Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 62
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 50
Tómas Ingi Tómasson, álitsgjafi
í þættinum Pepsi-mörkin á Stöð
2 Sport og fyrrverandi fótbolta-
maður, vakti mikla athygli er
hann mætti dökkhærður í fyrsta
þátt tímabilsins, en Tómas Ingi
er allajafna ljóshærður. Auk þess
hefur verið skerpt á augabrúnum
Tómasar, eins og hann orðar það.
„Ég ákvað að koma inn í mótið
með pompi og prakt. Ég veit að fólki
leiðist ekki að tala um aðra og mér
skilst að Twitter hafi logað eftir
þáttinn. Helsta ástæðan fyrir því að
ég litaði hárið er sú að mig langaði
að líkjast Loga Bergmann, hann
er mentorinn minn og mín fyrir-
mynd á skjánum. Ég þekki hann vel
og fallegri karlmaður finnst ekki,“
segir Tómas Ingi og hlær.
Hann viðurkennir að breyting-
arnar hafi ekki fallið í kramið hjá
hans nánustu og átti hann sjálfur
erfitt með að venjast þeim í fyrstu.
„Þetta var hræðilegt til að byrja
með. Ég fékk nett áfall þegar ég
vaknaði daginn eftir og leit í spegil
og við mér blasti dökkhærður
maður. Fólkið í kringum mig var
frekar ósátt við breytinguna og ætli
mamma hafi ekki verið svekktust.“
Óráðið er hvort Tómas Ingi
verði dökkhærður fram á haust og
segist hann ætla að láta áhorfendur
Stöðvar 2 um að ákveða framhald-
ið. „Ég ætla að fylgjast með Twitter
og sjá hvað fólk hefur að segja. Ætli
ég verði ekki svona fram á mitt
mót,“ segir hann að lokum. - sm
Ég veit að fólki
leiðist ekki að tala um
aðra og mér skilst að
Twitter hafi logað eftir
þáttinn.
„Þar sem ég er með brennandi áhuga á
hönnun þá blöskraði mér hvað verðlauna-
gripir eru stundum leiðinlega hefðbundnir,
stórir og óspennandi. Ég bauðst því til þess
að hanna verðlaunagrip fyrir Íslandsmeist-
aramótið í klassískum kraftlyftingum og
reyndi að hafa hann bæði fallegan og not-
hæfan,“ segir vöruhönnuðurinn Sig-
ríður Heimisdóttir sem hannaði
þrjá farandbikara úr áli fyrir
Íslandsmeistaramótið í klass-
ískum kraftlyftingum sem
fram fer á laugardag.
Verðlaunagripirnir líta út
eins og handlóð og má nota þá
sem slíka. „Þeir vega ekki nema 6,2 kíló þó
þeir líti út fyrir að vera þyngri. En pælingin
er að fólk geti notað lóðin,“ segir hún.
Sigríður hóf sjálf að stunda kraftlyfting-
ar fyrir rúmu ári og segir
íþróttina vera hina mestu
skemmtun. Hún kveðst
þó ekki ætla að taka þátt í
mótinu sjálfu. „Ég tek ekki
þátt en ég ætla að fylgjast
með því. Ég fylgdist með
móti í fyrsta sinn í mars og
fannst það alveg hryllilega gaman.
Ég hvet fólk til þess að mæta á laugar-
dag.“ - sm
Verðlaunagripinn má nota sem handlóð
Sigríður Heimisdóttir vöruhönnuður hannaði verðlaunagripi fyrir Íslandsmeistaramótið í kraft lyft ingum.
HANNAR VERÐLAUNAGRIP Sigríður Heimis dóttir
hannaði farandgripi fyrir Íslandsmeistaramótið í kraft-
lyftingum. Gripurinn lítur út eins og lóð og má nota
hann sem slíkan. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það er gott að hafa gaur með
okkur sem er með áratugareynslu
í þessu,“ segir Ágúst Freyr Krist-
insson, annar af hugmynda smiðum
teiknimyndaþáttanna Space Stall-
ions sem eru í undirbúningi.
