Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 34
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 Er einhver sérstök ástæða fyrir því að gefa út safn-plötu á þessum tíma-punkti?Heiðar: „Nei ekki þannig. Það er ekkert afmæli í ár eða neitt slíkt.“ Halli: „Við komum óvænt fram á minningartónleikum um Hermann Fannar Valgarðsson, vin okkar sem lést fyrir aldur fram árið 2011, og í framhaldi af því vorum við með smá „kombakk“ síðasta sumar. Þá kom til tals að svona safnplata væri löngu orðin tímabær, svo við ákváðum að æfa upp tvö ný lög og grafa í geymslunum eftir ýmsu óút- gefnu efni, b-hliðum og slíku.“ Hvers geta aðdáendur sveitar- innar vænst af plötunni? Heiðar: „Ég hugsa að þetta sé mjög feitur pakki, tvöföld plata, og kennir ýmissa grasa. Á annarri hlið- inni eru vinsælustu lögin okkar og á hinni eru meðal annars b- hliðar eins og Ave maria, Í stuði með Þossa og Simma sem heyrðist mikið eitt sumarið, Reykjavíkurnætur eftir Megas, Devo-lagið Uncontrollable Urge og líka einhverjar enskar útgáfur af lögunum okkar, demó- útgáfur, tónleikaútgáfur og fleira.“ Halli: „Svo eru þarna lög sem komust ekki á allar fimm plöt urnar okkar. Eitt lag sem komst ekki á fyrstu plötuna okkar, Drullumall, sem heitir Konan með kleinurnar, þrjú lög sem ekki náðu inn á Fólk er fífl og svo mætti lengi telja. Í raun má segja að það sé góð ástæða fyrir því að sum af þessum lögum voru ekki á plötunum, því þau verða seint talin með bestu lögum Botn- leðju, en eitt lag sem ekki komst á fjórðu plötuna okkar, Douglas Dakota, er mjög gott og við áttum okkur ekki á því hvers vegna við slepptum því.“ Heiðar: „Það er óskiljanlegt.“ Halli: „Við fundum líka upp- tökur af lögum sem við gerðum fyrir sjónvarpsþátt sem Baltasar Kormákur gerði, helling af tónlist, en enginn okkar man nokkuð eftir því að hafa búið þetta til. Og það er ekki vegna þess að við höfum verið í einhverju rugli, við getum bara ómögulega munað neitt í sambandi við þetta.“ Heiðar: „Ég hlustaði á þessi lög og var á tímabili mjög efins um að það væru í raun og veru við sem værum að spila. En það var gaman að fara í gegnum allar þessar upp- tökur, að loka þessu tímabili og pakka því inn á vissan hátt.“ Erum opnir fyrir nýrri plötu Þú talar um að loka þessu tímabili. Nú eru tvö spánný lög á plötunni, þar af lagið Panikkast sem er byrjað að heyrast á öldum ljósvakans, og einhverjir vonast væntanlega eftir því að þetta sé frekar framhald en endalok. Halli: „Ef þessi nýju lög leggjast vel í fólk og það telur að við höfum eitthvað fram að færa, að við séum enn þá „með þetta“, þá erum við opnir fyrir því að gera nýja plötu. En þessar forsendur þurfa þá að liggja fyrir. Það er ekkert sérlega gaman þegar gamlir karlar koma saman og gera plötu sem enginn fílar. Við berum mikla virðingu fyrir Botnleðju og allt sem kemur frá þeirri sveit verður að vera hundrað og þrjátíu prósent.“ Heiðar: „Oft er fólk kannski að gera þetta fyrir sjálft sig og er alveg sama hvað öðrum finnst. En við viljum að fólk fíli þetta.“ Halli: „Við erum vanir því að vera á toppnum og ætlum ekkert að breyta því.“ Heiðar: „Toppleðja.“ Halli: „Einmitt. Við ættum eigin- lega að breyta nafninu á hljómsveit- inni.“ Hvernig metið þið hvort forsend- urnar fyrir nýrri plötu séu fyrir hendi? Halli: „Málið verður sett í svo- kallaða rannsóknarnefnd Botnleðju, sem metur ummæli fólks.“ Heiðar: „Sú vinna mun hefjast í haust.“ Boðið að tromma í Coldplay Þið unnuð Músíktilraunir 1995 og störfuðuð sleitulaust í nærri tíu ár, þar til að kom að fríinu langa. Hve- nær var Botnleðja best? Heiðar: „Að mínu mati náðum við að toppa okkur á Magnyl, þriðju plötunni. Ég tengi best við hana í dag.