Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 64

Fréttablaðið - 01.06.2013, Page 64
www.vedur.is 522 6000 Rekstrarstjóri Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- og auðlinda- ráðuneyti. Hjá stofnuninni starfa um 135 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfa um 120 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Hlutverk stofnunarinnar er öflun, varðveisla og úrvinnsla gagna, sem og miðlun upplýsinga á helstu eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó, jöklum og hafi. Starfsemin fer fram á fjórum sviðum: Eftirlits- og spásviði, Fjármála- og rekstrarsviði, Athugana- og tæknisviði og Úrvinnslu- og rannsóknasviði. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is. Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Veðurstofa Íslands auglýsir eftir rekstrarstjóra í fullt starf á Eftirlits- og spásviði. Í boði er nýtt, spennandi og fjölbreytt framtíðarstarf. Eftirlits- og spásvið leikur lykilhlutverk í íslensku samfélagi þegar kemur að eftir liti, vöktun og þjónustu við almenning og stofn- anir vegna náttúruvár og veðurs. Hlut verk sviðsins er að annast sam þætta raun tíma- vöktun og útgáfu við varana og spáa vegna náttúruvár á Íslandi innan þess þjónustu- svæðis sem stofnunin ber ábyrgð á. Sviðið veitir almenningi, fyrir tækjum og stofn unum innan lands veður þjónustu í sam ræmi við lög, reglugerðir og samninga. Sviðið veitir jafn- framt alþjóðlegri og inn lendri flug starf semi flug veður þjónustu innan íslenska flug stjórnar- svæðisins samkvæmt samn ingum þar um. Helstu verkefni Umsjón með daglegum rekstri sviðsins, auk áætlana gerðar. Gerð, eftirlit og umsýsla vegna samninga. Gerð og utanumhald með vakta áætlunum, auk eftirlits með tíma- og verk skráningum sviðsins. Eftir fylgni með gæðamálum og aðkoma að starfs manna sam- tölum og endur menntun starfsmanna sviðsins í samráði við framkvæmdastjóra og mann- auðsstjóra. Viðkomandi mun einnig sinna aðgerðar stjórnun á skilgreindum þáttum í náttúruváratburðum. Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og áætlanagerð Góð færni í mannlegum samskiptum nauðsynleg Skipulögð og fagleg vinnubrögð Frumkvæði og ábyrgð Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg Þekking og/eða reynsla af atburða stjórnun kostur Um er að ræða fullt starf og taka laun mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um störfin veita Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri Eftirlits- og spásviðs (teddi@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is), í síma 522 6000. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní næstkomandi. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Veðurstofu Íslands undir www.vedur.is/um-vi/laus-storf eða á www.starfatorg.is. Dalvíkurbyggð Dalvíkurskóla vantar sérkennara Hæfniskröfur: - Grunnskólakennarapróf,viðbótarmenntun í sér- kennslufræðum skilyrði - Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur - Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í hóp - Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna - Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skóla- starfi - Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking, færni, virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Töfra- heimi stærðfræðinnar (stærðfræðiverkefni tengd reynsluheimi nemenda með áherslu á verklega vinnu). Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna. Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildastjóri kata@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8479810. Friðrik Arnarsson deildastjóri fridrik@dalvikurbyggd.is 4604980 og 8490980. Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunn-dagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina. Skrifstofustarf 50% Við leitum að starfsmanni í 50% starf á skrifstofu Subway á Íslandi. Um er að ræða bókhaldsstörf, afstemmingar, skönnun reikninga og önnur tilfallandi skrifstofustörf. Við gerum kröfur um almenna tölvukunnáttu, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og kostur ef viðkomandi hefur reynslu af Navision. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á starf@subway.is Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk. TM Meira í leiðinniWWW.N1.IS HELSTU VERKEFNI • Almenn þjónusta • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina • Önnur tilfallandi verkefni í verslun STARFSMAÐUR ÓSKAST N1 leitar að áreiðanlegum og kraftmiklum einstaklingi með góða þjónustulund til starfa í verslun félagsins á Akureyri. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Bjarnason verslunarstjóri í síma 440 1420. Vinsamlegast sækið um starfið á sigurdurb@n1.is fyrir 12. júní n.k. Grunnskólinn á Hellu auglýsir ! Kennarar Okkur vantar áhugasaman kennara til starfa á næsta skólaári. Um er að ræða almenna kennslu á yngsta stigi og miðstigi. Æskilegt er að umsækjandi sé tilbúinn til þess að starfa með börnum og unglingum að íþrótta og félagsmálum. Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans http://grhella.is/ Vinsamlegast hafið samband við undirritaða og fáið frekari upplýsingar. Sigurgeir Guðmundsson skólastjóri í síma 488 7021 / 894 8422 Steinar Tómasson aðstoðarskólastjóri í síma 4887022 / 845 5893 Laus staða við Súðavíkurskóla Súðavíkurhreppur er sveitarfélag við Ísafjarðardjúp, og er kauptúnið Súðavík við Álftafjörð þéttbýlasti hluti hreppsins. Hreppurinn skartar einstaklega fallegri og ósnortinni náttúru og er veðursæld mikil. Ei- nungis er 10 mínútna akstur á Ísafjarðarflugvöll og tekur um 40 mínútur að fljúga til Reykjavíkur. Skólahúsnæðið er glæsilegt og vel búið. Skólinn er einsetinn með fámennum aldursblönduðum bekkjardeildum, vel búinn tækjum og góðri vinnuaðstöðu. Leikskólinn er gjaldfrjáls í 6 tíma eða frá 8:00 til 14:00. Súðavíkurskóli samanstendur af þremur skólagerðum þ.e. grunn- leik- og tónlistarskóla. Núna er laus staða leik- skólakennara á leikskóladeildinni og umsjónarkennara í unglingadeild grunnskólans. Um er að ræða almennt starf á leikskóla og hinsvegar kennslu í íslensku, náttúrufræði, uppl-og tæknimennt, lífsleikni, handmennt og heimilis- fræði og íþróttir á öllum skólastigum. Unnið er í anda Uppbyggingar til ábyrgðar og lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Súðavíkur- hreppur greiðir laun eftir kjarasamningi KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 14.júní n.k. meðmæli óskast með umsókn. Nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í gsm: 893-4985.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.