta boðið upp á góðar íslenskar hljómsveitir.“ Nick Cave og félagar í frábæru formi Sigur Rós kom fram á fyrstu hátíðinni og þá spilaði hún fyrir 500 pund. Tuttugu fl ytjendur koma fram á Íslandi, þar af sjö erlendir. 20 Hætt var við að fjalla um áfeng- issýki Tonys Stark í þriðju Iron Man-myndinni sem er væntan- leg í bíó. „Í fyrsta uppkastinu var Tony meiri rokk og ról týpa. Alkó- hólismi er stórt vandamál en ég held að það sé ekki endilega besti „vondi karlinn“ í kvikmyndum,“ sagði handritshöfundurinn Drew Pearce. Leikstjórinn Shane Black bætti við í viðtali við Comicbookmo- vie.com: „Kvikmyndaverið sagði okkur að Tony Stark ætti að vera auðjöfur og klikkaður gaur, og stundum vondur, en það passaði ekki að hann væri alkóhólisti.“ Áfengissýkin í burtu EKKI ÁFENGISSJÚKUR Robert Downey Jr. leikur Tony Stark í Iron Man 3. sími: 511 1144 GAR ÐIN N GARÐA HÖNNU NPANTAÐU RÁ ÐGJÖF VIÐ Í SUMAR MUN BJÖRN JÓHANNSSON VEITA VIÐSKIPTAVINUM BYKO RÁÐGJÖF VEGNA FRAMKVÆMDA Í GARÐINUM Hálftíma ráðgjöf kostar 5.900 kr. Sú upphæð nýtist sem inneign þegar keypt er pallaefni í garðinn í BYKO. Skráning á netfangið gudrunhalla@byko.is og í síma 5154144 kl. 10-16 virka daga. PANTAÐU RÁÐGJÖF TILLÖGUR UNNAR Í ÞRÍVÍDD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.