Fréttablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 65
Umsjónarmaður veiðarfæra
og eftirlitsmaður skipa
Hafrannsóknastofnun leitar að starfsmanni til að annast
umsjón með veiðarfærum, geymslum og ökutækjum, sjá
um ýmis innkaup vegna rannsóknaskipanna og eftirlit með
þeim í Reykjavíkurhöfn. Þá annast starfsmaðurinn móttöku
sýna og sendingar til útibúa stofnunarinnar
Hæfniskröfur:
• Þekking á veiðarfærum og rekstri skipa
• Lyftarapróf og akstursréttindi
• Almenn tölvukunnátta
Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur
góða samskipta- og skipulagshæfileika og áhuga á mál-
efnum sjávarútvegsins.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2013. Viðkomandi
skal hefja störf ekki síðar en 1. september.
Skriflegum umsóknum með ýtarlegum upplýsingum og
starfsreynslu, auk nafna tveggja meðmælenda, skal skila
til Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, eða
í tölvupósti (hafro@hafro.is). Nánari upplýsingar gefur
Sólmundur Már Jónsson, aðstoðarforstjóri.
Hafrannsóknastofnun er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf-
og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skyn-
samlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar
tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og
háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 150 starfsmenn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnun
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík
s: 575 2000
Hafrannsóknastofnun
Mjóifjörður Norðfjörður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður
Lausar stöður skólastjórnenda og kennara í Fjarðabyggð
Staða skólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu
skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Grunnskóli Fáskrúðsfjaraðar er 80 nemenda skóli sem skipaður er góðu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýrri Skólamiðstöð
á Fáskrúðsfirði en í henni eru einnig leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólamiðstöðinni ríkir góður starfandi og mikið
og gott samstarf milli stofnana.
Sjá nánar um helstu störf, menntun og hæfniskröfur á www.fjardabyggd.is laus störf.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is
Allar frekari upplýsingar veitir Þóroddur Helgason, fræðslustjóri, í síma 860 8331 eða á netfanginu
thoroddur.helgason@fjardabyggd.is
Staða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í skólanum.
Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Reyðarfjarðar stunda 160
nemendur nám. Skólinn er staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.
Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Kennsla á unglingastigi þar sem ráðningartími er til eins árs. Einnig dönskukennsla á miðstigi, textílmennt og hönnun og
smíði.
Sjá nánar um helstu störf, menntun og hæfniskröfur á www.fjardabyggd.is laus störf
Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.grunnrey.is
Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri í síma 474-1247/863-1247 eða á netfangið
asta@skolar.fjardabyggd.is
Umsóknir og umsóknarfrestur
Stöðurnar eru allar lausar frá 1. ágúst 2013. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 7. júní og skulu umsóknir berast rafrænt á fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á
skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslu-
mála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Afgreiðsla í apóteki
Lyfjaver ehf óskar eftir starfsmönnum til framtíðar-
starfa við afgreiðslu í apóteki. Viðkomandi þarf
að hafa góða þjónustulund og hreint sakavottorð.
Lágmarksaldur er 20 ár. Reynsla af sambærilegum
störfum æskileg. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu
sendar á netfangið alli@lyfjaver.is fyrir 10. júní n.k
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur - sími: 863-0402 - husaskjol@husaskjol.is
Ef þú ...
• Leitar að fjölskylduvænum vinnustað
• Vilt hafa sveigjanleika í starfi
• Vilt fá laun í samræmi við árangur
• Hefur mikla þjónustulund
• Leitast við að fara fram úr væntingum viðskiptavina
• Hefur áhuga á nýjungum og endurmenntun
• Getur unnið undir álagi
• Ert 30 ára eða eldri og hefur bíl til umráða
... Þá erum við að leita að þér.
Áhugasamir sendi inn ferilskrá með mynd á asdis@husaskjol.is
fyrir 10. Júní 2013.
Öllum umsóknum verður svarað.
P.s. Erum á facebook,
kíktu á hvað viðskiptavinir
hafa um okkur að segja.
Átt þú heima hjá okkur?
Hjá Húsaskjóli fasteignasölu starfar samhentur hópur
kvenna sem hefur það að leiðarljósi að fara fram úr
væntingum viðskiptavina. Við leitum nú að fólki sem
vill slást í hópinn og gera gott fyrirtæki enn betra.
- Lifi› heil
Spennandi tækifæri
fyrir lyfjafræðing
Lyfja Selfossi
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf.
hvetjum við karla jafnt sem konur til
þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Nánari upplýsingar veitir
Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri, í síma 530-3800.
Umsóknir sendist á netfangið hallur@lyfja.is
Lyfja leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi í stöðu
lyfsöluleyfishafa í Lyfju Selfossi.
Í starfinu felst m.a. að bera faglega ábyrgð á rekstri lyfjabúðarinnar,
annast daglegan rekstur og umsýslu og sjá til þess að unnið sé
samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi.
Í boði er krefjandi og spennandi starf fyrir metnaðarfullan lyfja-
fræðing, samkeppnishæf laun og skemmtilegur vinnustaður í
vaxandi bæjarfélagi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur: Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi. Stjórnunar-
hæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til og með 09. júní.
Lyfsöluleyfishafi