Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 65

Fréttablaðið - 01.06.2013, Side 65
Umsjónarmaður veiðarfæra og eftirlitsmaður skipa Hafrannsóknastofnun leitar að starfsmanni til að annast umsjón með veiðarfærum, geymslum og ökutækjum, sjá um ýmis innkaup vegna rannsóknaskipanna og eftirlit með þeim í Reykjavíkurhöfn. Þá annast starfsmaðurinn móttöku sýna og sendingar til útibúa stofnunarinnar Hæfniskröfur: • Þekking á veiðarfærum og rekstri skipa • Lyftarapróf og akstursréttindi • Almenn tölvukunnátta Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur góða samskipta- og skipulagshæfileika og áhuga á mál- efnum sjávarútvegsins. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2013. Viðkomandi skal hefja störf ekki síðar en 1. september. Skriflegum umsóknum með ýtarlegum upplýsingum og starfsreynslu, auk nafna tveggja meðmælenda, skal skila til Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti (hafro@hafro.is). Nánari upplýsingar gefur Sólmundur Már Jónsson, aðstoðarforstjóri. Hafrannsóknastofnun er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skyn- samlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 150 starfsmenn í þjónustu sinni. Hafrannsóknastofnun Skúlagötu 4, 101 Reykjavík s: 575 2000 Hafrannsóknastofnun Mjóifjörður Norðfjörður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Lausar stöður skólastjórnenda og kennara í Fjarðabyggð Staða skólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í Fjarðabyggð. Grunnskóli Fáskrúðsfjaraðar er 80 nemenda skóli sem skipaður er góðu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýrri Skólamiðstöð á Fáskrúðsfirði en í henni eru einnig leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólamiðstöðinni ríkir góður starfandi og mikið og gott samstarf milli stofnana. Sjá nánar um helstu störf, menntun og hæfniskröfur á www.fjardabyggd.is laus störf. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is Allar frekari upplýsingar veitir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, í síma 860 8331 eða á netfanginu thoroddur.helgason@fjardabyggd.is Staða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í skólanum. Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Reyðarfjarðar stunda 160 nemendur nám. Skólinn er staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu. Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar Kennsla á unglingastigi þar sem ráðningartími er til eins árs. Einnig dönskukennsla á miðstigi, textílmennt og hönnun og smíði. Sjá nánar um helstu störf, menntun og hæfniskröfur á www.fjardabyggd.is laus störf Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.grunnrey.is Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 474-1247/863-1247 eða á netfangið asta@skolar.fjardabyggd.is Umsóknir og umsóknarfrestur Stöðurnar eru allar lausar frá 1. ágúst 2013. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 7. júní og skulu umsóknir berast rafrænt á fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslu- mála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Afgreiðsla í apóteki Lyfjaver ehf óskar eftir starfsmönnum til framtíðar- starfa við afgreiðslu í apóteki. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund og hreint sakavottorð. Lágmarksaldur er 20 ár. Reynsla af sambærilegum störfum æskileg. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið alli@lyfjaver.is fyrir 10. júní n.k Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur - sími: 863-0402 - husaskjol@husaskjol.is Ef þú ... • Leitar að fjölskylduvænum vinnustað • Vilt hafa sveigjanleika í starfi • Vilt fá laun í samræmi við árangur • Hefur mikla þjónustulund • Leitast við að fara fram úr væntingum viðskiptavina • Hefur áhuga á nýjungum og endurmenntun • Getur unnið undir álagi • Ert 30 ára eða eldri og hefur bíl til umráða ... Þá erum við að leita að þér. Áhugasamir sendi inn ferilskrá með mynd á asdis@husaskjol.is fyrir 10. Júní 2013. Öllum umsóknum verður svarað. P.s. Erum á facebook, kíktu á hvað viðskiptavinir hafa um okkur að segja. Átt þú heima hjá okkur? Hjá Húsaskjóli fasteignasölu starfar samhentur hópur kvenna sem hefur það að leiðarljósi að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Við leitum nú að fólki sem vill slást í hópinn og gera gott fyrirtæki enn betra. - Lifi› heil Spennandi tækifæri fyrir lyfjafræðing Lyfja Selfossi Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. hvetjum við karla jafnt sem konur til þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri, í síma 530-3800. Umsóknir sendist á netfangið hallur@lyfja.is Lyfja leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi í stöðu lyfsöluleyfishafa í Lyfju Selfossi. Í starfinu felst m.a. að bera faglega ábyrgð á rekstri lyfjabúðarinnar, annast daglegan rekstur og umsýslu og sjá til þess að unnið sé samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi. Í boði er krefjandi og spennandi starf fyrir metnaðarfullan lyfja- fræðing, samkeppnishæf laun og skemmtilegur vinnustaður í vaxandi bæjarfélagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Hæfniskröfur: Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi. Stjórnunar- hæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 09. júní. Lyfsöluleyfishafi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.