Fréttablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 84
1. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 48
Reiknað er með að íbúar höfuðborgarinnar verði orðnir 143.400 árið 2030 og hafi þá fjölgað um 25 þúsund frá því sem nú er. Augljóst er
að bregðast þarf við þessari fjölg-
un og reisa nýjar íbúðir. Ofan á
það bætist að spár gera ráð fyrir
að færri verði í heimili árið 2030
en nú er, svo þörfin verður enn
meiri. Þetta kemur fram í drög-
um að aðalskipulagi Reykjavíkur
2010 til 2030.
Ákveðnir aldurshópar eru skil-
greindir sem virkir á húsnæðis-
markaði og er þá miðað við aldur-
inn 20 til 84 ára. Samkvæmt spá
Hagstofunnar mun þessum hópi
fjölga um tæplega 41 prósent
til ársins 2050, en Íslendingum
fjölga alls um rúm 30 prósent.
Hafa skal í huga að þessar tölur
miða við árið 2050, en ekki 2030
eins og aðalskipulagið. Þetta þýðir
að fólki á húsnæðisaldri fjölgar
hlutfallslega meira en öðrum og
byggja þarf fleiri íbúðir en áður
á hverja 1.000 íbúa.
Færri vilja eigið húsnæði
Aðalskipulagið gerir einnig ráð
fyrir því að færri vilji eiga hús-
næði, fyrr en lengra er liðið á
ævina, og því þurfi að fjölga
leiguíbúðum. Efnahagskreppan,
alþjóðavæðing, aukinn hreyfan-
leiki vinnuafls og breyttur lífs-
stíll ungs fólks á undanförnum
áratugum hafi stækkað þann hóp
sem vill leigja frekar en að eiga.
„Þessi þróun kallar almennt á
aukið framboð minni íbúða í fjöl-
býlishúsum sem staðsett eru mið-
lægt í viðkomandi borgum.“
Til að mæta þessari auknu þörf
fyrir íbúðir á hins vegar ekki að
byggja ný borgarhverfi heldur
þétta þá byggð sem fyrir er. Mark-
miðið er að meirihluti nýrra íbúða,
eða 70 til 90 prósent, muni rísa
innan núverandi þéttbýlismarka.
Tæplega 80 prósent af þeim
húsum sem reist verða til að þétta
byggðina verða á áður röskuð-
um svæðum og um 16 prósent á
opnum svæðum. Aðeins um 2 pró-
sent verða á landfyllingu.
Fjölbreytni og þétting
Stefnt er að því að allt að 25 pró-
sent nýju íbúðanna verði miðuð
við þarfir þeirra sem ekki vilja
eða geta lagt mikið fé í eigið hús-
næði. Í þeim efnum verður sér-
staklega horft til miðlægra svæða
sem auðvelt er að þjóna með
góðum almenningssamgöngum,
þannig að þörfin fyrir einkabíl
minnki.
„Áhersla á uppbyggingu innan
núverandi byggðar styður enn
fremur við markmið um sjálfbæra
og hagkvæma þróun borgarinnar
og stuðlar að betri nýtingu fjár-
festinga í grunnkerfum sem eru
nú þegar til staðar,“ segir í aðal-
skipulaginu.
Stærsti hluti þéttingarreitanna
er á eldri atvinnusvæðum, þar
sem húsnæði er úr sér gengið. Þá
er horft á önnur vannýtt svæði,
eins og jaðarsvæði flugvallarins.
Langstærsta svæðið er þó iðnaðar-
svæðið í Ártúnshöfða við Elliða-
árvog. Sérstakt rammaskipulag
hefur verið unnið fyrir það svæði.
Gætt verður að því að byggðin
á þéttingarreitunum auki gæði
byggðarinnar sem fyrir er.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Fjórðungur íbúða fyrir verr setta
Reykvíkingum mun fjölga um 25 þúsund fram til ársins 2030, samkvæmt spám. 14.500 nýjar íbúðir verða reistar til að
bregðast við þessu. Í nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir því að fjölgunin verði innan núverandi byggðarkjarna.
Byggingarlóð/reitur innan byggðar
– raskað
Opið svæði – útivistargildi
Opið svæði innan byggðar
– ekki útivistargildi
Landfylling
2.500
17,2%
3.600
24,8%
3.400
23,4% 3.200
22,1%
650
4,5%
550
3,8%
1.200
8,3%
1 km
Önnur íbúðarbyggð
Miðborg
Elliðaárvogur
Vatnsmýri
ÍBÚÐARBYGGÐ TIL ÁRSINS 2030
FJÖLDI NÝRRA ÍBÚÐA
BYGGINGARREITIR
2010-2030
Vannýtt athafnasvæði
– raskað
Opið svæði í jaðri byggðar
– ekki útivistargildi
14%
3%3%2%2%
76%
14.500 nýjar íbúðir munu þá hafa verið reistar143.400munu þá búa í Reykjavík 25.000 nýir Reykvíkingar hafa þá bæst við
R
E
Y K
J A V
Í K
Á
R
IÐ 20
3
0
FYRIRHUGUÐ UPPBYGGING Alls á að reisa 14.500 nýjar íbúðir í Reykjavík fram til ársins 2030. Kortið sýnir hvar þær verða og hve hátt prósentuhlutfall er í hverju hverfi.
„Þetta er í raun tvíþætt áskorun sem
við stöndum frammi fyrir. Annars
vegar að finna svæði til þess að ná
markmiðum um minni umferð og
þróun borgarinnar inn á við. Og hins
vegar að tryggja í gegnum skipulag,
lóðaúthlutanir og stefnumótun að
þetta verði húsnæði fyrir alla. Þetta
verði ekki bara einhverjar lúxus-
íbúðir á besta stað sem byggjast
upp gagnvart aðalskipulaginu.
