Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 59

Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 59
Safnadeild RÚV óskar eftir að ráða starfsmann í skráningu á tónlist Helstu verkefni ◊ Skráning og lyklun á innlendri sem erlendri útgefinni tónlist og tónlistarupptökum samkvæmt alþjóðlegum reglum og stöðlum. ◊ Upplýsingaþjónusta sem felur í sér leit í gagnagrunnum og spjaldskrám RÚV, í uppflettiritum og innlendum og erlendum gagnagrunnum. ◊ Þróun og viðhald efnisorðalykils á sviði tónlistar, í samráði við annað starfsfólk RÚV. ◊ Þátttaka í þróun og hönnun á tölvukerfum safnadeildar. ◊ Þátttaka í samstarfi við innlenda faghópa á starfssviðinu. ◊ Almenn afgreiðsla. Hlutverk safnadeildar er að safna, varðveita og miðla dagskrárefni Ríkisútvarpsins og styðja við starfsemina með fjölbreyttum safnkosti og skjalastjórnun. Safnadeildin heldur einnig utan um tónlistarefni til flutnings í útvarpi og sjónvarpi. Nánari upplýsingar veitir Margrét Sigurgeirsdóttir, safnastjóri í síma 515-3000 eða tölvupósti margrets@ruv.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.ruv.is/storf Við bjóðum upp á kraftmikið, skapandi og metnaðarfullt umhverfi þar sem starfar fjölbreyttur hópur fólks með mikla þekkingu og reynslu. Við leggjum áherslu á að endurspegla samfélagið sem við búum í og þess vegna hvetjum við konur jafnt sem karla til að sækja um. Menntunar- og hæfniskröfur ◊ Bókasafns- og upplýsingafræði. ◊ Tónlistarmenntun kostur. ◊ Reynsla af skráningu. ◊ Góð íslenskukunnátta. ◊ Góð almenn tölvuþekking. ◊ Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum. ◊ Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum. Grunnskólinn á Hólmavík Við Grunn- og Tónskólann á Hólmavík vantar kennara og stuðningsfulltrúa til starfa skólaárið 2013-2014 • Meðal kennslugreina er íslenska, stærðfræði, samfélagsgreinar og íþróttir. • Einnig vantar stuðningsfulltrúa til að vinna með nemendum á skólatíma og í lengdri viðveru nemenda. • Við tónskólann eru lausar tvær stöður tónlistarkennara Umsækjendur um kennarastarf þurfa að hafa kennslu réttindi. Leitað er eftir einstaklingum með góða skipulags hæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar. Umsækjendur skulu hafa hreint sakarvottorð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN og KÍ vegna kennarastaða en samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegna stöðu stuðningsfulltrúa. Umsóknarfrestur er til 6. júní 2012. Nánari upplýsingar veita Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir, skólastjóri, sími 451 3129 og 698 0929 Ingibjörg Emilsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sími 451 3129 og 695 4743 Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist Huldu I. Rafnarsdóttur á skolastjorar@holmavik.is eða Grunnskólinn á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík Grunnskólinn á Hólmavík er samrekinn grunn- og tónskóli með um 80 nemendum í 1. – 10. bekk þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og samvinnu. Skólinn er Grænfánaskóli og er áhersla lögð á umhverfismennt og útinám. Við skólann starfar 20 manna samhentur hópur. Félagsmiðstöð ungmenna hefur aðstöðu í skólanum. Í Strandabyggð búa tæplega 520 manns þar af 380 manns í þéttbýlis- kjarnanum Hólmavík. Á staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar og náttúrufegurð mikil. Hólmavík er í einungis 233 km fjarlægð frá Reykjavík sem er um 3 tíma akstur. PIPA R \ TBW A SÍA 1312 0 5 Gæðastjóri Starfssvið Gerð gæðahandbókar, ferilvæðing og stöðug þróun ferla Uppbygging gæðakerfis sviðsins í samræmi við gæðakerfi háskólans Aðstoð við sjálfsmat deilda skv. áætlun gæðaráðs háskóla Endurmat árangurs af gæðastarfi sviðsins Skjalamál, þróun og útfærsla á skjalamálum sviðsins Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun er krafa, menntun á sviði verkfræði er kostur Haldgóð þekking á gæðastjórnun, ferlun og stöðugum umbótum Góð íslensku- og enskukunnátta og ritfærni á báðum tungumálum Afbragðs samskiptahæfni Frumkvæði í starfi og góðir samstarfshæfileikar Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Margrét Pálsdóttir, mannauðsstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, í síma 525 4644 og netfang: thp@hi.is Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2013. Sjá nánar um starfið á www.hi.is /laus_storf og á www.starfatorg.is. Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands óskar eftir að ráða gæðastjóra. Gæðastjórinn mun tilheyra stoðþjónustu sviðsins og heyra undir forseta þess. Meginhlutverk gæðastjóra er að þróa gæðakerfi sviðsins og lýsa verkferlum, skipuleggja markvissa umbótavinnu og eftirfylgni. Gæðastjórinn mun starfa náið með forseta sviðsins sem og gæðanefnd þess og gæðastjóra háskólans. Gæðakerfi sviðsins er hluti af gæðakerfi háskólans. Þar sem um nýtt starf er að ræða er mikilvægt að viðkomandi geti haft frumkvæði og sé úrræðagóður. Starfið er spennandi og fjölbreytt og reynir á færni í samskiptum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.