Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 56
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 44
Það var gott
að þurfa ekki að fara í
oddaleik. Ég er ekki viss
um að það hefði farið vel
fyrir okkur.
Jóhann Gunnar Einarsson
SPORT
HANDBOLTI Mánudagurinn síð-
asti rennur skyttunni örvhentu,
Jóhanni Gunnari Einarssyni,
seint úr minni. Hann vann þá lang-
þráðan Íslandsmeistaratitil, spilaði
sinn síðasta handboltaleik í bili og
missti tvær tennur.
„Ég var í vörn og fékk olnbog-
ann á Sveini Þorgeirssyni beint í
framtennurnar. Ég var með eina
límda framtönn og hún fór sem
og tönnin við hliðina. Það kom
því ansi myndarlegt skarð. Nú er
búið að líma þetta til bráðabirgða
og ég þarf svo að fá gervitennur.
Sumarið fer í það,“ segir Jóhann
Gunnar en var þetta ekki sárt?
„Sjokkið var svo mikið þegar
þetta gerðist að ég fann ekki mikið
til. Tannlæknirinn sagði mér samt
að þetta hefði verið eitthvað það
versta sem hann hefði séð. Það
flísaðist upp úr tönnunum í tann-
holdið og þar voru fastar flísar. Ég
var í stólnum í einn og hálfan tíma
og leið betur eftir það.“
Pirrandi að missa stellið
Jóhann Gunnar fór inn í klefa eftir
að hann meiddist en beit svo á jaxl-
inn og kom aftur út í fagnaðar-
lætin og verðlaunaafhendinguna.
„Ég var frekar pirraður eftir
að hafa misst stellið og fagnaði
kannski ekki eins mikið og ég vildi
gera. Ég vildi sjást á einhverri
mynd svo ég gæti nú sagt barna-
börnunum síðar að ég hefði tekið
þátt í þessu. Þetta var furðulegt
kvöld að mörgu leyti. Ég var eigin-
lega ánægðari með tannlækninn
en Íslandsmeistaratitilinn,“ segir
skyttan.
Hann vildi þó fá að fagna eitt-
hvað um nóttina með félögunum
og fékk leyfi til þess frá tannlækn-
inum.
„Ég spurði hann að því hvort
ég mætti ekki fá mér einn. Hann
gaf grænt ljós á það ef ég myndi
sleppa því að lenda í slagsmálum.
Það slapp því til,“ segir Jóhann og
hló dátt.
Íslandsmeistarinn hefur glímt
við þrálát meiðsli lengi og nú er
mál að linni. Hann ætlar að taka
sér ársfrí til þess að ná sér góðum.
„Ég tek í það minnsta eitt ár í frí.
Svo getur vel verið að ég bæti á
mig einhverjum kílóum og komi
ekkert aftur. Ég vil samt ekki
vera einn af þeim sem segist vera
hættur og standa svo ekki við það.
Það er kjánalegt. Ég ætlaði að taka
frí í vetur en Siggi Eggerts plataði
mig til þess að halda áfram. Það
gekk svo allt upp.“
Ég var alveg búinn
Vinstri öxlin hefur verið að plaga
Jóhann lengi og hún þarf nauðsyn-
lega að fá hvíld.
„Ég fór í reddingu fyrir Hauka-
einvígið því ég var alveg búinn
í öxlinni. Átti að hvíla í viku en
hvíldi í tvo daga. Það er ömurlegt
að vera skytta og geta ekki skotið
almennilega á markið. Svo ég upp-
ljóstri leyndarmáli þá var auðveld-
ara fyrir mig að fara yfir vinstra
megin og skjóta þaðan í vetur. Þá
gat ég notað líkamann meira og
létt álaginu af öxlinni. Þess vegna
var ég að gera það í allan vetur.“
Þeir voru ekki margir sem höfðu
trú á Fram fyrir tímabilið. Liðinu
var spáð sjötta sæti og sérfræð-
ingar áttu almennt frekar von á
því að liðið yrði í botnbaráttu en
toppbaráttu.
„Í fyrra komumst við ekki í
úrslitakeppnina og vorum á papp-
írnum með sterkara lið þá en núna.
Þá skitum við á okkur. Nú var allt-
af létt yfir þessu og Einar þjálf-
ari á stóran þátt í þessu. Hann
bjó til ákveðinn ramma og gerði
þetta mjög einfalt fyrir okkur.
Svo blómstra menn eins og Siggi
Eggerts og Maggi Erlends mark-
vörður í vetur. Það gekk margt upp
hjá okkur.“
Lið Fram var orðið mjög
lemstrað í leiknum á mánudag og
margir sem settu spurningamerki
við hvort þeir hefðu átt möguleika
ef rimman hefði farið í oddaleik.
