Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 8
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
Sandgerðisbær og sveitarfélögin
Vogar og Grímsnes- og Grafnings-
hreppur hafa tekið sömu ákvörðun
og Vestmannaeyjabær og ætla að
kaupa fasteignir sínar út úr Eignar-
halds félaginu Fasteign (EFF).
Önnur sveitarfélög sem eiga aðild
að félaginu kanna sína stöðu, ekki
síst með hliðsjón af fjármögnun
uppkaupa á fasteignunum.
Kaupa á 1,9 milljarða
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í síðustu viku hefur Vestmanna-
eyjabær ákveðið að kaupa til baka
allar þær eignir sem bærinn leig-
ir af EFF. Áætlað kaupverð eign-
anna er um 1,9 milljarðar króna og
verða kaupin fjármögnuð úr sjóði
sem varð til með sölu bæjarins á
sínum hlut í Hitaveitu Suðurnesja.
Átta önnur sveitarfélög eiga aðild
að EFF. Fréttablaðið hafði samband
við sveitarstjórnarfólk og ljóst að
flestir aðhyllast uppkaup eigna í
EFF, óháð því að endurskipulagn-
ing félagsins í janúar þykir hafa
tekist með ágætum.
Sjóðir nýttir til uppkaupa
Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í
Sandgerði, segir að bæjarstjórn
hafi markað þá stefnu að kaupa
eignirnar til baka í áföngum og,
líkt og Vestmannaeyingar, nota til
þess Framtíðarsjóð sveitarfélags-
ins sem var stofnaður eftir sölu á
hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Grunn-
skólinn var keyptur í apríl og við
kaupin lækkuðu skuldbindingar
sveitarfélagsins við Fasteign um
tæplega helming. Stefnt er að upp-
kaupum á Íþróttamiðstöðinni og
samkomuhúsi fyrir lok árs 2014, en
þá verða vextir lána endurskoðaðir,
og til sama tíma er í gildi heimild
til kaupa án sérstaks uppgreiðslu-
álags.
Árið 2015 munu afborganir, eða
leigugreiðslur, hækka umtalsvert
og horfa því flest sveitarfélögin
til þess við endurskipulagningu.
Haft var á orði að vegna skulda-
stöðu sveitarfélaga óttist menn að
frekari vandræði séu fram undan
hjá Fasteign og því er vilji til þess
að koma sér út fyrir þann tíma til
staðar. Jafnvel að félagið fari í þrot.
Jákvæðni gagnvart endurskipu-
lagningu Fasteignar megi skoða í
þessu ljósi; menn líti hana jákvæð-
um augum vegna rýmri ákvæða
til endurkaupa eigna, en síður að
menn líti fyrirkomulagið jákvæð-
um augum heilt yfir.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í
Vogum, segir að þegar hafi verið
mörkuð sú stefna að kaupa fast-
eignirnar til baka, og enn og aftur
er fjármagn frá sölu á Hitaveitu
Suðurnesja nýttur. „Skólinn verð-
ur keyptur nú í ár, nánar tiltekið er
gert ráð fyrir að þau kaup gangi í
gegn þann 1. júlí. Þau kaup verða
fjármögnuð með inneign í svoköll-
uðum Framfarasjóði. Í árslok 2014
er gert ráð fyrir að kaupa íþrótta-
miðstöðina,“ segir Ásgeir og bætir
við að heildaruppgreiðsluverð þess-
ara eigna sé liðlega 1.100 milljón-
ir króna. Fyrir utan handbært fé
gerir sveitarfélagið ráð fyrir nýrri
lántöku í lok árs 2014 að fjárhæð
400 milljóna króna.
Ingibjörg Harðardóttir, sveitar-
stjóri Grímsnes- og Grafnings-
hrepps, segir að hugur sveitar-
stjórnar hafi staðið til þess að
kaupa eignir til baka í tvö ár. Beðið
hafi verið eftir endurskipulagningu
félagsins til að láta verða af því.
Sveitarfélagið hefur óskað eftir
730 milljóna króna láni hjá Lána-
sjóði sveitarfélaga til að fjármagna
endurkaup á skólanum, sem jafn-
framt er stjórnsýsluhús, sundlaug
og íþróttahús.
Lánskjör viðunandi
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, bendir á að bær-
inn eigi nú meirihluta í EFF og
með þeim breytingum sem gerðar
voru um áramót fari 95% af leigu-
greiðslum upp í greiðslu lána af
eignum bæjarins. „Eignirnar sem
bærinn leigir þannig verða okkar
eign á 25 árum. Lánskjör á þessum
lánum eru nú að okkar mati mjög
viðunandi, en við erum þó að skoða
hvort unnt sé að fá hagstæðari lán.
Ef það er mögulegt er sjálfsagt
að við tökum þessar eignir fyrr
til okkar með því að kaupa þær út
úr Fasteign. Það kemur því vel til
greina, en er bundið jákvæðum
samanburði á þeim vöxtum sem
nú eru greiddir af lánum EFF og
þeim lánum sem við gætum fengið
til að kaupa eignirnar,“ segir Árni.
