Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 22
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 22
Grensásdeild fagnar 40
ára afmæli sínu um þess-
ar mundir. Eins og mörg-
um er kunnugt fer þar
fram endurhæfing þeirra
sem glíma við margvís-
legar afleiðingar slysa
eða langvinnra sjúkdóma,
s.s. heila- og mænuskaða,
afleiðingar heilaáfalla og
miklu fleira.
Við þessar aðstæð-
ur eru fyrir hendi ýmis
úrræði í samfélaginu. Lög
um almannatryggingar,
félagsþjónustu sveitarfélaga og
félagslega aðstoð eiga að tryggja
að allir njóti lágmarksframfærslu
þrátt fyrir að vera óvinnufærir
vegna veikinda eða slysa.
Alvarleg og langvinn veikindi,
sem í sumum tilfellum leiða til
fötlunar, hafa óhjákvæmilega
mikil áhrif á líf þess sem fyrir
þeim verður. Fjölskylda hins veika
verður einnig fyrir áfalli. Í sumum
tilfellum þarf fólk að hætta að
vinna eða skipta alveg um starfs-
vettvang. Margir þurfa að huga að
breytingum á húsnæði eða flytja í
annað húsnæði sem hentar betur.
Í stöku tilfellum þarf fólk jafnvel
að taka sig upp og flytja utan af
landi til þess að geta betur tekist á
við aðstæður sínar. Síðast en ekki
síst þarf fólk að aðlagast nýjum
aðstæðum og breyttum hlutverk-
um innan fjölskyldunnar. Eftir
útskrift af Grensásdeild þarf fólk
því að aðlagast breyttum kring-
umstæðum og reiða sig á þjónustu
ýmissa aðila, s.s. heilsugæslu,
félagsþjónustunnar og fleiri aðila,
t.d. Öryrkjabandalagsins og Sjálfs-
bjargar, svo fátt eitt sé nefnt.
Það er ákaflega mikilvægt að
aðilar sem koma að málum ein-
staklinga í endurhæfingu vinni
saman með heildarsýn að leiðar-
ljósi þar sem hagsmunir sjúklings-
ins og fjölskyldu hans eru í fyrir-
rúmi. Þannig næst best markmið
endurhæfingar um að fólk nái
sem bestri heilsu og færni í kjöl-
far slysa eða sjúkdóma og fái færi
á að vera virkir þjóðfélagsþegnar
sér og öðrum til gæfu og hagsbóta.
➜ Það er ákafl ega
mikilvægt að aðilar
sem koma að málum
einstaklinga í endur-
hæfi ngu vinni saman
með heildarsýn að
leiðarljósi þar sem
hagsmunir sjúklings
og fjölskyldu hans eru
í fyrirrúmi.
Hlýnun jarðar breytir lífs-
skilyrðum jarðarbúa afar
hratt. Á norðurslóðum eru
breytingarnar hraðari en
flesta óraði fyrir. Mönnum
er tíðrætt um tækifærin
sem fylgja en minna heyr-
ist um vandkvæðin. Umtal
um þau er fyrirferðar-
mikið hjá vísindamönn-
um en stjórnmálamenn
eru uppteknari af öllu því
dýrmæta sem á að opn-
ast þegar hækkar hratt í
sjó, hafísinn (endurkasts-
skjöldur hitageislunar) minnkar,
jöklar (helstu vatnsforðabúrin)
minnka, höfin súrna, sífrerasvæð-
in losa metan, fjölbreytileiki líf-
ríkis minnkar og fólk hrekst úr
heimkynnum sínum. Listinn er
enn lengri og hann kallar á end-
urnýjaða heildarsýn en ekki val á
umtalsefni eftir hentugleikum eða
rósrauð málverk sölumannsins.
Enda þótt aðeins 4 milljón-
ir manna byggi norðrið varða 30
milljónir ferkílómetrar af þurr-
lendi og hafi alla jarðarbúa. Sigl-
ingar, námagröftur, gas- og olíu-
vinnsla, ferðaþjónusta og önnur
nýting náttúruauðlinda á sjötta
hluta jarðar eru ekki einkamál
fárra þjóða. Átta norðurslóðaríki
mynda samráðsvettvang, norður-
skautsráðið, með Grænlending-
um og Færeyingum, frumbyggja-
samtökum og áheyrnarfulltrúum
margra landa. Samvinnan hefur
gengið vel. Á vegum ráðsins
hafa orðið til bindandi samning-
ar, til dæmis um öryggismál og
býsna heilleg mynd af áhrifum
umhverfis breytinga. En fullur
þungi í ásókn í auðlindir norðurs-
ins og hafsvæði til siglinga er
ókominn fram.
Strandríkin fimm, Rússland,
Noregur, Danmörk, Kanada og
Bandaríkin, hafa gert með sér
samkomulag (Ilullissat-yfirlýsing-
in) um viss yfirráð yfir Pólhafinu,
jafnt innan eigin 200 mílna efna-
hagslögsögu sem utan hennar, í
samræmi við alþjóðahafréttarlög.
