Fréttablaðið - 01.06.2013, Síða 52
FÓLK|TÍSKA
Í STARFSNÁM
HJÁ MARIALUX
TÍSKA Sunna Örlygsdóttir fatahönnuður hlaut í vikunni styrk frá hönnunar-
sjóði Auroru til starfsnáms hjá fyrirtækinu MariaLux í Amsterdam. Þar mun
hún læra undir handleiðslu hönnuðarins Lilian Driessen.
Uppboð verður haldið á flíkum Menkes hjá
uppboðshúsinu Christies í júlí. Til sölu verða
áttatíu flíkur sem Menkes hefur klæðst í
gegnum tíðina auk taska og fylgihluta eftir
hönnuði á borð við Emilio Pucci, Yves Saint
Laurent, Christian Lacroix og Chanel
„Ég hef aldrei hent neinu úr skáp-
unum frá árinu 1964,“ segir Menkes
og telur að ef hún hefði húsnæði
í það myndi hún opna safn með
flíkum sínum. Með uppboðinu
ætlar Menkes að gefa flíkunum
nýtt líf og leyfa öðrum að njóta
þeirra líkt og hún gerði.
Menkes hefur frá 1988 verið
aðaltískublaðamaður og ritstjóri
alþjóðlegrar útgáfu Herald Trib-
une. Hún fékk nýlega starf alþjóð-
legs tískuritstjóra fyrir blaðið
International New York Times
sem áætlað er að verði hleypt
af stokkunum bráðlega.
SUZY MENKES
Hefur verið tískublaða-
maður í áratugi og hefur
á þeim tíma safnað ótrú-
legu magni af hönnunar-
fatnaði.
BLAÐAMAÐUR TÆMIR SKÁPANA
Blaðamaðurinn breski Suzy Menkes hefur fjallað um tískuheiminn í fjölda-
mörg ár. Hún á sjálf ótrúlegt magn fatnaðar sem hún ætlar nú að selja.
YVES SAINT
LAURENT
CHRISTIAN
DIOR
CHRISTIAN
LACROIX
Sunna hefur haft áhuga á fötum frá unga aldri og ákvað níu ára gömul að hana langaði til að læra
fatahönnun. „Eftir menntaskóla fór ég til
Danmerkur til að læra handavinnu í eitt
ár til að undirbúa mig undir fatahönn-
unarnám í Listaháskóla Íslands,“
segir Sunna en þaðan útskrifaðist
hún síðastliðið vor með BA-gráðu.
Hún hefur farið tvisvar í starfs-
nám, annars vegar hjá Steinunni
fatahönnuði og hins vegar hjá hinu
virta tískuhúsi Rue du Mail í París. Að
auki hefur hún tekið þátt í fatahönn-
unarkeppninni Designer´s Nest í Kaup-
mannahöfn.
Í haust byrjar nýr kafli þegar
Sunna heldur í starfsnám hjá
fyrirtækinu MariaLux í Amster-
dam. Þar verður hún undir
handleiðslu hönnuðarins Lilian
Driessen sem meðal annars
hefur verið yfirhönnuður
hjá hinum víðfrægu Viktor
& Rolf. „Hún hefur verið
í þessu lengi og er
núna með sitt eigið
merki. Undir því
hannar hún bæði
kvenfatnað og ilm-
vötn,“ segir Sunna og
bætir við að Driessen
hanni einnig útlit fyrir
ilmvatnsumbúðir.
Sunna hlakkar til að
takast á við ný verkefni. „Ég
ætla að læra allt sem ég get
enda er Lilian búin að lofa
að starfið verði mjög áhuga-
vert,“ segir hún og finnst
alveg ómissandi að fara í
starfsnám.
Sunna áætlar að dvelja í
Hollandi í þrjá mánuði. En
hvað með framtíðarvonir
hennar? „Vonandi fæ ég
launaða vinnu í faginu mínu.
Í mínum villtustu draumum
færi ég að vinna við „haute
couture“ en ég veit ekki
hvort það sé raunhæft,“
segir hún glaðlega.
■ solveig@365.is
SUNNA ÖRLYGSDÓTTIR
Myndirnar eru úr
útskriftarlínu
Sunnu frá
Listahá-
skóla Ís-
lands.
Suzuki gítarnám
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík
býður nú upp á gítarnám í fyrsta sinn
fyrir nemendur á aldrinum 3ja til 7 ára.
Einnig er kennt á fiðlu, víólu,
píanó og selló.
Skrifstofa skólans er opin milli
kl. 9:00-13:00 mánudaga-föstudaga.
Upplýsingar í síma 551-5777 eða á
postur@suzukitonlist.is
Innritun í
Suzukitónlistarskólann
í Rey javík
Innritun fyrir skólaárið 2013-2014 er hafin.
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík
býður upp á Suzukikennslu fyrir nemendur
á aldrinum 4ja til 7 ára.
Kennt er á fiðlu, víólu, píanó, selló og gítar.
Skrifstofa skólans er opin milli kl. 9.00-13.00
mánudaga-föstudaga.
Nánari upplýsingar í síma 551-5777
eða á postur@suzukitonlist.is
Spánarfrí.is
Leigumiðlun
Dregur úr t íðni og
styrkle ika höfuðverkja
Nánari upplýsingar www.migreni.is
Nýtt
á Íslandi
BEST OF
SUPPLEMENTS
AWARD
WINNER
Ekki þjást
Mígreni.is
Fyrirbyggjandi fæðubótarefni / vítamín
Hámarks árangur næst eftir 3. mánaða notkun
Vísindalega sannað að MigreLief gagnast við mígreni.
Save the Children á Íslandi