Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 47
MIÐVIKUDAGUR 8. maí 2013 | MENNING | 35
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR 08. MAÍ 2013
Tónleikar
20.00 Þóra Einarsdóttir sópran og
píanóleikarinn Jónas Ingimundarson
flytja glæsilega söngdagskrá með
söngvum eftir Mozart, Schubert og
frönsku meistarana Massenet, Hahn,
Fauré og Debussy, auk fjögurra nýlegra
laga eftir tónskáldið Þorkel Sigurbjörns-
son í Salnum í Kópavogi.
20.00 Vortónleikar Reykjalundarkórsins
verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Stjórnandi er Íris Erlingsdóttir. Píanó-
leikari er Anna Rún Atladóttir.
Fundir
17.30 Sirrý Gunnarsdóttir les á Bóka-
safni Seltjarnarness og kynnir söguna
Lítil saga um latan unga eftir Guðrúnu
Helgadóttur, myndskreytt af Önnu
Cynthiu Leplar.
20.00 Ljóðahópur Gjábakka verður
með Hagyrðingakvöld í Gjábakka, Fann-
borg 8.
Málþing
12.00 Hádegisumræður og kynningar á
rannsóknum um málefni innflytjenda í
Aðalsafni Borgarbókasafns.
Tónlist
12.00 Ómkvörnin verður gangsett.
Henni hefur verið fundinn staður í
iðrum tónlistarhússins Hörpu, þar sem
hún mun mala fram á fimmtudag.
Ómkvörnin frumflytur tónverk tón-
smíðanema við Listaháskóla Ísland.
Hægt er að kynna sér dagskrá
Ómkvarnarinnar á lhi.is og harpa.is.
21.00 Þjóðlagapoppsveitin
Bad Days, með söngkonunni
Bryndísi Ásmundsdóttur og
laga- og textahöfundinum
Eyvindi Karlssyni í broddi
fylkingar, og balkan-
blúsbandið Contalgen
Funeral sameina
krafta sína á Café
Rosenberg.
21.00 Á næstu tónleikum Jazzklúbbsins
Múlans á Munnhörpunni í Hörpu
kemur fram spuna- og þjóðlagasveitin
Veröld fláa. Þar leiða saman hesta sína
bassaleikarinn Gunnar Hrafnsson og
saxófónleikarinn Stefán S. Stefánsson.
Tónlistin byggir á íslensku þjóðlaga-
hefðinni en í hana blandast áhrif frá
spunatónlist djassins og Austurlanda.
22.00 Ojba Rasta og vinir á Volta. Fram
koma Ojba Rasta, Mammút, Geimfarar,
Birkir B, Baddi, og RVK Soundsystem.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Þær Margrét Sesseljudóttir og
Solveig Thoroddsen myndlistar-
menn sýna verk sín í undir-
göngunum undir Miklubraut við
Lönguhlíð næsta laugardag. Upp-
ákomuna kalla þær Avant-garð-
inn og er þetta í þriðja sinn sem
þær sýna undir þeim merkjum.
„Við sýndum í garði við Miklu-
braut einu rigningarhelgina síð-
asta sumar og svo í bakgarði Kex
Hostels í nóvemberskamm deginu,
nú er komið að undirgöngunum,“
segir Solveig sem lofar spenn-
andi sýningu. „Við reynum að
sýna á óvenjulegum stöðum og
undirgöngin falla inn í það. Þar
er maður við mestu umferðaræð
landsins en þegar komið er niður
í göngin þá ertu komin í aðra ver-
öld, þar sem þögnin ríkir.“
Sýningin stendur yfir frá
klukkan fjögur til sex laugar-
daginn 11. maí. - sbt
Sýna í undirgöngum
Avant-garður verður undir Miklubraut á laugardag.
SOLVEIG OG MARGRÉT
Hafa sýnt saman í görðum en færa sig
í undirgöngin undir Miklubraut um
helgina.