Ríkin telja enga þörf á alþjóða-
samkomulagi um yfirráðin, unnt sé
að ná samkomulagi ríkjanna átta
um það sem á vantar.
Margþættir hagsmunir
Þegar þess er gætt að hagsmunir
sem snúa að Pólhafinu eru marg-
þættir vaknar efi um fyrirkomu-
lag stjórnunar og yfirráða. Um er
að ræða hagsmuni heimsbyggðar-
innar, strandríkjanna fimm, hags-
muni hinna ríkjanna þriggja í
norðurskautsráðinu, hagsmuni
Evrópu- og Asíuríkja (áheyrnar-
fulltrúa), stórfyrirtækja og 30
fylkinga frumbyggja sem vilja
halda í sjálfbæra lifnaðarhætti.
Hvernig er unnt að flétta hags-
muni og stjórnun á öllu svæðinu
saman með þeim hætti að friður
og samvinna haldist hér eftir sem
hingað til og raunveruleg lögráð
nái til alls hafsvæðisins?
Eiga frumbyggjar að vinna
að eigin hagsmunum innan
ramma síns lýðræðisríkis,
jafn fáir og þeir eru, eða á
að veita þeim meiri völd til
ákvarðana? Á námagröftur
eða gasvinnsla að lúta vilja
og reglum fimm strand-
ríkja, langt út fyrir 200
mílna lögsögu, eða verður
að ná samkomulagi um það
svæði? Ég tel að Ilullissat-
yfirlýsinguna skuli virða
en komast að alþjóðasam-
komulagi um stjórnunarreglur og
markmið allrar virkni utan 200
mílna lögsögu ríkjanna fimm, líkt
og varð að samkomulagi um Suð-
urskautslandið 1961. Stjórnun er
svo falin í hendur strandríkjanna
eftir reglum alþjóðlegs Arktís-
samkomulags. Norðurskautsráðið
sér áfram um samvinnu norður-
slóðaríkjanna og margra annarra
ríkja. Þótt norðrið sé ekki heim-
kynni allra þjóða eru örlög verald-
ar ráðin þar, umfram flest önnur
svæði heimsins. Við verðum að
finna heildrænan lagaramma fyrir
Pólhafið.
Mengun úr böndum
Umhverfismál eru nátengd
stjórnun inni. Mengun lofts og sjáv-
ar er komin úr böndum og hlýnun-
in þar með. Yfirlýsingar um sjálf-
bæra nýtingu náttúru auðlinda í
norðri ná ekki til vinnslu málma,
kola, olíu og gass. Hún er ekki
sjálfbær. Öðru máli gegnir um
fiskveiðar, ýmsan iðnað, landbúnað
eða ferðaþjónustu. Skipuleggjum
sjálfbærar nytjar í þeim greinum
en endurskoðum ósjálfbæru nytj-
arnar. Í þær verður mest sótt og sú
fáránlega mótsögn efld að vinna á
og nota jarðefna eldsneyti en sam-
tímis minnka útblástur gróður-
húsagasa og sótmengun, og fylgja
leiðum sjálfbærni.
Þegar koltvíildismagn lofthjúps-
ins er komið í 400 ppm er enn verið
að auka brennsluna og fjölga meng-
andi orkulindum, stuðla að enn
hraðari bráðnun íss og kalla yfir
heimsbyggðina enn meiri veður-
öfga. Þróuninni verður að snúa
við. Olíu- og gasvinnsla í norðr-
inu er ekki neyðarúrræði heims-
byggðar í kreppu. Hún er mótsögn,
drifin áfram af lögmálum auk-
ins vaxtar. Hana verður að leysa
með samvinnu og það mjög fljótt.
Okkur vantar sárlega alþjóðasam-
komulag um að vinna ekki kolefn-
iseldsneyti á ósnertum land- og
hafsvæðum norðursins, þ.m.t. Jan
Mayen-svæðinu, minnka vinnsl-
una sem fyrir er, t.d. í Barents-
hafi og á tjörusöndum Kanada,
og hætta henni innan nokkurra
ára. Ef það er ekki gert og meðal-
hiti jarðar hækkar um 2-4 stig eru
ávinningar af frekari olíu- og gas-
vinnslu hjóm eitt miðað við vand-
kvæðin og fjárútlátin sem fylgja
flóðavá, vatnsskorti og þjóðflutn-
ingum. Önnur námavinnsla verður
að fara fram á grunni aðhalds og
endurnýtingar. Þau rök að lítil olíu-
vinnsla í Pólhafinu kalli fram skort
á olíu og gasi sem aftur framkall-
ar sókn í illa mengandi kol ganga
ekki upp. Skortur er afstætt hug-
tak. Auk þess er sennilegt að 15%
óunninna olíulinda og 30% gasl-
inda séu í norðrinu. Samkvæmt
Umhverfisstofnun SÞ og Alþjóða-
bankanum má aðeins vinna lítinn
hluta óunnins kolefniseldsneytis
ef komast á hjá hamfarahlýnun.