Þess vegna fléttast húsnæðis-
stefnan þarna inn, sem er með skýr
markmið um húsnæði fyrir alla,“
segir Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs.
Dagur segir mikilvægt að auka
félagslegan fjölbreytileika í hverfum,
því bæði reynsla og rannsóknir
sýni að allir hagnist á því. „Allt frá
krökkunum inni í skólastofu, að
vera í breiðum og góðum hópi, en
líka bara samstaðan í samfélaginu
og öryggi á götum úti. Það er mjög
margt sem bendir til þess að jöfnuður og félagsleg
fjölbreytni sé mjög mikilvæg í borgarskipulaginu.“
Dagur segir að með þéttingu byggðar og auknum
fjölbreytileika skapist fleiri kostir fyrir fólk. Taka
verði mið af því að borgin sé fjölbreytt og það muni
aukast á næstu árum. Samanburður sýni að íslenskar
fjölskyldur búi á fleiri fermetrum en fjölskyldur í
höfuðborgum nágrannalandanna. „Maður er ekki viss
um að þær séu endilega að biðja um það, eða þá að
fjárráð allra fjölskyldna leyfi það, heldur erum við
bara að skipuleggja og byggja hverfin okkar svona.
Við viljum leggja áherslu á að þróa lausnir þar sem
eru minni íbúðir, sem eru kannski öðruvísi skipu-
lagðar, þar sem fjölskyldulífið rúmist betur. Við viljum
gjarnan reyna að lækka byggingarkostnaðinn og fara
í samtal bæði við hönnuði, arkitekta og verktaka um
hvernig það sé hægt án þess að slá af gæðum eða
einhverju sem leiðir til hærri viðhaldskostnaðar með
tímanum. Það er mjög margt sem þarf að koma til, en
ofboðslega mikilvægt að okkur takist þetta.“
AUKUM FJÖLBREYTNI
MEÐ MEIRI BLÖNDUN
„Þarna eru ýmsar góðar hugmyndir.
Að sjálfsögðu á borgin að útvega
sem flestum lóðir, hvort sem fólk vill
eiga eða leigja. Í það heila tekið hef
ég áhyggjur af því hvað lóðirnar eru
dýrar. Við erum ein af fáum höfuð-
borgum sem eiga enn nóg landrými.
Það gæti endurspeglast í sanngjörnu
lóðaverði, að það sé ekki eins hátt
og víða annars staðar,“ segir Kjartan
Magnússon, borgarráðsfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, um aðalskipulagið.
Kjartan segir enn verið að
vinda ofan af mistökum R-listans í
skipulagsmálum, en í hans tíð hafi
lóðaverð rokið upp úr öllu valdi.
Markaðurinn hafi enn ekki náð sér
eftir það. „Það væri æskilegra að
það væri reynt að skoða leiðir til
ná lóðaverði niður þannig að íbúðir
verði ódýrari og sérstaklega fyrir
ungt fólk. Það finnast vonandi leiðir
til þess í þessu skipulagi.“
En hvernig sér hann það fyrir sér,
þarf að reisa fleiri íbúðir í nýjum hverfum?
„Já, ég held að það sé nauðsynlegt. Það er hægt
að þétta byggð víða í borginni, eins og kemur fram
í þessu skipulagi, og þá er ég ekki bara að tala um
Vatnsmýrarsvæðið. Það eru mörg önnur svæði þar
sem hægt er að þétta byggð. Ég tel að það eigi líka
að halda áfram uppbyggingunni í Úlfarsárdal. Það er
gert ráð fyrir að draga úr uppbyggingunni þar, frá því
sem áður var ákveðið. Ég tel að það þurfi að skoða
mjög vel, því íbúar í dalnum og í Grafarholti keyptu
að sumu leyti mjög dýrar lóðir, sumir segja dýrustu
lóðir í Reykjavík, í trausti þess að þarna yrði ákveðin
uppbygging. Þeir væru að kaupa í hverfi sem væri af
þeirri stærð sem bæri ákveðna þjónustu, verslanir,
íþróttafélag og fleira og ákveðna grunnþjónustu. Það
þarf að skoða þetta mál mjög vel og eiga samráð við
íbúa,“ segir Kjartan, sem segir marga íbúa hverfisins
óánægða með áformin.
Kjartan segir því mikilvægt að gera hvoru tveggja;
þétta byggð og halda áfram uppbyggingu í Úlfarsárdal.
FLEIRI LÓÐIR ÞARF TIL
AÐ NÁ VERÐINU NIÐUR
Það væri
æskilegra að
það væri reynt
að skoða leiðir
til ná lóðaverði
niður þannig
að íbúðir verði
ódýrari og
sérstaklega
fyrir ungt fólk.
Það er
mjög margt
sem þarf að
koma til, en
ofboðslega
mikilvægt að
okkur takist
þetta.
1
MILLJÓN
fermetra
af nýju
atvinnu-
húsnæði
hefur
þá verið
tekin í
notkun
2,24
munu búa í hverri
íbúð að meðal-
tali (voru 2,4 árið
2009)
15.000 ný
störf munu
hafa orðið til
þá
15.000
50%
fjölgun
verður á
Reykvík-
ingum eldri
en 50 ára
10%
fjölgun
verður á
íbúum yngri
en 50 ára
39%
íbúa landsins
munu þá búa
í Reykjavík