“ Halli: „Á Magnyl var sándið eins og við fílum það. Bjagað og lifandi.“ Botnleðja var mjög vinsæl hljóm- sveit á löngu tímabili. Þið hituðuð meðal annars upp fyrir Blur á hljómleikaferðalagi og spiluðuð fyrir fjölda fólks bæði hérlendis og erlendis. Leið ykkur nokkurn tíma eins og rokkstjörnum? Heiðar: „Nei. Við höfum alla tíð hlegið að öllum slíkum vanga- veltum og aldrei pælt mikið í þeim.“ Halli: „Listrænt frelsi hefur allt- af skipt okkur miklu máli og „sell out“ kom aldrei til greina. Okkur var boðið alls kyns rugl, sem hefði hugsanlega aukið vinsældir okkar annars staðar, en við tókum aldrei þátt í því.“ Heiðar: „Pródúsentar vildu poppa sándið okkar upp og eitthvað slíkt, en við neituðum alltaf.“ Halli: „Mér var líka boðið að fara í tónleikaferðalag með Coldplay, en afþakkaði það. Ekki vegna þess að það hefði verið „sell out“ heldur vegna þess að mér fannst demóin sem þeir sendu mér, með nokkrum lögum af fyrstu plötunni þeirra Parachutes, svo ógeðslega leiðinleg.“ Heiðar: „Þeir ráku trommarann sinn tímabundið og voru í vand- ræðum.“ Halli: „Ég væri alls ekki til í að vera í hans sporum núna.“ Heiðar: „Er það ekki?“ Halli: „Nei. Ég er sannfærður um að ég valdi rétt.“ Heiðar: „Svo gerðum við auð- vitað lag fyrir Samfylkinguna, Ég er frjáls, til að redda okkur út úr fjárhagsvandræðum.“ Halli: „Við tókum lán til að gefa Douglas Dakota-plötuna út sjálfir, en henni var dreift hjá Japis sem einhverjir gosar höfðu tekið við. Svo fór Japis á hausinn og inn- koman af plötunni festist inni. Við vorum því í skítamálum, fjárhags- lega séð, og neyddumst til að gera þetta lag. Samfylkingin borgaði niður skuldirnar okkar. Þannig var skjaldborgin þá.“ Heiðar: „Okkur leið ekkert vel með þetta en réðum okkur bara í vinnu og skiluðum okkar, með óbragð í munninum.“ Og kusuð þið Samfylkinguna í þessum kosningum? Halli: „Það getur enginn sannað það.“ Hluti af heimsyfirráðapælingum Árið 2003 skelltuð þið ykkur báðir í Kennaraháskólann og lærðuð til leikskólakennara. Nokkrum árum síðar varð hljómsveitin Polla- pönk til og þannig urðuð þið líka að hetjum hjá yngstu krökkunum. Ekki getur þetta talist hefðbundin leið fyrir rokkara að fara? Halli: „Þetta er allt hluti af heimsyfirráðaplönum, sjáðu til.“ Heiðar: „Einmitt. Krakkarnir sem hlustuðu á fyrstu Pollapönks- plötuna eru margir orðnir ung- lingar í dag. Nú kemur Botnleðja aftur og þá geta þessir unglingar skipt úr Pollapönki yfir í Botnleðju og svo koll af kolli.“ En segjum svo að Botnleðja haldi risatónleika á næstunni. Ef þið fengjuð fullkomlega frítt spil, hvaða hljómsveitir myndu þá hita upp? Halli: „Nirvana. Engin spurn- ing.“ Heiðar: „Blur. Við höfum hitað svo oft upp fyrir þá og þeir skulda okkur.“ HEIMA ER BEST Hafnfirðingarnir í Botnleðju, þeir Heiðar Örn Kristjánsson, Ragnar Páll Steinsson og Haraldur Freyr Gíslason, hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Okkur var boðið alls kyns rugl, sem hefði hugsanlega aukið vin- sældir okkar annars staðar, en við tókum aldrei þátt í því. Halli í Botnleðju Samfylkingin borgaði skuldina Rokksveitin Botnleðja sendir senn frá sér safnskífuna Þegar öllu er á botninn hvolft, þar sem finna má helstu smellina og óútgefnar upptökur auk tveggja glænýrra laga. Rokkararnir og leikskólakennararnir Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason rifja upp plöturnar, trommarastöðuna í Coldplay sem var afþökkuð og stuðningslagið við stjórnmálaflokkinn. BOTNLEÐJU-PLÖTURNAR DRULLUMALL 1995 FÓLK ER FÍFL 1996 MAGNYL 1998 DOUGLAS DAKOTA 2000 ICELAND NATIONAL PARK 2003 Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.