Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 8

Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 8
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Sandgerðisbær og sveitarfélögin Vogar og Grímsnes- og Grafnings- hreppur hafa tekið sömu ákvörðun og Vestmannaeyjabær og ætla að kaupa fasteignir sínar út úr Eignar- halds félaginu Fasteign (EFF). Önnur sveitarfélög sem eiga aðild að félaginu kanna sína stöðu, ekki síst með hliðsjón af fjármögnun uppkaupa á fasteignunum. Kaupa á 1,9 milljarða Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku hefur Vestmanna- eyjabær ákveðið að kaupa til baka allar þær eignir sem bærinn leig- ir af EFF. Áætlað kaupverð eign- anna er um 1,9 milljarðar króna og verða kaupin fjármögnuð úr sjóði sem varð til með sölu bæjarins á sínum hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Átta önnur sveitarfélög eiga aðild að EFF. Fréttablaðið hafði samband við sveitarstjórnarfólk og ljóst að flestir aðhyllast uppkaup eigna í EFF, óháð því að endurskipulagn- ing félagsins í janúar þykir hafa tekist með ágætum. Sjóðir nýttir til uppkaupa Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, segir að bæjarstjórn hafi markað þá stefnu að kaupa eignirnar til baka í áföngum og, líkt og Vestmannaeyingar, nota til þess Framtíðarsjóð sveitarfélags- ins sem var stofnaður eftir sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Grunn- skólinn var keyptur í apríl og við kaupin lækkuðu skuldbindingar sveitarfélagsins við Fasteign um tæplega helming. Stefnt er að upp- kaupum á Íþróttamiðstöðinni og samkomuhúsi fyrir lok árs 2014, en þá verða vextir lána endurskoðaðir, og til sama tíma er í gildi heimild til kaupa án sérstaks uppgreiðslu- álags. Árið 2015 munu afborganir, eða leigugreiðslur, hækka umtalsvert og horfa því flest sveitarfélögin til þess við endurskipulagningu. Haft var á orði að vegna skulda- stöðu sveitarfélaga óttist menn að frekari vandræði séu fram undan hjá Fasteign og því er vilji til þess að koma sér út fyrir þann tíma til staðar. Jafnvel að félagið fari í þrot. Jákvæðni gagnvart endurskipu- lagningu Fasteignar megi skoða í þessu ljósi; menn líti hana jákvæð- um augum vegna rýmri ákvæða til endurkaupa eigna, en síður að menn líti fyrirkomulagið jákvæð- um augum heilt yfir. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir að þegar hafi verið mörkuð sú stefna að kaupa fast- eignirnar til baka, og enn og aftur er fjármagn frá sölu á Hitaveitu Suðurnesja nýttur. „Skólinn verð- ur keyptur nú í ár, nánar tiltekið er gert ráð fyrir að þau kaup gangi í gegn þann 1. júlí. Þau kaup verða fjármögnuð með inneign í svoköll- uðum Framfarasjóði. Í árslok 2014 er gert ráð fyrir að kaupa íþrótta- miðstöðina,“ segir Ásgeir og bætir við að heildaruppgreiðsluverð þess- ara eigna sé liðlega 1.100 milljón- ir króna. Fyrir utan handbært fé gerir sveitarfélagið ráð fyrir nýrri lántöku í lok árs 2014 að fjárhæð 400 milljóna króna. Ingibjörg Harðardóttir, sveitar- stjóri Grímsnes- og Grafnings- hrepps, segir að hugur sveitar- stjórnar hafi staðið til þess að kaupa eignir til baka í tvö ár. Beðið hafi verið eftir endurskipulagningu félagsins til að láta verða af því. Sveitarfélagið hefur óskað eftir 730 milljóna króna láni hjá Lána- sjóði sveitarfélaga til að fjármagna endurkaup á skólanum, sem jafn- framt er stjórnsýsluhús, sundlaug og íþróttahús. Lánskjör viðunandi Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, bendir á að bær- inn eigi nú meirihluta í EFF og með þeim breytingum sem gerðar voru um áramót fari 95% af leigu- greiðslum upp í greiðslu lána af eignum bæjarins. „Eignirnar sem bærinn leigir þannig verða okkar eign á 25 árum. Lánskjör á þessum lánum eru nú að okkar mati mjög viðunandi, en við erum þó að skoða hvort unnt sé að fá hagstæðari lán. Ef það er mögulegt er sjálfsagt að við tökum þessar eignir fyrr til okkar með því að kaupa þær út úr Fasteign. Það kemur því vel til greina, en er bundið jákvæðum samanburði á þeim vöxtum sem nú eru greiddir af lánum EFF og þeim lánum sem við gætum fengið til að kaupa eignirnar,“ segir Árni. Gunnsteinn Ómarsson, bæjar- stjóri Ölfuss, segir að uppkaup eigna hafi verið rædd „...og því er ekki að neita að áhugi er fyrir því að sveitarfélagið eignist fasteign- irnar sem um ræðir. Engin ákvörð- un hefur verið tekin enn en verið er að skoða mögulegar fjármögnunar- leiðir.