Bandaríkjamaðurinn Andy
Rheingold, sem hefur samið hand-
ritið að fjölda Beavis and Butt-
head-þátta og unnið við þróun
teiknimyndanna Svampur Sveins-
son fyrir sjónvarpsstöðina Nic-
kelodeon, hefur verið ráðinn til
að hjálpa Ágústi Frey og Þorvaldi
Gunnarssyni með handritið að
Space Stallions.
„Við Þorvaldur erum aðallega
teiknigaurar og handritsgerð er
ekki okkar sterkasta hlið. En við
erum búnir að koma þessu mjög
langt á veg,“ segir Ágúst Freyr.
Hann og Þorvaldur gerðu á
sínum tíma samning við íslenska
framleiðslufyrirtækið GunHil.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
greint frá landaði það samningi
við breska fyrirtækið Cake Dist-
ribution, auk þess sem mark-
aðsfyrirtækið Fuel hefur bæst
í hópinn. Í gegnum þau náðust
samningar við Rheingold. „Þetta
er allt klíkuskapur þegar þetta er
komið á svona stórt „level“. Það
þekkjast allir á einhvern hátt.
Bara með því að tengjast þessum
stóru fyrirtækjum erum við að
komast í góð sambönd,“ segir
hann.
Búast má við að ferlið við
að koma Space Stallions að í
sjónvarpi taki nokkur ár og
kosti mikið fé. Strákarnir
hafa þegar fengið þró-
unarstyrk frá Evr-
ópusambandinu
upp á um tíu millj-
ónir króna.
Í fyrra kynntu
þeir teiknimyndina á
Cartoon Forum
í Toulouse og
fengu mjög
góð við -
brögð.
„Þá var
þet t a á
frekar hráu
stigi en eftir
sumarið verðum við búnir að
vinna þetta betur.“
Í haust ætla Ágúst Freyr og Þor-
valdur á sölurúnt um Bandaríkin
en draumurinn er að koma Space
Stallions að á þarlendum sjón-
varpsstöðvum. „Þetta er allt eða
ekkert-verkefni. Við viljum vera
þar með þáttaröð.“ freyr@frettabladid.is
Réðu til sín höfund
Beavis and Butthead
Hugmyndasmiðir teiknimyndaþáttanna Space Stallions hafa fengið liðsstyrk.
Nafn seríunnar útleggst sem
Geimfolarnir á íslensku og fjallar
um hóp sem heldur út í geim til að
bjarga alheiminum. Þættirnir eru
í anda níunda áratugarins og eru
ætlaðir fullorðnum. Þeir eru í raun
skopstæling á teiknimyndum á borð
við ThunderCats og He-Man en
samt takast þeir á við
nútímavandamál með
nútímahúmor.
Söguþráður Space Stallions
Sæktu þér nýja appið og hlustaðu á
FM957 hvar og hvenær sem er!
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu
QR kóðann og sæktu Útvappið fyrir
iOS eða Android.
Fáðu FM95BLÖ
í símann þinn!
Ný
tt
ap
p
„Ég er að flytja út til Danmerkur í
júlí. Ég verð ekkert að vinna þangað
til, þannig að ég ætla að njóta
mánaðarins sem ég fæ í sumarfrí og
njóta Íslands.“
Stella Sigurðardóttir, Íslandsmeistari í hand-
bolta með Fram.
SUMARFRÍIÐ
Vildi líkjast Loga Bergmann
Tómas Ingi Tómasson í Pepsi-mörkunum mætti til leiks með nýtt útlit í ár.
NÝTT ÚTLIT Tómas Ingi Tómasson, fyrr-
verandi fótboltakappi, lét lita hár sitt
fyrir fyrsta fótboltaleik tímabilsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁGÚST
FREYR
KRISTINS-
SON Annar af
hugmynda-
smiðum
Space
Stallions er
ánægður
með nýja
liðsstyrkinn.