Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 32
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
1990
2000
Hipphopp ruddi sér fyrst til rúms á Íslandi á níunda ára-tug síðustu aldar. Það náði hins vegar ekki flugi fyrr en í byrjun þess tíunda. Að margra mati er tíundi ára-
tugurinn einmitt blómaskeið íslensku
hipphopp-senunnar. Skemmtistaðurinn
var Tetriz, búðin var Jónas á milli. Sub-
terranean steig sín fyrstu skref. Róbert
Aron Magnússon gekk undir nafninu
Rampage og bræðurnir Eyvindar synir
voru sakleysið uppmálað. Quarashi-
drengir skiptu út rokki fyrir rapp og
urðu fljótlega á meðal þekktustu hljóm-
sveita Íslandssögunnar. Team 13 voru
agnarsmáir vandræðaunglingar sem
seinna meir áttu eftir að setja spor sitt á
íslenskt tónlistarlíf, meðal annars á sviði
raf- og popptónlistar.
Forgotten Lores tóku einnig að mynd-
ast með pólitísku og sterku ádeilurappi
og eftir aldamótin tóku við kyndlinum
sigurvegarar Músíktilrauna, þá 110 Rott-
weilerhundar. Sesar A boðaði svo breytta
tíma, rappað skyldi á íslensku. Dóri DNA
grínaðist minna og rappaði meira um
Mosó og aðra merka staði, ásamt félaga
sínum Danna Deluxe í Bæjarins bestu.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar í
heimi hipphoppsins á undanförnum árum
og ljóst er að ekki er pláss á síðum Frétta-
blaðsins fyrir nema aðeins brot af þeim
listamönnum sem mótað hafa og munu
móta stefnuna. Að undanförnu virðist
mikill vöxtur hafa færst í senuna og við
tekur senn nýtt blómaskeið. Nadia gaf
tóninn í laginu Passaðu þig þar sem hún
sagði karllægum bransanum stríð á hend-
ur. Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti, Geim-
farar, Lord Pussywhip, Shades of Reykja-
vik, Gervisykur og Kött grá Pé eru á
meðal heitustu hipphopp-listamannanna
í dag. Sá síðastnefndi á eitt vinsælasta
lag landsins um þessar mundir, Aheybaró
sem er reggískotið og hrátt. Einnig tók
hjarta margs hipphopp-unnandans kipp
þegar Ragna, Cell 7, tilkynnti endurkomu
sína, en hún hefur lítið sést síðan á gull-
aldarárum Subterranean. Rottweiler
minntu á sig af krafti og boða meira partí
svo ljóst er að engin ein stefna er ríkjandi
í dag og allt virðist í boði.
María Lilja
Þrastardóttir
maria@frettabladid.is
Íslenskt hipphopp
Mikil gróska hefur verið í íslensku hipphoppsenunni síðustu
ár. Fréttablaðið tók saman hluta þeirra fjölmörgu banda
sem hafa mótað og haft leiðandi áhrif á stefnuna, sem
virðist vaxa og dafna ár frá ári.
Tennurnar hans afa– 1990 Textar sveitarinnar voru afar klámfengnir og fjöll-
uðu nær undantekningarlaust um ríðingar. Vinsælasta lag Tannanna var La Barna úr
kvikmyndinni Veggfóður. Lagið var tekið úr útvarpsspilun þar sem það þótti of gróft. „Ég
eitt sinn fór í físuleit, hitti stúlku unga. Ég meyjarhaftið hennar sleit, gerði hana þunga.
Stúlka þessi ekki var fyrir skyndikynni, samt sem áður var hún óð í físu sinni.“
Tennessee trans– 1994 Tennessee trans var stofnuð í gríni. Tennessee-tengingin
ku hafa verið algjörlega samhengislaus. Lagið Hip hop Halli náði þó ófyrirséðum
vinsældum og varð hálfgerður sumarsmellur. Svala Björgvins söng í viðlaginu. Sennilega
áður en hún kom fram í sálar-klassíkernum Was It All It Was með Margeiri Ingólfs.
Subterranean – 1997 Er án efa ein allra besta hljómsveit tíunda áratugarins. Allar
stelpur vildu vera Ragna, Cell 7, sem gaf strákunum lítið eftir. Bræðurnir Kalli og Maggi
eru enn þá að og hafa gert garðinn frægan með hinum ýmsu reggíböndum.
Rampage og Bix – 1997 Lagið One Way naut nokkurra vinsælda en einnig gáfu
félagarnir út plötu. Það var notað í kvikmyndinni Blossi sem spegill á samtímann.
Quarashi Það er óhætt að segja að sveitin sé sú allra stærsta sem íslensk hipphopp-
menning ól af sér. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu 1996.
Tetriz– 1995-1997 Skemmtistaðurinn Tetriz var félagsmiðstöð fyrir unga hipphopp-
aðdáendur. Þar voru haldnir tónleikar, skífuskönk og grasreykingar voru ekki sjaldgæf
sjón þar inni.
