Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 12

Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 12
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12 FERÐALÖG Ferðafélag Íslands hefur í samstarfi við VÍS gert áhættumat á vinsælum göngu- leiðum á landinu. Nú þegar hefur verið birt áhættumat á leiðum á Esjunni á vef félagsins, fi.is, sem hægt er að skoða án endurgjalds. „Við erum til dæmis búnir að taka Esjuna fyrir eins og hún leggur sig, alls tólf leiðir. Við höfum gengið þessar leiðir skref fyrir skref eftir kortum og myndum og metið hvað getur komið fyrir á hverjum stað,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Einnig er hægt að skoða áhættumat á Hornströndum, Laugaveginum, Fimmvörðu- hálsi, Hvannadalshnjúk og Lóns- öræfum. Á næstu tveimur árum verður gert áhættumat á öðrum helstu gönguleiðum á landinu, að því er Páll greinir frá. Hann segir Ferðafélagið hafa viljað sýna þetta frumkvæði til að auka öryggi og tryggja för ferðamanna. „Þetta er jafnframt liður í að taka upp Vakann, sem er umhverfis- og gæðastjórnun- arkerfi frá Ferðamálastofu.“ Páll getur þess að einnig hafi verið gert heildarmat á áhætt- unni við það að ferðast úti í náttúr unni. „Við bendum á leiðir til að draga úr hættu á að hrasa, villast, týnast, ofkælast eða lenda í vandræðum í vöðum og ám. Það er til dæmis hægt með því að huga að góðum búnaði, vera í góðum skóm og fatnaði, vera í fylgd með öðrum og láta vita af ferðum sínum. Besta reglan er að snúa frá eða hætta við ef maður er óöruggur um einhver atriði.“ ibs@frettabladid.is Áhættumat gönguleiða á Íslandi Laugavegurinn Hornstrandir Esja Lónsöræfi Fimmvörðuháls Mat lagt á hættulega staði á ferðaslóðum Ferðafélag Íslands birtir á vef sínum áhættumat á gönguleiðum. Metið hvað getur komið fyrir á hverjum stað. Vilji sagður standa til að tryggja öryggi og för ferða- manna. Bent er á leiðir til þessa að forðast eða draga úr áhættu á ferðalögum. Metið hefur verið hvað getur gerst á hverjum hluta gönguleiðarinnar fyrir sig. Gerður hefur verið ákveðinn stuðull fyrir hvað getur gerst og hverjar líkurnar eru á að það gerist. 1 Litlar líkur á atviki eða gerist sjaldan. 2 Töluverðar líkur á atviki eða gerist oft. 3 Miklar líkur á atviki. Á fyrsta hluta leiðarinnar er til dæmis ólíklegt að menn hrasi og ef þeir detta verða meiðslin lítilsháttar. Hættulegt er að fara upp í klettana. Detti göngumaður þar getur hann hrapað og þá eru líkur á alvarlegu slysi. ➜ Hættur á leiðinni á Þverfellshorn Flugsæti til München á góðu verði í sumar Eigum nokkur flugsæti laus til München í sumar með þýsk um samstarfsaðilum. Flogið er frá Íslandi tvisvar í viku; á sunnu dögum og fimmtudögum. Verð með sköttum: Önnur leið frá kr. 25.999,- Nánari upplýsingar á skrifstofutíma í síma 588 8660 Langholtsvegi 115 · 104 Reykjavík · Sími 588 8660 · flug@snaeland.is VELKOMIN Í JÓGA SUMARTILBOÐ – Kundalini / Hatha / Jóga Nidra OPIÐ KORT 3. júní – 23. ágúst. SUMARTILBOÐ 15.000 kr. NÁNAR á jogasetrid.is SKIPULAGSMÁL „Með þessari hugmynd er verið að lög- festa flatneskju,“ segir Hrafn Gunnlaugs son, kvik mynda- gerðar maður og áhuga maður um skipulags- mál, um drög að nýju aðal- skipulagi Reykjavíkur- borgar. Eins og fram kom í Fréttablaðinu um miðja vikuna kveða drögin á um fortakslaust bann við bygg- ingu háhýsa á svæðinu innan Hringbrautar í Reykjavík, þar sem