Gunnsteinn Ómarsson, bæjar-
stjóri Ölfuss, segir að uppkaup
eigna hafi verið rædd „...og því er
ekki að neita að áhugi er fyrir því
að sveitarfélagið eignist fasteign-
irnar sem um ræðir. Engin ákvörð-
un hefur verið tekin enn en verið er
að skoða mögulegar fjármögnunar-
leiðir.“
Fyrir norðan og austan
Nokkuð annað hljóð kemur í strokk-
inn í svörum sveitarstjórnarmanna
á Norður- og Austurlandi. Þar eru
mál meiri óvissu háð þó vissulega
séu menn að greina stöðuna í róleg-
heitum.
Bergur Elías Ágústsson, sveitar-
stjóri Norðurþings, segir að
sveitar félagið hafi enn sem komið
er ekki tekið afstöðu til málsins
en reikna megi með því að það
verði gert innan tíðar. Norðurþing
hafi ákveðið að taka þátt í endur-
skipulagningu félagsins, sem
hafi gengið með ágætum, áður en
afstaða til áframhaldandi aðildar
að EFF yrði tekin.
Páll Björgvin Guðmundsson,
bæjarstjóri í Fjarðabyggð, segir
enga ákvörðun hafa verið tekna á
þessum tímapunkti „en það er engu
að síður í skoðun að kaupa eignirn-
ar út úr Fasteign og kemur það í
ljós á næstu vikum hvaða ákvörðun
verður tekin,“ segir Páll Björgvin.
Í nágrannasveitarfélaginu Fljóts-
dalshéraði er staðan áþekk. Um
uppkaup hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun en í yfirferð á fjár-
mögnunarmálum sveitarfélagsins
verður þessi þáttur skoðaður auk
annarra, að sögn Björns Ingimars-
sonar bæjar stjóra.
Endurkaup eigna skoðuð alvarlega
Þrjú sveitarfélög nýta fjármagn úr sölu á Hitaveitu Suðurnesja til að kaupa sig út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Fimm sveitarfélög telja
uppkaup koma sterklega til greina eða liggja yfir möguleikum í stöðunni. Eitt sækir um lán frá Lánasjóði sveitarfélaga til kaupanna.
➜ EFF var stofnað af nokkrum sveitarfélögum og Glitni í árslok 2002.
Stofnaðilar lögðu eignir inn í félagið og leigðu þær síðan aftur til baka;
íþróttamannvirki og skóla- og stjórnsýslubyggingar.
➜ Endurskipulagningu EFF lauk skömmu eftir áramótin. Meðal eigenda
félagsins eru níu sveitarfélög; Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Grímsnes- og
Grafningshreppur, Norðurþing, Reykjanesbær, Sandgerði, Vestmannaeyja-
bær, Vogar og Ölfus.
➜ Sveitarfélögin innan EFF óskuðu eftir því árið 2010 við EFF og lánastofn-
anir að leigu- og lánasamningar við EFF yrðu endurskoðaðir.
➜ Endurskipulagningunni lauk í janúar og fól í sér að eignir voru seldar og
þá varð EFF hreint leigufélag sem sinnti engri þjónustu annarri eins og
áður var, þ.e. þróun byggingarverkefna og nýframkvæmdir. Leigutakarnir
ábyrgðust að nýju allan rekstur eigna og viðhald.
➜ Leiga lækkaði um allt að 50% við endurskipulagninguna. Eigendur EFF,
sveitarfélögin, fengu auk þess kauprétt á eignunum á mun lægra verði en
fyrri samningar gerðu ráð fyrir.
ENDURSKIPU LAGNING Í
JANÚAR BREYTTI ÖLLU
FRÁ VESTMANNAEYJUM Ráðamenn í Eyjum ætla að ljúka endurkaupum á eignum bæjarins á næstunni. Áður hafði Garðabær keypt upp sínar eignir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
En það er engu að
síður í skoðun að kaupa
eignirnar út úr Fasteign og
kemur það í ljós á næstu
vikum hvaða ákvörðun
verður tekin...
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri
í Fjarðabyggð
Lánskjör á þessum
lánum eru nú að okkar
mati mjög viðunandi, en
við erum þó að skoða
hvort unnt sé að fá hag-
stæðari lán.
Árni Sigfússon, bæjarsjóri
Reykjanesbæjar
LEIGA
LÆKKAÐI
UM ALLT AÐ 50%Kostnaðarsamasta nýbygging sem Fasteign kom að var Háskólinn í Reykjavík í lok árs 2010, eða15 MILLJARÐAR
Eignir innan EFF námu 52
milljörðum króna í árslok 2010.
52 MILLJARÐAR ÁRIÐ 2008 VORU 70 FASTEIGNIR Í
EIGNASAFNI EFF OG VAR FLATAR-
MÁL ÞEIRRA 110.000 FERMETRAR
110.000 m2
í 70 fasteignum
ASKÝRING | 8
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ FASTEIGN