Real Flavaz– 1998 Systurnar Bylgja og Drífa voru uppgötvaðar af guðföðurnum
sjálfum Robba Cronic/dj Rampage þegar þær skemmtu í Fellahelli. Þeim var rakleiðis
hent í stúdíó og út kom gullmolinn Get it on. Þær stigu í kjölfarið hratt fram í sviðsljós
hipphopp-senunnar en hurfu því miður einnig snögglega.
SupahSyndikal– 1998 Bræðurnir Erpur og Eyjólfur
Eyvindarsynir höfðu verið að grúska saman í rappsmíðum frá
´93. Þeir stofnuðu bandið SupahSyndikal ásamt Magse, Intro
Beats og Ómari Suarez. Bandið fékk ýmis fyrirheit um heims-
frægð, sem gengu þó ekki eftir. Allir meðlimir eru þó frægir á
Íslandi í listum í dag.
Tríó Óla Skans– 1997 Bandið var stofnað af þeim Óm-
ari Suarez, Trausta KEZ og Kalla sem þá kallaði sig DJ Demo.
Ómar Ómar– 1998 Fór Ómar fyrir hópnum TFA. Ómar
kom á kopp vefsíðunni hiphop.is og er einn af aðalsprautum
senunnar.
Element Crew– 1998 Breikið var með endurkomu undir
styrkri stjórn Grétars nokkurs „Gretzky“.
Platoon– 1999 Erpur Eyvindarson ritstýrði tímaritinu Undir-
tónum, sællar minningar. Þar voru á meðal margra annarra
uppgötvaðir þrír ungir drengir, VividBrain, Vocab og Bangsi, sem
þóttu á meðal færari taktkjafta. Platoon kölluðu þeir „krúið“.
Forgotten Lores– 2000 Fyrsta plata sveitarinnar og að margra mati ein sú merki-
legasta í hipphopp-sögunni var Týndi hlekkurinn, sem kom út 2003. Meðlimir eru hvergi
nærri hættir og
XXX Rottweiler hundar, áður 110 Rottweiler hundar, unnu Músíktilraunir 2000.
Erpur Eyvindarson gekk síðan til liðs við Árbæjarrapparana og nafninu var breytt. Þeirra
fyrsta, og samnefnda, plata kom út árið 2001 og er af mörgum talin hafa
breytt tónlistarsenunni á Íslandi til frambúðar.
Sesar A Stormurinn á eftir logninu– 2001 Fyrsta hipphopp-
platan þar sem einungis var rappað á íslensku. Eyjólfur Eyvindarson
er af hipphopp-fróðum mönnum kallaður afi íslensku hipphopp-
senunnar. Hipphoppið virðist vera honum í blóð borið og það er fátt
innan senunnar sem Eyjólfur hefur ekki komið að með einum eða
öðrum hætti.
Beta Rokk– 2002 Beta rokk vaknaði upp í Brussel.
Móri– Grænir fingur – 2003 Rapparinn Móri ruddist fram á sjónarsviðið
með glæparappplötuna Grænir fingur. Hann hafði þó verið innvígður í rappsenuna um
nokkurt skeið. Platan fjallaði um samskipti hans við lögregluna og grasreykingar. Hann
komst aftur í fréttir á þessu ári þegar dómur féll í líkamsárásarmáli sem Erpur Eyvindar-
son rak á hendur honum.
Sveittir gangaverðir– 2003 Eiga án efa eitt ofspilaðasta lag
áratugarins, Búggíbúggí. Hressir strákar úr MS. Gáfu út eina plötu en
hurfu eftir það.
Emmsjé Gauti– 2005 Þá ætlaði Gauti að sigra heiminn í Idol.
Hann komst ekki áfram en fór fljótlega að rúlla með aðalhalanum í
bransanum, Blaz roca. Þeir eiga án efa eitt umdeildasta lag seinni ára,
„Elskum þessar mellur“.
Dabbi Té– 2006 Kom eins og orðljót þruma úr heiðskíru
lofti. Foreldrar tóku andköf þegar þeir heyrðu óheflað málfar
berast úr unglingaherberginu.
Sævar Poetrix– 2007 Sævar er beittur textasmiður.
Hann rappaði um ruglið sem hann náði sér upp úr. Mörgum
þótti hann þó missa „swagið“ endanlega þegar hann tók
upp lag með edrúkónginum Bubba Morthens.
7berg– 2008 Sumarið í Reykjavík er sumarhittari sem
seint líður úr manna minnum.
Busta Bitches– 2009 Grunnskólabófar úr Árbænum sem
voru óhræddir við að gera tilraunir með takta og textasmíð.
Þeir nutu þó mismikillar hylli.
Skytturnar– 2011 Sneru aftur eftir að hafa legið
í dvala í rúm sjö ár.
Kött grá pé– 2013 Nýjasta vonarstjarna rapp-
heimsins leit dagsins ljós í ár.
1 XXX Rottweilerhundar
2 Forgotten Lores
3 Shades of Reykjavik
4 Dabbi T
5 Bent
6 Diddi Fel
7 Benni B-ruff
8 Robbi Chronic
9 Þórdís Nadia Semichat
10 Gísli Pálmi
11 Ragna Kjartansdóttir
12 Beta Rokk
1
2
3
45
6
7
8
9
10 11 12
2010 +