Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 40

Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 40
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40 Við höfum öll fengið tölvubréf sem tilkynnir okkur að gæfuhjól okkar sé aldeilis farið að snúast. Á bjagaðri ensku er okkur til-kynnt að í fjarlægu ríki sé ein-hver í vandræðum með að færa peninga úr landi. Hvort við getum náðar- samlegast lánað bankareikninginn okkar í tilfærsluna, að sjálfsögðu gegn góðri þóknun? Í sumum tilfellum hafa ættfræð- ingar ekki slegið slöku við heldur haft upp á þér þar sem þú ert fjarskyldur ættingi ein- hvers mógúls úti í heimi. Sá er nýfallinn frá og þín bíður arfur! Gefðu bara upp banka- upplýsingarnar þínar og sjá, þú munt velta þér upp úr fé þíns fjarskylda ættingja. Sá sem lætur blekkjast mun þó upp- götva fljótt að eitthvað stendur á greiðslu auðæfanna. Viðkomandi þarf að borga ein- hvern kostnað og svo meiri kostnað og svo enn meiri kostnað. Þó að við hlæjum flest að þessum bréfum eru þau dauðans alvara fyrir fjölda fólks. Samkvæmt skýrslu banda- rískra stjórnvalda töpuðu Bandaríkjamenn 198,4 milljónum dollara árið 2006 á net- svindli. Meðaltapið nam 5.100 dollurum á hvert fórnarlamb. Netsvindl kostar breska þjóðarbúið 150 milljónir punda á hverju ári og hvert fórnarlamb tapar að meðaltali 31.000 pundum. Í alvarlegustu tilvikunum er fólk ginnt til að leggja land undir fót, gjarn- an til Afríkuríkis. Þar er það tekið gíslingu og lausnargjalds krafist. Þekkt eru dæmi um að fólk hafi hreinlega verið drepið þegar ræningjarnir fengu ekki það sem þeir vildu. Spánn og Nígería Bréf af þessum toga hafa verið kölluð Nígeríu bréf. Þau hafa þó sjaldnast nokkur tengsl við Nígeríu í dag. Heitið kemur þó til af því að ungir Nígeríubúar voru duglegir við að senda út slík gylliboð. Þeir notuðu netkaffihúsin í heimalandi sínu og lofuðu fólki úti í heimi gulli og grænum skógum. Fórnar lömb sín kölluðu þeir maghas, en það er slanguryrði sem þýðir einfaldlega fífl eða bjáni. Fyrstu útgáfurnar fjölluðu flestar um nígerískan prins sem þurfti aðstoð ókunn- ugra Vesturlandabúa. Á ensku er svona svindl kallað Nigerian 419 scam, en tölurnar vísa í samsvarandi grein í nígerískum lögum sem tekur á at- hæfinu. Gósentíð tölvusvindlsins var 9. áratugur- inn, þegar tölvunotkun var að breiðast út og nethegðun fólks var enn bernsk. Svindlið er þó mun eldra. Á 19. öld stunduðu þrjótar svindl sem kennt var við spánska fangann. Þeir höfðu samband við peningamenn og leit- uðu aðstoðar við að koma fanga úr spænsku fangelsi. Sá væri vel stæður og myndi launa greiðann vel. Það eina sem vantaði væri fé til að greiða kostnaðinn, flutning og mútur til fangavarðanna. Fjárfestingin myndi borga sig vel. Varla þarf að taka það fram að enginn var fanginn og þeir sem í góðri trú létu fé af hendi sáu viðtakendurna aldrei aftur. Aleigan farin Fórnarlömb Nígeríusvindls eru mýmörg, eins og tölurnar hér að ofan bera með sér. Þá eru þau án efa mun fleiri en tölur segja til um, þar sem fjölmargir sem verða fyrir svindlinu skammast sín of mikið til að segja frá því. Það er ekki gott fyrir sálartetrið að viðurkenna að gróðavonin, eða kannski græðgin, hafi glapið mann svo að maður hafi lagt aleiguna inn á reikning hjá fólki sem maður hefur aldrei hitt. Það er einmitt það sem bandaríska konan Janella Spears gerði. Hún fékk tölvupóst um að hún hefði erft umtalsverðar upp- hæðir eftir afa sinn, sem hvarf fyrir löngu. Þar sem afi Spears hafði einmitt horfið, og upphafsstafir hans voru þeir sömu og í nafni uppdiktaða afans, varð hún spennt og lagði umbeðna upphæð inn á reikning. Á næstu tveimur árum lagði hún 400 þús- und dollara inn á hina ýmsu reikninga, þrátt fyrir að fjölskylda hennar, bankinn og lögregla hefðu öll hvatt hana til að láta af athæfinu. Uppi stóð hún slipp og snauð og rúin virðingu. Hið sama átti við um Breta sem kveikti í sjálfum sér eftir að hann uppgötvaði að lottóvinningurinn sem honum hafði verið lofað, 1,2 milljónir dollara, var svindlið eitt. Þá hafði hann eytt umtalsverðum upp- hæðum í að nálgast féð. Árið 2007 greip kínverskur nemandi í háskólanum í Nott- ingham til sama óyndisúrræðis eftir að hafa fallið fyrir netsvindli. Japanski kaupsýslumaðurinn Osamai Hitomi gerði sér árið 2008 ferð til Jóhannesar- borgar í von um mikinn gróða. Í stað velviljaðra manna sem aðstoðuðu