ekki verður leyfilegt að byggja hús hærri en fimm hæðir. Það finnst Hrafni, sem meðal annars gerði kvikmyndina Reykjavík í nýju ljósi árið 2000, bera vott um rétttrúnað. „Mér finnst alveg hróp- legt að flokkur sem kenndi sig við anarkisma, Besti flokk- urinn, ætli að innleiða rétt- trúnað í skipulagsmálum,“ segir Hrafn í samtali við Fréttastofu. Skipulags yfirvöld þurfi að taka afstöðu til hvers og eins verk- efnis. „Mér finnst vera svo hróplegt misræmi í þessu og þarna eru menn að sverja af sér hverjir þeir eru. Hvar er anarkisminn núna ef það á að fara að innleiða rétttrúnað og flatneskju?“ - þj, kh Hrafn Gunnlaugsson um bann við byggingu háhýsa í miðborginni: „Hvar er anarkisminn núna?“ HUGSAÐ HÁTT Hrafn Gunnlaugsson segir prýði að húsum við Skúlagötu sem væru „hvergi annars staðar kölluð háhýsi“. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HRAFN GUNNLAUGSSON Við erum til dæmis búnir að taka Esjuna fyrir eins og hún leggur sig, alls tólf leiðir. Við höfum gengið þessar leiðir skref fyrir skref eftir kortum og myndum og metið hvað getur komið fyrir á hverj- um stað. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands FÓLK „Þetta er árlegur við burður, þó að hann sé ekki alltaf með sama sniði. Núna í ár eru þetta tón- listaratriði og markaðir og fleira smálegt,“ segir Carmen Jóhanns- dóttir, einn aðstandenda viðburð- ar á vegum Hjálpræðishersins nú í dag, laugardag. „Allt hjálpar og þetta er allt til styrktar útigangs- fólki, til þess að Hjálpræðisherinn geti haldið áfram að vinna óeigin- gjarnt starf í þágu þeirra sem minna mega sín. Enginn getur allt, en allir geta eitthvað.“ Hjálpræðisherinn og aðrir aðstandendur halda stóran fata- og nytjamarkað á Herkastalanum, Kirkjustræti 2, í Reykjavík á morg- un. Opið er milli ellefu og fimm. „Þetta verður rosastuð. Við bjóð- um upp á kaffi og kökur og svo á milli tvö og þrjú verða tónlistar- atriði. Þar koma fram Eyþór Ingi, Sísý Ey, Steini í Hjálmum, Leaves og Siggi Ingimars svo eitthvað sé nefnt,“ segir Carmen. „Það er ótrú- legt hvernig meðferð útigangsfólk hlýtur hérna á Íslandi.“ - ósk Ágóðinn rennur til gistiskýlis sem Hjálpræðisherinn rekur fyrir útigangsfólk: Útigangsfólki rétt hjálparhönd HJÁLPRÆÐISHERINN Hús Hjálp- ræðishersins er eitt af kennileitum Reykjavíkur borgar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR INDLAND Á skrifstofu á Indlandi er með eftirlitsmyndavélum fylgst með handþvotti starfs- manna á ellefu sjúkrahúsum í þremur heimsálfum. Samkvæmt frétt Dagens Ny- heter látast árlega 100 þúsund af völdum sýkinga sem þeir fá á sjúkrahúsum í Bandaríkjunum. Starfsmenn reyndust bara þvo hendur sínar í 30 prósentum til- fella þegar þeir meðhöndluðu sjúklinga. Í kjölfar eftirlitsins er talan nú 88 prósent. - ibs Sýkingar á sjúkrahúsum: Fylgst með handþvotti SKÓLAMÁL Fjöldi grunnskóla vill taka upp valgrein sem leggur áherslu á heilbrigðan lífsstíl. Áhuginn kemur í kjölfar nýlegrar umfjöllunar Fréttablaðsins um námsefnið sem þróað var fyrir efri bekki Rimaskóla. Meðal skóla sem sýnt hafa efn- inu áhuga eru Grunnskólinn í Nes- kaupstað, Grunnskólinn á Dalvík, Grunnskólinn á Grundarfirði og Áslandsskóli. Einnig hefur Folda- skóli í Grafarvogi sýnt náms- efninu áhuga. - ósk Kenna heilbrigðan lífsstíl: Lífsstíll vekur mikla athygli Hvannadalshnjúkur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.