Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR Frábært úrval afþreyingar, ferskar fréttir, fjölbreytt efnisval, myndrænt viðmót og færri flettingar. Þess vegna var visir.is kosinn besti frétta- og afþreyingarvefur ársins á Íslensku vefverðlaunu- num 2012. Minna að fletta meira að frétta F ÍT O N / S ÍA Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það efni sem leitað er að.“ BESTI FRÉTTA- OG AFÞREYINGARVEFURINN Hvað ertu að gera í Vancouver? Ég kynntist Deboruh, konunni minni, árið 2004 og ári síðar lang- aði okkur að hefja nýtt líf saman í Van- couver, heimaborg Deboruh. Áður hafði ég búið vítt og breitt um Banda ríkin; í Kaliforníu, New York, Kólóradó og á Flórída. Ég var afar stolt þegar ég fékk kanadískan ríkisborgararétt árið 2011, þrátt fyrir að þurfa að sverja Elísabetu Englandsdrottningu eið! Hvernig eru heimamenn í dag- legum samskiptum? Upp til hópa eru Vancouver-búar yndislegir og hjálpfúsir, eins og sannir Kanadamenn. Að sumu leyti þykir mér þeir dálítið yfirborðs- kenndir, einkum á austurströndinni. Íbú- arnir koma alls staðar að, flestir frá Asíu, Indlandi, Evrópu, Norðurlöndunum, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Borgarbúar eru yfir höfuð uppteknir en ekki endilega við vinnu heldur útivist. Vancouver er enda mekka útivistar með stórkostleg skíðasvæði, hjólabrautir, fjallgöngur, strandlíf, siglingar og hvaðeina innan borgarmarkanna. Hvað hefur komið þér á óvart? Í upphafi þótti mér ótrúlegt að hitta jafn marga af íslenskum ættum og ég hef gert í Vancouver. Flestir þeirra áttu ömmu og afa sem komu til Kanada á síðari hluta nítjándu aldar, með stoppi í Winnipeg. Gróðurinn hefur einnig komið mér á óvart og ég hafði aldrei séð annað eins, allt frá jólatrjám til pálmatrjáa og blóma- höf eins og regnbogann á sumri í bland við litadýrð laufskrúðsins á haustin. Ég fæ aldrei leiða á árstíðaskiptunum hér. Hvaða staðir eru mest spennandi í kringum þig? Í kring er fullt af frá bærum stöðum en The Haven – A Centre for Growth á Gabriola-eyju hefur heillað mig mest. Þar er skóli sem heldur námskeið í persónulegum og faglegum gróanda. Námskeiðin eru trúlega ekki fyrir alla en þau eru alveg á minni línu enda svolítið nýaldarsinnuð. Mínir uppáhaldsstaðir eru þó ekki auðfundnir og einkum litlar strandir sem eru eins og einkastrandir með útsýni yfir borgina norðan frá séð. Skemmtilegar göngu- og hjóla- leiðir? Vancouver er að reyna að verða hjólaborg og hefur breytt nokkrum ak- brautum í hjólabrautir. Best er að hjóla, skokka, ganga og vera á línuskautum á The Seawall sem liggur hringinn í kring- um borgina og í gegnum Stanley Park, einn fegursta stað Vancouver. Grouse Grind er í uppáhaldi hjá þeim sem vilja halda sér í formi og liggur alla leið upp á Grouse-fjall í Norður-Vancouver. Ég held mig mest nálægt sjó eða vötnum og fer lítið í skógana því þar vantar allt útsýni. Hvernig er maturinn í Vancouver? Hér er endalaust úrval frábærra veit- ingastaða og veitingahúsaeigendur sem betur fer með á nótunum þegar kemur að góðri heilsu og hollum mat. Er gott að versla í borginni? Helstu verslunarstaðir eru á Robson Street, Pacific Center og Granville Street. Unga fólki fer í Norður-Granville og þeir ríku í Suður-Granville. Hvernig eyðir þú frítímanum? Ég keypti mér hjól fyrir stuttu og sé mikið eftir að hafa ekki gert það fyrr. Ég hef líka skroppið á skíði og við förum oft í bíltúra á fyrrnefnda staði til að hafa það huggulegt. Ég byrjaði að mála í fyrra og leik mér að málverkinu við tækifæri. Þá er ég mikil kisukona og vikulegur sjálfboðaliði í „Kattholtinu“ hér. Þar fæ ég mitt kisu-fix þar sem við eigum ekki lengur ketti. ■ thordis@365.is MEKKA ÚTIVISTAR VANCOUVER Ljósmyndarinn Eydís Einarsdóttir hefur alið manninn í Norður- Ameríku undanfarin 23 ár. Hún býr nú, starfar og fær sitt kisufix í Kanada. VESTURFARI Áður en Eydís keypti sér hjól á dögunum naut hún útivistar á línu- skautum í stórkostlegu landslagi borgarinnar. MYNDIR/EYDÍS EINARSDÓTTIR MEISTARI Eydís starfar sem auglýsingaljós- myndari í Vancouver og rekur þar fyrirtækið Studio 80s Photo graphy + Retouching. Skoða má myndir Eydísar á www.studio80s. com og www. studio80sretouch- ing.com Cetirizin- ratiopharm 10 mg - 10 stk., 30 stk. og 100 stk. Fljótt að virka Við einkennum frá augum og nefi Við einkennum langvarandi ofsakláða un N n tvíhýd íð, isl fyrir fullorðna og börn frá 6 ára aldri; ti ð d ennum frá nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs; til að draga úr einkennum langvarandi ofsakláða. Frábendingar: alvarlegur nýrnasjúkdómur, ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju öðru innihaldsefni Cetirizin-ratiopharm eða fyrir hydroxyzini eða píperazín afleiðum. Varúð: Einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi, með flogaveiki eða sem eiga á hættu að fá krampa skulu láta lækninn vita áður en lyfið er notað. Hætta þarf töku lyfsins þremur dögum áður en farið er í ofnæmishúðpróf. Meðganga og brjóstagjöf: Forðast skal notkun lyfsins. Skömmtun: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag. Sjá frekari upplýsingar í fylgiseðli. Algengar aukaverkanir: Þreyta, munnþurrkur, ógleði, niðurgangur, svimi, höfuðverkur, syfja, kokbólga og nefkvef. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2012. otkunarsvið: Cetirizin-ratiopharm inniheldur cetirizi róklór ofnæm yf l a raga úr eink Nú 100 töflur án lyfseðils! FÆST ÁN LYFSEÐILS Í ÖLLUM BETRI APÓTEKUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.