hann við að nálgast féð mættu honum ótíndir glæpamenn sem tóku hann í gíslingu og kröfðust 5 milljón doll- ara í lausnargjald. Þeir voru þó á endanum handteknir. Þó hafa ekki hafa allir verið svo heppnir og dæmi eru um að fórnarlömbin hafi einfaldlega veri drepin. Græðgin verður að falli En hvað er það sem fær fólk til að trúa jafn fjarstæðukenndum tilboðum og raun ber vitni? Hvernig dettur nokkrum í hug að einhvers staðar úti í heimi sé fólk sem bíður með milljónir og aftur milljónir til að afhenda bláókunnugu fólki, og eina skil- yrðið sé að það megi ekki koma til afskipta yfirvalda? Þar kemur græðgin inn í myndina, vonin um að öðlast mikið fé án mikils tilkostn- aðar. Þetta blundar í flestu fólki, þótt flestir hafi vit á því að láta þá von ekki blinda sig. Með tölvubréfunum tekst svindlurunum að afmarka þann hóp sem er auðtrúa og beina sjónum beint að þeim sem svara Nígerískur prins þarf á aðstoð þinni að halda Þegar gróðavon er annars vegar virðist skynsemin hjá fólki oft fljúga út um gluggann. Við trúum því að við eigum fjarskyldan ættingja í Afríku sem þarf aðstoð okkar, eða að ókunnugt fólk leiti til okkar til að koma fjármunum úr landi. Netsvindlið veltir milljörðum árlega. Á heimasíðu lögreglunnar á Íslandi, logreglan.is, er að finna hnapp sem merktur er svika- póstur. Þeir sem verða fyrir hvers kyns svindli í gegnum tölvu eiga að tilkynna það til viðkomandi lögregluembættis. Embætti Ríkis- lögreglustjóra tekur síðan utan um fjölda mála og umfang. Óskar Þórmundsson er yfirlögregluþjónn hjá peningaþvættisskrifstofu Ríkislögreglustjóra. Hann segir að fæst mál séu kærð til lögreglunnar, þó að þau séu tilkynnt. „Flestir hafa borið harm sinn í hljóði. Ég veit til þess að fólk hafi tapað peningum á svona svindli en það hafa ekki verið háar upphæðir. Venjulega hefur þetta fólk komið og hálfskammast sín fyrir trúgirnina. Að þessu leytinu kemur þetta ekki mikið inn á okkar borð.“ Barnaland varað við Óskar man þó eftir dæmum um ákveðnar tegundir af tölvutengdu svindli sem hafi farið lengra. Til að mynda tengdist eitt þeirra síðunni Barnaland. „Fólk hefur verið að selja bíla– og hvernig geta menn tapað á því? Það hefur sett sig í samband við áhugasaman kaupanda í útlöndum og sá jafnvel beðið um að fá myndband af bílnum og upptöku af vélarhljóðinu. Síðan hefur seljandinn fengið afrit af borgunarsíðu, til dæmis PayPal, þar sem fram kemur að búið sé að leggja andvirði bílsins inn á reikning þess. Sá sem var að selja hefur síðan þurft að leggja inn fyrir flutningskostnaði úr landi. Í ljós kemur hins vegar að afritið af borgunar- síðunni er falsað og fólk tapar upphæðinni fyrir flutningskostnað. Við vöruðum Barnaland við þessu á sínum tíma.“ Allir vilja detta í lukkupottinn Óskar segir að mjög erfitt sé að fást við þessi mál. Lögreglan í nágrannalöndunum og í Bret- landi, svo dæmi séu tekin, setji töluverðan mann- skap í þau. Þrjótarnir hverfi hins vegar mjög fljótt og erfitt sé að hafa uppi á þeim. Eina ráðið sé að vera ekki trúgjarn. „Fólk sér nú yfirleitt í gegnum þetta. Ef þetta er of gott til að vera satt, þá er það of gott til að vera satt. Þetta er meginreglan sem ég hef sagt fólki.“ En fólk blindast oft, eins og þegar kemur að því að fá happdrættisvinninga eða fá arf. „Það getur vel verið að ég hafi dottið í lukkupottinn og hafi átt fjarskyldan ættingja einhvers staðar,“ hugsar það með sér. Það er það sem þessir karlar eru svo klárir í.“ FÓLK BLINDAST AF GRÓÐAVONINNI ÓSKAR ÞÓRMUNDSSON Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Fólk sér nú yfirleitt í gegnum þetta. Ef þetta er of gott til að vera satt, þá er það of gott til að vera satt. Þetta er meginreglan sem ég hef sagt fólki. Óskar Þórmundsson, yfirlögregluþjónn á peningaþvættisskrifstofu Ríkislögreglustjóra bréfunum. Aðrir hlæja einfaldlega að bréfunum, setja þau á Facebook eða beint í ruslakörfuna. Þegar kemur að gylliboðum er best að hafa það fornkveðna í huga að ef eitthvað hljómar of gott til að vera of satt, þá er það of gott til að vera satt. FJARSKYLDUR ÆTTINGI? Svona gæti fjarskyldur afrískur ættingi greinarhö- fundar litið út. Varhugavert væri þó að treysta á að umræddur meintur ættingi hefði skilið eftir sig fúlgur fjár og bláókunnugt fólk legði nótt við nýtan dag til að koma til undirritaðs. SAMSETT MYND/KRISTINN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.