Olíu og gas má nema annars stað-
ar en í norðrinu og koma í veg fyrir
umræddan skort en vinna tíma til
að þróa vistvæna orkugjafa hrað-
ar en nokkru sinni, m.a. jarðhita.
Það er einn lyklanna að sjálfbærri
framtíð.
Nýja sýn á norðrið
„Þessi maður er ekki til og líklega er
þetta einhver sem þiggur laun fyrir að
elta mig eða slíkt því umræðan síð-
ustu fjögur ár í kommentakerfunum
er náttúrulega alveg einstök. Oftast
er þetta fólk sem er ekki til, þannig
að það hljóta einhverjir peningar að
vera í dæminu. Það getur ekki annað
verið.“
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarfl okksins, telur
að manni sé borgað fyrir að rægja hana.
„Ég er ekkert hættur við takmarkið mitt um að ganga
óstuddur. En ég átta mig á því að það þarf meira til en ég
hélt í fyrstu.“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Pétur Kristján Guðmundsson, sem lamaðist fyrir neðan
mitti þegar hann féll fram af kletti, lætur fötlunina ekki stöðva sig.
„Mér finnst alveg hróplegt að flokkur sem kenndi sig við
anarkisma, Besti flokkurinn, ætli að innleiða rétttrúnað
í skipulagsmálum.“
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður um nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar.
Þar er sett bann við byggingu háhýsa innan Hringbrautar.
UMHVERFIS-
VERND
Ari Trausti
Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur
og rithöfundur
FRÁ NORÐUR-GRÆNLANDI MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON
➜ Samkvæmt Umhverfi s-
stofnun SÞ og Alþjóða-
bankanum má aðeins
vinna lítinn hluta óunnins
kolefnis eldsneytis ef komast
á hjá hamfarahlýnun.
UMMÆLI VIKUNNAR
25.05.2013 ➜ 31.05.2013
Grensásdeild – brú
út í lífi ð
Ég ræði oft við frænda
minn, 10 ára gutta, um
stelpurnar í lífi hans. Ég
spyr hann hvaða stelpum
hann er skotinn í og hvað
hann eigi margar kærust-
ur. Þetta höfum við gert
síðan hann varð skotinn í
fyrstu stelpunni, þá fimm
ára gamall.
Ég áttaði mig á því um
daginn hvað það væri
rangt af mér að spyrja
þessarar spurningar:
„Hvað áttu margar kærustur?“
Frá því að hann var fimm ára hef
ég gefið í skyn að það sé í lagi að
eiga margar kærustur, að vera
með fleirum en einni manneskju
í einu.
Að eiga margar kærustur er
ekki í lagi. Þótt maður sé bara 10
ára.
Hann sagði mér frá stelpu sem
er alltaf að biðja hann um að byrja
með sér en hún á samt kærasta.
Þetta fannst mér sniðugt og grín-
aðist í honum að hann væri bara
svona sætur og skemmtilegur
að hún vildi hafa hann líka sem
kærasta. Á þeirri stundu
datt mér ekki í hug að
segja honum að maður á
bara að eiga eina kærustu
í einu.
Þegar ég settist upp í bíl-
inn minn og keyrði heim
fór ég að hugsa. Sætleiki
og skemmtilegheit rétt-
læta ekki framhjáhald. Við
getum ekki komið í veg
fyrir framhjáhald í heild
sinni en við getum miðlað
okkar þekkingu og reynslu
áfram, sérstaklega til barnanna
okkar, þegar þau eru að mótast. Það
getum við gert um sambönd rétt
eins og um áfengis- og vímuefna-
neyslu, ofbeldi, einelti, jafnrétti og
réttlæti, svo dæmi séu nefnd. Kenn-
um börnunum hvað er rétt og hvað
er rangt frá upphafi. Þau eru alltaf
að læra og þurfa að læra þetta eins
og allt hitt í lífinu. Sambönd eru
víst afskaplega mikil væg.
Brot á trausti fer illa með fólk og
sprengir sambönd.
Að eiga margar kærustur er
framhjáhald. Framhjáhald er ekki
í lagi!
Hvað áttu margar
kærustur?
SAMFÉLAG
Tinna
Sigurðardóttir
leiðbeinandi á
leikskóla
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Þorgerður
Valdimarsdóttir
félagsráðgjafi á
Grensási
• •
Ásdís Ragna, Grasalæknir, heldur
fróðlegt námskeið, mánudaginn
3. júní, kl. 18:30 - 20:30
Jurtasmyrsl
úr náttúrunni