“ Fyrir norðan og austan Nokkuð annað hljóð kemur í strokk- inn í svörum sveitarstjórnarmanna á Norður- og Austurlandi. Þar eru mál meiri óvissu háð þó vissulega séu menn að greina stöðuna í róleg- heitum. Bergur Elías Ágústsson, sveitar- stjóri Norðurþings, segir að sveitar félagið hafi enn sem komið er ekki tekið afstöðu til málsins en reikna megi með því að það verði gert innan tíðar. Norðurþing hafi ákveðið að taka þátt í endur- skipulagningu félagsins, sem hafi gengið með ágætum, áður en afstaða til áframhaldandi aðildar að EFF yrði tekin. Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, segir enga ákvörðun hafa verið tekna á þessum tímapunkti „en það er engu að síður í skoðun að kaupa eignirn- ar út úr Fasteign og kemur það í ljós á næstu vikum hvaða ákvörðun verður tekin,“ segir Páll Björgvin. Í nágrannasveitarfélaginu Fljóts- dalshéraði er staðan áþekk. Um uppkaup hefur ekki verið tekin nein ákvörðun en í yfirferð á fjár- mögnunarmálum sveitarfélagsins verður þessi þáttur skoðaður auk annarra, að sögn Björns Ingimars- sonar bæjar stjóra. Endurkaup eigna skoðuð alvarlega Þrjú sveitarfélög nýta fjármagn úr sölu á Hitaveitu Suðurnesja til að kaupa sig út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Fimm sveitarfélög telja uppkaup koma sterklega til greina eða liggja yfir möguleikum í stöðunni. Eitt sækir um lán frá Lánasjóði sveitarfélaga til kaupanna. ➜ EFF var stofnað af nokkrum sveitarfélögum og Glitni í árslok 2002. Stofnaðilar lögðu eignir inn í félagið og leigðu þær síðan aftur til baka; íþróttamannvirki og skóla- og stjórnsýslubyggingar. ➜ Endurskipulagningu EFF lauk skömmu eftir áramótin. Meðal eigenda félagsins eru níu sveitarfélög; Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Grímsnes- og Grafningshreppur, Norðurþing, Reykjanesbær, Sandgerði, Vestmannaeyja- bær, Vogar og Ölfus. ➜ Sveitarfélögin innan EFF óskuðu eftir því árið 2010 við EFF og lánastofn- anir að leigu- og lánasamningar við EFF yrðu endurskoðaðir. ➜ Endurskipulagningunni lauk í janúar og fól í sér að eignir voru seldar og þá varð EFF hreint leigufélag sem sinnti engri þjónustu annarri eins og áður var, þ.e. þróun byggingarverkefna og nýframkvæmdir. Leigutakarnir ábyrgðust að nýju allan rekstur eigna og viðhald. ➜ Leiga lækkaði um allt að 50% við endurskipulagninguna. Eigendur EFF, sveitarfélögin, fengu auk þess kauprétt á eignunum á mun lægra verði en fyrri samningar gerðu ráð fyrir. ENDURSKIPU LAGNING Í JANÚAR BREYTTI ÖLLU FRÁ VESTMANNAEYJUM Ráðamenn í Eyjum ætla að ljúka endurkaupum á eignum bæjarins á næstunni. Áður hafði Garðabær keypt upp sínar eignir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is En það er engu að síður í skoðun að kaupa eignirnar út úr Fasteign og kemur það í ljós á næstu vikum hvaða ákvörðun verður tekin... Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri í Fjarðabyggð Lánskjör á þessum lánum eru nú að okkar mati mjög viðunandi, en við erum þó að skoða hvort unnt sé að fá hag- stæðari lán. Árni Sigfússon, bæjarsjóri Reykjanesbæjar LEIGA LÆKKAÐI UM ALLT AÐ 50%Kostnaðarsamasta nýbygging sem Fasteign kom að var Háskólinn í Reykjavík í lok árs 2010, eða15 MILLJARÐAR Eignir innan EFF námu 52 milljörðum króna í árslok 2010. 52 MILLJARÐAR ÁRIÐ 2008 VORU 70 FASTEIGNIR Í EIGNASAFNI EFF OG VAR FLATAR- MÁL ÞEIRRA 110.000 FERMETRAR 110.000 m2 í 70 fasteignum ASKÝRING | 8 EIGNARHALDSFÉLAGIÐ FASTEIGN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.