„Ég var alveg búinn og hefði
ekki getað mætt í annan leik.
Ég gat ekki hugsað mér það og
hefði verið búinn að tapa honum í
hausnum. Það hefði allt verið með
Haukum þá en ekkert með okkur.
Við erum þekktir fyrir að tapa
úrslitaleikjum og því var gott að
þurfa ekki að fara í oddaleik. Ég er
alls ekki viss um að það hefði farið
vel fyrir okkur,“ sagði Jóhann
Gunnar Einarsson.
henry@frettabladid.is
Tannlausi Íslandsmeistarinn
Jóhann Gunnar Einarsson átti ekki kost á því að fara beint í að fagna eft ir að hann varð Íslandsmeistari
með Fram á mánudag. Báðar framtennur hans brotnuðu í leiknum gegn Haukum og hann fékk sér því sæti
í tannlæknastólnum eft ir að hafa tekið við medalíunni sinni. Hann ætlar að taka sér frí frá boltanum.
BROSAÐ Í GEGNUM SÁRSAUKANN Jóhann Gunnar beit á jaxlinn og brosti í gegnum brotnu framtennurnar eftir leik. Skömmu
síðar var hann sestur í tannlæknastólinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Landsliðsþjálfar-
arnir Peter Öqvist og Sverrir Þór
Sverrisson hafa valið tuttugu
manna æfingahópa fyrir komandi
verkefni landsliðanna í sumar.
Kvennalandsliðið spilar þrjá
leiki á Smáþjóðaleikunum um
næstu mánaðamót en karla-
landsliðið spilar alls sextán leiki
í sumar, fjóra á Smáþjóðaleik-
unum, sex í keppnisferð til Kína
í júlí, tvo æfingaleiki gegn Dan-
mörku og svo í það minnsta fjóra
leiki í Evrópukeppninni í haust.
Sverrir Þór er með tíu nýliða
í landsliðshópnum sínum en það
eru fimm nýliðar í hópnum hjá
körlunum. KKÍ tekur það fram á
heimasíðu sinni að nokkrir leik-
menn hafi ekki gefið kost á sér í
ár. - óój
LANDSLIÐSHÓPUR KVENNA:
Bergdís Ragnarsdóttir - Fjölnir Nýliði
Berglind Gunnarsdóttir - Snæfell Nýliði
Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík 20 leikir
Gunnhildur Gunnarsdóttir - Haukar 4 leikir
Hallveig Jónsdóttir - Valur Nýliði
Helena Sverrisdóttir– Kosice 42 leikir
Helga Einarsdóttir - KR 8 leikir
Helga Rut Hallgrímsdóttir - Grindavík Nýliði
Hildur Björg Kjartansdóttir - Snæfell Nýliði
Hildur Sigurðardóttir - Snæfell 70 leikir
Ingunn Embla Kristínardóttir– Keflavík Nýliði
Kristrún Sigurjónsdóttir - Valur 25 leikir
Margrét Rósa Hálfdanardóttir - Haukar Nýliði
María Ben Erlingsdóttir - St. Gratien 34 leikir
Pálína María Gunnlaugsdóttir - Keflav. 19 leikir
Petrúnella Skúladóttir - Grindavík 22 leikir
Salbjörg Sævarsdóttir - Njarðvík Nýliði
Sara Rún Hinriksdóttir - Keflavík Nýliði
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - KR 24 leikir
Unnur Lára Ásgeirsdóttir– Valur Nýliði
LANDSLIÐSHÓPUR KARLA
Axel Kárason - Værlöse 15 leikir
Brynjar Þór Björnsson - KR 26 leikir
Elvar Már Friðriksson - Njarðvík Nýliði
Finnur Atli Magnússon - KR 19 leikir
Haukur Helgi Pálsson - Manresa 14 leikir
Helgi Már Magnússon– KR 77 leikir
Hlynur Bæringsson - Sundsvall 64 leikir
Hörður Axel Vilhjálmsson - MBC 20 leikir
Jakob Sigurðarson - Sundsvall 60 leikir
Jóhann Árni Ólafsson - Grindavík 14 leikir
Jón Arnór Stefánsson– CAI Zaragoza 64 leikir
Jón Ólafur Jónsson– Snæfell 2 leikir
Justin Shouse - Stjarnan Nýliði
Logi Gunnarsson– BC Angers 90 leikir
Magnús Þór Gunnarsson - Keflavík 73 leikir
Martin Hermannsson - KR Nýliði
Pavel Ermolinskij– Norrkoping 29 leikir
Ragnar Nathanaelsson - Hamar Nýliði
Stefán Karel Torfason - Snæfell Nýliði
Ægir Þór Steinarsson - Newberry 13 leikir
40 æfa með A-
landsliðunum
YNGST Í A-LANDSLIÐINU Sara Rún
Hinriksdóttir frá Keflavík er aðeins
sextán ára gömul. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Stjarnan, Valur, Selfoss
og Breiðablik unnu öll í fyrstu
umferð Pepsi-deildar kvenna í
fótbolta í gær. Íslandsmeistarar
Þór/KA töpuðu tveimur stigum á
heimavelli á móti FH.
