Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 2

Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 2
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 KRAFIST ER 10 ÁRA FANGELSIS 4 Leikskóli á Akureyri kennir fj ögurra ára börnum um jafnrétti með því að snúa við kynjahlut- verkum í heimsþekktum ævintýrum. HASSSÖLUMENN VILJA BORGA OPINBER GJÖLD 6 Sölumenn á Pusher Street í Kristjaníu í Kaup- mannahöfn vilja semja um greiðslu skatta af útgerð sinni. VILJA EIGNIR ÚR FASTEIGN 8 Þrjú sveitarfélög nýta fj ármagn úr sölu á Hitaveitu Suðurnesja til að kaupa sig út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Lilja Rúriksdóttir ballettdansari út- skrifaðist úr hinum virta listaháskóla Juilliard í New York. Hún er fyrst ís- lenskra dansara til að klára skólann. Hún ætlar að dansa í New York næsta árið. Systkinin Gríma og Grettir Valsbörn munu leika saman í Óvitunum í Þjóð- leikhúsinu í haust. Gríma mun þreyta frumraun sína á sviðinu en Grettir, sem er ellefu ára, hefur þegar leikið í fjölda uppsetninga. Vigdís Hauksdóttir þingmaður heldur því fram að einhver fái borgað fyrir að rægja hana á netinu. Annars myndi varla nokkur leggja í að „elta“ hana árum saman og skrifa um hana óhróður. Pétur Kristján Guðmundsson lamaðist fyrir neðan mitti í slysi í Austurríki fyrir tveimur árum. Hann vinnur nú með fyrirtækinu Össuri að því að búa til spelku sem hjálpar mænusköðuðum að ganga óstuddir. Hann segir óásættanlegt ástand að vera lamaður. FIMM Í FRÉTTUM BALLETT, LEIKHÚS OG ÓHRÓÐUR Á NETINU ➜ Jóhann Berg Guðmundsson knattspyrnumaður í Hollandi lenti í því á leik Breiðabliks og HK í vikunni að ölvaður maður veittist að honum vegna þess að hann var ósáttur við það hvar knattspyrnumaðurinn sat. Jóhann er uppalinn Bliki en sat hjá HK-ingum. ER ENGINN SKÚLI Á SVIÐINU? 18 Þorsteinn Pálsson um gjaldmiðilsmál. NÝJA SÝN Á NORÐRIÐ 22 Ari Trausti Guðmundsson um hlýnun jarðar. ÍSLAND OG EVRÓPA– HVAÐ NÚ? 24 Vésteinn Ólason um Evrópusambandsaðild. MENNTUN „Við ætlum að vinna með ævintýri sem börnin þekkja,. Ævintýrin eru allstaðar og hafa verið notuð markvisst af mark- aðsöflum til að móta fastar gam- aldags kynjahugmyndir og þetta á að vera mótvægi við því, svona bakvið tjöldin,“ sagði Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor við Háskól- ann á Akureyri og verkefnisstýra nýs þróunarverkefnis á leikskólan- um Iðavelli á Akureyri. Iðavöllur hefur á næsta skólaári innleiðingu nýs þróunarverkefnis. Verkefnið snýr að því að kafa ofan í ævintýri sem börnin þekkja, og snúa við kynjahlutverkum og spyrja áleitinni spurninga um hlutverk kynjanna. Þannig leitast verkefnið eftir því að svara hverj- ar jafnréttis- og kynjahugmyndir fjögurra ára barna eru og hvern- ig megi vinna með þær. Börnin eru þannig látin pæla í aðstæð- unum sem hetjurnar í ævintýr- unum standa frammi fyrir. Hefði það breytt einhverju ef Rauðhetta væri strákur? „Við ætlum að byrja á því að vinna með Rauðhettu sem er stelpusaga, svo ætlum við að taka fyrir Búkollu, sem er stráka- saga, og vonandi náum við að taka Hans og Grétu fyrir líka, þar sem bæði stelpa og strákur eru í aðal- hlutverki. Svo er hugmyndin að börnin semji eigin sögur og þá koma kennarar til með að greina hvort sögurnar þeirra verði í hefð- bundnu ævintýrasniði, um prins- essur og bardaga eða hvort við- horfin breytist eitthvað,“ sagði Anna Elísa jafnframt. Í nýjum aðalnámskrám er krafa um jafnréttisuppeldi á öllum grunnstigum menntunar. „Ég mat það sem svo að aðrir grunnþættir hefðu sterkari grunn en jafnréttis- uppeldi, þess vegna réðst ég í þetta verkefni,“ bætti Anna Elísa við. Kristlaug Svavarsdóttir, leik- skólastjóri á Iðuvelli fagnar þessu framtaki og því að stuðla að auk- inni vitund barna, og kennara, um jafnrétti og kynjahlutverk. „Við fengum styrk frá Menntamála- ráðuneytinu til að setja þetta verk- efni í gang. Hugmyndin er svo sú að nýta þetta ferli til þess að búa til námsefni sem svo fleiri leik- skólar geta nýtt sér. Við ætlum að búa til áætlun um hvernig sé hægt að vinna með kynjahlutverk í gegnum sögur og leik,“ sagði Kristlaug. „Við erum jafnréttissinnuð á