Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 16
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 16 BANDARÍKIN, AP „Hjálpið mér. Ég heiti Amanda Berry. Mér var rænt og mín hefur verið saknað í tíu ár, en ég er hér, ég er laus núna.“ Þetta sagði ung kona í samtali við neyðarlínuna á mánudag. Hún slapp úr haldi mannræningja í bandarísku borginni Cleveland ásamt tveimur öðrum konum, Ginu DeJesus og Michele Knight. Berry var sextán ára gömul þegar hún var numin á brott árið 2003 á leið heim frá vinnu á hamborgarastað og er nú 27 ára, Knight var rænt árið 2002 og er nú 32ja ára gömul og DeJesus var fjórtán ára og á leið heim úr skóla þegar henni var rænt árið 2004 og er nú 23 ára. Sex ára gömul stúlka fannst einnig í hús- inu og segir lögreglan að hún sé að öllum líkindum dóttir Berry, en ekki er vitað hver faðir barnsins er. Þrír bræður á sextugsaldri eru í haldi vegna málsins, Ariel, Pedro og Onil Castro. Stúlkurnar fundust í húsi í eigu Ariels. Nágranni Castros, Charles Ramsey að nafni, heyrði hróp frá húsinu þar sem Berry grátbað um hjálp við að sleppa út. Hún gerði svo lögreglunni viðvart, en fram að þessu hafði ekkert vakið grunsemdir nágrannanna um að nokkuð vafasamt væri þar á seyði. „Það var ekkert spennandi við hann [Ariel Castro], þangað til í dag,“ sagði Ramsey. Lögregla hafði að vísu verið kölluð að húsinu einu sinni, eftir að stúlkurnar hurfu. Ramsey sagði að þau hefðu sparkað niður útidyrahurðina og hafi Berry sloppið út með dóttur sína. Enn var flest á huldu í gær um dvöl kvennanna í húsinu, en þær voru útskrif- aðar af sjúkrahúsi eftir læknisskoðun í gær. Frank Jackson, borgarstjóri Cleve- land, sagði að mörgum spurningum þyrfti að svara við rannsókn málsins. Hvarf þeirra Berry og DeJesus vakti mikla athygli í Cleveland og nágrenni á sínum tíma. Minna fór hins vegar fyrir því þegar Knight hvarf, enda var hún nokkru eldri. Amma hennar sagði í viðtali við fjöl- miðla í gær að yfirvöld hefðu gengið út frá því að hún hefði strokið að heiman. Aðstandendur þeirra Berry og DeJesus gáfu aldrei upp vonina um að finna þær á lífi. Móðir Berry vann sleitulaust að því að hafa upp á dóttur sinni, en lést af völdum veikinda þremur árum síðar. thorgils@frettabladid.is Loksins lausar úr prísundinni Þrjár ungar konur voru frelsaðar úr haldi mannræningja í Cleveland á mánudag eftir að hafa verið um og yfir áratug í haldi þeirra. Þrír bræður á sextugsaldri eru í haldi lögreglu vegna málsins. Þær voru taldar af, en ein þeirra ól barn á meðan hún var í haldi. PRÍSUNDIN Í þessu húsi í Cleveland voru konurnar þrjár og stúlkan litla í haldi í áraraðir þar til þeim var bjargað á mánudag. Berry sparkaði niður úti- dyrahurðina með hjálp íbúa í nærliggjandi húsi. NORDICPHOTOS/AFP ENDURFUNDIR Ánægjan leyndi sér ekki þegar Amanda Berry hitti systur sína eftir tíu ára aðskilnað. Með þeim er sex ára dóttir Berry, sem hún átti í haldi, en óvíst er hver faðir hennar er. NORDICPHOTOS/AFP BJARGVÆTTURINN Charles Ramsey, nágranni mannræningjans, aðstoðaði Berry við að sleppa út úr húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Síðustu ár hafa komið upp mörg mál þar sem fólk hefur sloppið úr haldi mannræningja eftir langa vist. Natascha Kampusch (Austurríki) var rænt þegar hún var tíu ára gömul og tókst að sleppa átta árum síðar, árið 2006. Jaycee Lee Dugard (Bandaríkin) var rænt þegar hún var ellefu ára og var fangi dæmds barnaníðings, Phillips Garrido, og konu hans í átján ár áður en hún slapp úr haldi árið 2009. Hún hafði eignast tvö börn með Garrido. Elizabeth Smart (Bandaríkin) var fjórtán ára gömul þegar henni var rænt frá heimili sínu í júní 2002. Hún var í haldi í níu mánuði þar sem hún var beitt stöðugu kynferðisofbeldi þar til henni var bjargað. Elizabeth Fritzl (Austur- ríki) var fangi föður síns, Josefs, í 24 ár þar til árið 2008 þegar hún slapp úr prísundinni. Þá hafði hún alið föður sínum sjö börn. Í haldi ómenna JOSEF FRITZLJAYCEE LEE DUGARD Amanda Berry Sást síðast í apríl 2003, 16 ára Gina DeJesus Sást síðast í apríl 2004, 14 ára Michele Knight Sást síðast í apríl 2002, 21 árs Svo einkennilega vill til að sonur Ariels Castro, manns- ins sem átti húsið þar sem konurnar fundust, var blaða maður hjá staðarblaði þegar Gina DeJesus hvarf og skrifaði sem slíkur um málið. Í umfjöllun hans var fjallað um hversu íbúar væru uggandi vegna öryggisleysis, og talaði hann meðal annars við móður DeJesus. Í viðtali við fjölmiðla sagðist sonurinn vera sleginn og varla trúa því að nokkuð slíkt gæti átt sér stað. ➜ Sonur mannræn- ingja skrifaði um hvarfið FUNDUST HEILAR Á HÚFI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.