Elín Metta Jensen skoraði fjögur
mörk og gaf að auki tvær stoðsend-
ingar þegar Valur vann 7-0 stór-
sigur á Aftureldingu og Harpa
Þorsteinsdóttir skoraði þrennu og
átti að auki tvö sláarskot þegar
Stjarnan vann ÍBV 3-0.
Nýliðar HK/Víkings töpuðu
niður 3-1 forystu á móti Blikum
sem skoruðu þrjú á síðasta hálf-
tíma leiksins. - óój
Elín og Harpa í stuði
Pepsi-deild kvenna byrjaði með látum í gærkvöldi.
ÞRENNA Í FYRSTA LEIK Harpa Þorsteinsdóttir fór á kostum með Stjörnunni í
öruggum sigri á ÍBV í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson lagði upp mark Fylkis í 1. umferð Pepsi-
deildar karla á sunnudagskvöldið en þetta var tímamótamark fyrir þennan
síunga 38 ára gamla leikmann. Tryggvi er nefnilega með því kominn í 200
marka klúbbinn því hann hefur skorað 129 mörk og gefið 71 stoðsend-
ingu í efstu deild karla. Samtals gerir þetta tvö hundruð mörk í efstu deild
þar sem Tryggvi hefur annaðhvort skorað sjálfur eða gefið stoðsendingu á
félaga sinn.
Tryggvi komst í 200 marka klúbbinn í 233 leikjum en hann hefur skorað
eða gefið stoðsendingu fyrir fimm lið í efstu deild: ÍBV (75 mörk + 34
stoðsendingar), KR (3+1), FH (51+35) og Fylki (0+1).
Tölfræði um stoðsendingar hefur verið tekin saman frá og með
sumrinu 1992 sem er einmitt fyrsta tímabil Tryggva í efstu deild.
Tryggvi er markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi en
hann vantar enn sextán stoðsendingar til að jafna met Guðmundar
Benediktssonar yfir flestar stoðsendingar. - óój
Tryggvi er nú tvö hundruð marka maður í efstu deild
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Kom að enn einu
markinu í 1. umferð Pepsi-deildarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Finnur Freyr Stefánsson verður næsti þjálfari
karlaliðs KR en þetta kom fram í fréttatilkynn-
ingu frá Körfuknattleiksdeild KR í gær. Finnur
var aðstoðarþjálfari Helga Más Magnússonar á
lokasprettinum í vetur en tekur nú að fullu við
liðinu. Stjórnin og Finnur hafa í meginatriðum
komist að samkomulagi um að Finnur verði þjálf-
ari meistaraflokks karla næstu fimm árin. Finnur
þjálfaði kvennaliðið í vetur en mun nú hætta með
stelpurnar. Auk þess að þjálfa meistaraflokk karla
mun Finnur vera yfirþjálfari yngri flokka. Finnur
Freyr er 29 ára gamall Vesturbæingur, æfði körfu-
knattleik með yngri flokkum KR en hann er að
hefja sitt fjórtánda ár sem þjálfari hjá félaginu.
Finnur fær 5 ára samning
Úrslitin í gær:
STJARNAN - ÍBV 3-0
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir 3 (15., 25., 90.+2)
ÞÓR/KA - FH 1-1
Katrín Ásbjörnsdóttir (11.) -Teresa Rynier (88.).
ÞRÓTTUR - SELFOSS 0-2
Guðmunda Brynja Óladóttir 2 (33. og 78.)
HK/VÍKINGUR - BREIÐABLIK 3-4
Berglind Bjarnadóttir 2, Hugrún María Friðriks-
dóttir - Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Greta
Mjöll Samúelsdóttir, Björk Gunnarsdóttir, Rakel
Hönnudóttir (90.+1).
VALUR - AFTURELDING 7-0
1-0 Elín Metta Jensen 4 (3., 25., 76., 84.), Rakel
Logadóttir (42.), Hildur Antonsdóttir (58.),
Katrín Gylfadóttir (70.).