Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 50
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 38
Pönkað ball hjá
fræga fólkinu
Hið árlega Costume Institute Gala fór fram í Metropoli-
tan Museum of Art í New York á mánudagskvöldið. Fræga
fólkið, á borð við Beyoncé, Önnu Wintour, Tiger Woods og
Söruh Jessicu Parker, fl ykktist þangað klætt í hönnun frá
toppi til táar. Þemað í ár var pönk og margir rokkuðu sig
upp í tilefni kvöldsins. Kanye West tróð upp og söng þar
ástaróð til tilvonandi barnsmóður sinnar, Kim Kardashian,
sem að sjálfsögðu var viðstödd.
SÍÐKJÓLL Blake
Lively klæddist
Gucci-kjól.
APPELSÍNUGUL
Ashley Olsen í kjól
úr eigin smiðju.
GULL Leikkonan
Ginnifer Good-
win í kjól frá
Tory Burch.
PARIÐ Kim
Kardashian og
Kanye West voru
bæði í fatnaði
frá Givenchy.
FLOTT Beyoncé í
Givenchy-kjól.
Söngkonan Rihanna kom mörgum
á óvart þegar hún setti mynd af
fyrrverandi raunveruleikastjörn-
unni og núverandi fatahönnuð-
inum Nicole Richie inn á Twitter-
síðuna sína í gær. Á myndinni
skartaði Richie nýjum, gráum
hárlit og skrautlegum kjól og við-
brögð Rihönnu voru á þessa leið:
„Þessi tík fær mig til að langa til
að kasta upp!“
Það furðulega er
að Rihanna var í
rauninni að hrósa
Richie með
þessum um-
mælum. Hún
átti við að
hárgreiðslan
og heildarútlitið
væri „veikt“, eða
„flott“, og því til
staðfestingar bætti
hún við að Richie
væri best klædda
konan í dag.
Undarlegt hrós
frá Rihönnu
Íslensku EGF-húðvörurnar frá
Sif Cosmetics hlutu á dögunum
dönsku snyrtivöruverðlaunin í
flokki lúxushúðvara fyrir líkam-
ann. Verðlaunin, sem voru afhent
í síðustu viku, eru eins konar upp-
skeruhátíð bransans í Danmörku
og í dómnefnd sitja meðal annarra
ritstjórar tímaritanna Elle og
Eurowoman og snyrtifræðingur
danska konungsfólksins.
Þessar íslensku húðvörur hafa
verið að láta til sín taka á er-
lendum mörkuðum
undanfarið en í kjöl-
farið á verðlaun unum
fékk merkið góða
umfjöllun í dönsku
dagblöðunum Börsen
og Berlingske Tidende.
Hlutu dönsku
snyrtivöru-
verðlaunin
UNNU VERÐLAUN EGF-
húðvörurnar slá í gegn í
Danmörku.
Hljómsveitin Mosi frændi ætlar að
frumflytja sigurtextann sem einn
af hlustendum Popplands á Rás 2
samdi við lag hennar Nakin nótt,
á tónleikum á Gamla Gauknum í
kvöld. Þetta verða fyrstu opinberu
tónleikar sveitarinnar í fjögur ár.
Mosi frændi var stofnuð af sex
nemendum í Menntaskólanum í
Hamrahlíð árið 1985. Þekktasta
lag hennar er Katla kalda sem kom
út 1988. Það samdi hún eftir að
Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem þá
var útvarpsmaður á Bylgjunnar,
fékk hlustendur til að semja með
sér texta sem átti að sameina allt
það versta í íslenskri textagerð.
Mosi frændi setti sig í samband
við Þorstein og bauðst til að semja
lag við textann.
Í ár var ákveðið að endurtaka
leikinn frá því í gamla daga og fá
hlustendur Popplands til að senda
inn sína útgáfu af texta við prufu-
upptöku af lagi Mosa frænda.
Heiða Eiríksdóttir úr hljómsveit-
inni Hellvar lánaði sveitinni rödd
sína til að laglínan kæmist til
skila. Á meðal þeirra sem voru í
dómnefnd til að velja besta text-
ann voru Þorsteinn J., Ólafur Páll
Gunnarsson og Páll Óskar Hjálm-
týsson.
Auk Mosa frænda spila á tón-
leikunum í kvöld hljóm sveitirnar
Fræbblarnir, Hellvar, Sakt móð-
igur og Skelkur í bringu. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 22.
Sigurtextinn fl uttur
Mosi frændi spilar á sínum fyrstu tónleikum í fj ögur ár.
MOSI FRÆNDI Textinn við lagið Nakin nótt verður frumfluttur í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stemming og sumar í bænum
stuðið
er þar sem ég er
minkur í búri með hænum
ég titra
því þú ert hér
kvöldið er klárlega að líða
nóttin hún tekur nú við
sumarkvöld velur mér eina
hver fer
heppin með mér?
vitleysa að hanga inni
í sumarnóttinni
þegar mig langar í þig
fiðringur fyllir mig alla
flestir hér
stara á mig
að velja, ég nenni því varla
skelli mér
bara á þig
Hluti textans við
lagið Nakin nótt
Hryllingsmyndaleikstjórinn Wes
Craven hefur svarað á Twitter-
síðu sinni orðrómi um að hann
ætli að leikstýra prufuþætti
fyrir hugsanlega sjónvarpsþætti
á MTV byggða á myndum hans
Scream.
„Mörg ykkar hafa spurt út í
sjónvarpsþáttaröðina Scream.
Það er rétt að það er búið að
ræða við mig. Ég svaraði að það
færi eftir handritinu. Ef það er
virkilega gott gæti þetta orðið
gaman, annars ekki,“ sagði Cra-
ven, sem hefur leikstýrt fjórum
Scream-myndum.
Tjáir sig um
Scream-þætti
SCREAM Wes Craven hefur áhuga á að
leikstýra prufuþætti.