Íslandi, og margir sigrar unn- ist, en það er margt óunnið og samkvæmt rannsóknum virðist ákveðið bakslag hafa orðið í við- horfum unglinga gagnvart jafn- rétti. Þess vegna er mikilvægt að byrja snemma að innleiða þessar hugmyndir í börnin,“ bætti Anna Elísa við. olof@frettabladid.is Börnin kynleiðrétta heimsþekkt ævintýri Leikskóli á Akureyri ætlar að kenna fjögurra ára börnum um jafnrétti. Notast verður við vel þekkt ævintýri í kennslunni og hefðbundnum hlutverkum kynjanna snúið við. Meðal annars er spurt hvernig það hefði verið ef Rauðhetta hefði verið strákur. RAUÐHETTUUPPSETNING Leikhópurinn Lotta hefur verið duglegur við að setja upp hin og þessi ævintýri fyrir börn víða um land. Með uppstokkun kynjahlutverka í ævintýrum aukast uppsetningarmöguleikarnir. MYND/LOTTA Eið ætlum að byrja á því að vinna með Rauðhettu sem er stelpusaga, svo ætlum við að taka fyrir Búkollu, sem er strákasaga, og vonandi náum við að taka Hans og Grétu fyrir líka. Anna Elísa Hreiðarsdóttir verkefnisstýra á Iðavöllum ÓTTI GREIP SKIPVERJANA 30 Valdimar Tryggvason loft skeytamaður var einn þrjátíu og tveggja skipverja á Þorkeli Mána RE 205 sem lentu í sjávarháska í febrúar 1959. KARLAR SEM KYNDA OFNINN SINN 36 Leikni í eldhúsinu er orðin að slíku karlmennskutákni að á ensku hefur verið slegið sérstakt hugtak yfi r karla sem elska að elda– gastrosexuals. AÐSTOÐ ÓSKAST 40 Nígeríusvindl lifa góðu lífi og velta milljörðum árlega. MIÐPUNKTUR ALHEIMSINS 42 Stemningin á Times Square í New York fönguð með ljósmyndum. FJÓRÐUNGUR ÍBÚÐA FYRIR VERR SETTA 48 Reykvíkingum mun fj ölga um 25 þúsund fram til ársins 2030, samkvæmt spám. 14.500 nýjar íbúðir verða reistar til að bregðast við þessari fólksfj ölgun í Reykjavík fram til 2030. KRAKKASÍÐAN 50 KROSSGÁTAN 52 SÚ ÞRIÐJA STERKASTA Í BRETLANDI 90 Lilja Björg Jónsdóttir lenti í þriðja sæti í keppninni Sterkasta kona Bretlands. DÓTTIR JÓNS HANNAR TÖSKUR 72 Hedi Jónsdóttir hannar töskur í London. UNGIR ÍSLENDINGAR HLJÓTA VIÐURKENNINGU 70 JCI á Íslandi verðlaunar tíu unga einstaklinga. STELPURNAR OKKAR ÆTLA TIL SERBÍU 82 Kvennalandsliðið í handbolta mætir Tékkum. STÆRSTA STUND ÁRSINS Í HANDBOLTANUM 84 Guðjón Valur Sigurðsson er klár í slaginn með Kiel í úrslitum Meistaradeildar um helgina. TYRKLAND, AP Til harðra átaka kom í Istanbúl í gær þar sem tyrkneska lögreglan beitti meðal annars táragasi og háþrýstivatns- byssum í átökum við mótmælend- ur. Lögregla lét til skarar skríða í birtingu í gær til að reka á brott hóp fólks sem hafði í þrjá daga mótmælt á friðsaman hátt fyrir- huguðum breytingum á Taksim- torgi. Þær fela meðal annars í sér að trjágróður verði fjarlægður úr almenningsgarði í nágrenninu. Tólf mótmælendur þörfnuðust aðhlynningar á sjúkrahúsi og að minnsta kosti þrettán manns voru handteknir. Aðgerðir lögreglu kyntu þó undir óánægjubáli sem braust út í mótmælum víða um land, meðal annars í höfuðborg- inni Ankara. Atburðir gærdagsins þykja einnig bera vott um aukna hörku stjórnar Recep Erdogans for- sætisráðherra í garð gagnrýnis- radda innanlands. Innanríkisráð- herra Tyrklands sagðist mundu rannsaka ásakanir um óhóflega valdbeitingu lögreglu en varði aðgerðirnar og sagði þær hafa beinst gegn ólöglegum mótmælum. Erdogan sjálfur vísaði kröfum mótmælenda á bug og lét þau orð falla að verkefnið umdeilda yrði leitt til lykta, „sama hvað þau gera“. - þj Hörð átök milli hóps mótmælenda og tyrknesku lögreglunnar: Táragasið streymdi í Istanbúl Í HRING- IÐU ÁTAKA Þessi maður flúði undan táragasi sem tyrkneska lögreglan skaut að hópi mót- mælenda í miðborg Istanbúl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP „Við höfum gengið þessar leiðir skref fyrir skref eftir kortum og myndum og metið hvað getur komið fyrir á hverjum stað.“ 10 Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands FRÉTTIR 2➜16 SKOÐUN 18➜24 HELGIN 26➜52 SPORT 82➜84 MENNING 68➜90 Reiðhjólauppboð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður haldið laugardaginn 8. júní nk. kl. 11 í húsnæði Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík. UPPBOÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.